Feykir


Feykir - 27.08.2017, Blaðsíða 4

Feykir - 27.08.2017, Blaðsíða 4
Sameining sveitarfélaga Bætir hag íbúana Sveitarstjórn Húnavatnshrepps telur eðlilegast að sveitar- félögin fjögur í Austur-Húnavatnssýslu kanni möguleika á sameiningu. Það kom fram í ályktun á síðasta fundi sveitarstjórnar. Þar segir að samstarf sveitarfélaganna hafi verið mikið m.a. í byggðasamlögum um reksturstórra málaflokka. Samstarfið hefur verið með ágætum en óneitanlega þyngra í vöfum en ef um eitt sameinað sveitarfélag væri að ræða. Í sameinuðu sveitarfélagi í Austur-Húnavatnssýslu byggju um 1850 íbúar og vegalengdir innan sveitarfélagsins eru ekki hamlandi. Að mati sveitarstjórnar Húnavatnshrepps ætti sameinað sveitarfélag að hafa burði til að veita íbúum sínum góða þjónustu og hefði nægilegan styrk til að bæta hag íbúanna til framtíðar. /PF Hannes Ingi Másson, körfuboltakappi í Tindastól, kemur frá Hvammstanga en er búsettur á Sauðár- króki. Auk þess að æfa og leika með Stólunum stundar hann nám í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Varnarjaxlinn, Viðar Ágústsson, skoraði í vor á samherja sinn að svara spurningum í Liðinu mínu og Hannes skorast að sjálfsögðu ekki undan þeirri áskorun. Hvert er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum og af hverju? -Það er að sjálfsögðu Liverpool, ástæðan fyrir því er að æskuvinirnir héldu með liðinu og ég smitaðist. Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Tíma- bilið byrjaði ekki alltof vel hjá mínum mönnum, vörn og markvarsla hafa svolítið verið að stríða okkur en ég vonast eftir að lenda í top 4 og ná aftur meistaradeildarsæti. Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Nei, ekki nógu sáttur eins og er. Ég nefndi áðan að vörnin og markvarslan hafa ekki verið nógu góð. Síðan veit ég ekki alveg með nýja leikmanninn okkar, hann Alex Oxlade-Chamberlain, en við sjáum hvað rætist úr honum. Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Ekkert sem ég man eftir svona sérstaklega, en oft þegar maður nefnir það við fólk að maður haldi með Liverpool þá fara menn að röfla um það hvað það er langt síðan liðið vann titil, en það fer bara inn um annað eyrað og út um hitt. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -Það mun klárlega vera Fernando Torres. Hann var einn af mínum uppáhalds og átti góða tíma hjá Liverpool. Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Nei, því miður en það styttist vonandi. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Maður á nokkrar treyjur, derhúfur, trefla og gömul plaköt. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Það hefur gengið ágætlega. Náði að koma litlu systur minni á vagninn með mér og síðan er mamma líka Púllari en pabbi náði að ala eldri systur mína á Man. United. Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Nei, alltaf haldið með Liverpool en hef verið að fíflast aðeins í strákunum upp á síðkastið að fara að skipta um lið en það er nú bara smá spaug. Uppáhalds málsháttur? -Ef ég vitna nú aðeins í Georg Bjarnfreðarson úr Dagvaktinni þá sagði hann einu sinni; Ferð hratt og sérð fátt, ferð hægt og margt sér. Einhver góð saga úr boltanum? -Þegar ég fór á Ísland–Holland með fótboltaáfanganum mínum í FNV. Leikurinn endaði 2-0 fyrir Íslandi og Gylfi skoraði bæði mörkin. Þetta var fyrsti alvöru leikurinn sem ég fór á með landsliðinu eftir að þeir urðu virkilega góðir eins og þeir eru í dag. Sennilega með betri skólaferðum sem ég hef farið í. Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? -Fyrir nokkrum árum, þegar ég bjó á heimavistinni, ákváðu nokkrir strákar að taka bílinn minn og fela hann fyrir mér og bjuggu til ratleik fyrir mig til að finna hann. Ég hló að þessu í byrjun en eftir svona tvo klukkutíma án nokkurs árangurs var þetta orðið nokkuð þreytt. Þeir þrjóskuðust þá loksins til að segja mér hvar bílinn væri og var þá búið að leggja honum fyrir utan hús í Lerkihlíðinni. Ég ætlaði þá að fara inn í bílinn en það óheppilega var að þeir höfðu komið lyklinum fyrir í hanskahólfinu og fyrir slysni læst bílnum. Þannig að ég þurfti að fara að vesenast í því að opna bílinn, en það tókst nú að opna hann á endanum. Hrekkur sem misheppnaðist aðeins en ég hlæ að honum núna í dag. Spurning frá Viðari Ágústsyni: –Á Liverpool heima í Meistaradeildinni? -Að sjálfsögðu eiga þeir heima þar. Sjáum það öll þegar þeir lyfta bikarnum í maí. Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum? -Björgvin Hafþór Ríkarðsson. Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Hvar endar þessi endalausa saga með Diego Costa? Hannes Ingi Másson / Liverpool Besta skólaferðin að sjá Ísland vinna Holland 2-0 ( LIÐIÐ MITT ) palli@nyprent.is Hannes Ingi er gegnheill Púllari. MYND ÚR EINKASAFNI Tröll gera víðreist Handbendi – brúðuleikhús Handbendi – brúðuleikhús, atvinnuleikhús á Norðurlandi vestra, sem rekið er á Hvamms-tanga sýnir brúðuverkið Tröll eftir Gretu Clough í Tjarnarbíói þann 30. september kl. 15:30. Í framhaldi af því verða nokkrar sýningar á verkinu á Tröll er endurtúlkun á sumum vinsælustu tröllasögum landsins. MYND: HANDBENDI - BRÚÐULEIKHÚS. Rúnar Kristjánsson Leiðarhvörf Þau ölturu sem ungur kraup ég við og áður helguð treystu gildið sanna, nú brotin eru og beygð að tíðarsið og burtu flæmd úr sálarheimi manna. Mér finnst því sem ég lifi leiðarhvörf er ljótra mála hugsun um sig grefur. Það virðist sumum eins og innri þörf að eyðileggja það sem gildi hefur. Ég fæ ei skilið hroka hugsun þá sem helst vill liðið mannlíf einskisvirða. Og anda þann er ömurlegt að sjá sem ávallt reynir helguð gildi að myrða. Þó mannlífstími hver sé hverful stund á hvötin sú að ráða öðru fremur, að bæta mál og byggja það á grund sem börnum okkar helst til góða kemur. Norður-landi en að þeim loknum verður haldið til Englands þar sem sýnt verður á nokkrum stöðum áður en leikferðinni lýkur með sýningu í South Bank Centre í Lundúnum. Það verður að teljast merki- legur viðburður að verk frá atvinnuleikhúsi sem rekið er í litlu þorpi eins og Hvamms- tanga sýni í jafn glæsilegu húsi og South Bank Centre er, við bakka Thames í miðborg Lundúna. Tröll var frumsýnt á Akureyri þann 11. febrúar og hefur nú þegar verið sýnt rúmlega 30 sinnum. Handbendi sýnir einnig Kúrudag víða um heim, og býður upp á brúðusýninguna Búkollu fyrir skóla á Íslandi, bæði til einkasýninga, og í gegn-um verkefnið List fyrir alla. /FE- 4 36/2017

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.