Feykir - 27.08.2017, Page 4
Sameining sveitarfélaga
Bætir hag íbúana
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps telur eðlilegast að sveitar-
félögin fjögur í Austur-Húnavatnssýslu kanni möguleika
á sameiningu. Það kom fram í ályktun á síðasta fundi
sveitarstjórnar.
Þar segir að samstarf sveitarfélaganna hafi verið mikið m.a. í
byggðasamlögum um reksturstórra málaflokka. Samstarfið
hefur verið með ágætum en óneitanlega þyngra í vöfum en ef
um eitt sameinað sveitarfélag væri að ræða. Í sameinuðu
sveitarfélagi í Austur-Húnavatnssýslu byggju um 1850 íbúar og
vegalengdir innan sveitarfélagsins eru ekki hamlandi. Að mati
sveitarstjórnar Húnavatnshrepps ætti sameinað sveitarfélag að
hafa burði til að veita íbúum sínum góða þjónustu og hefði
nægilegan styrk til að bæta hag íbúanna til framtíðar. /PF
Hannes Ingi Másson, körfuboltakappi í Tindastól,
kemur frá Hvammstanga en er búsettur á Sauðár-
króki. Auk þess að æfa og leika með Stólunum
stundar hann nám í Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra. Varnarjaxlinn, Viðar Ágústsson, skoraði í vor
á samherja sinn að svara spurningum í Liðinu mínu
og Hannes skorast að sjálfsögðu ekki undan þeirri
áskorun.
Hvert er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum og af
hverju? -Það er að sjálfsögðu Liverpool, ástæðan fyrir
því er að æskuvinirnir héldu með liðinu og ég smitaðist.
Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Tíma-
bilið byrjaði ekki alltof vel hjá mínum mönnum,
vörn og markvarsla hafa svolítið verið að stríða
okkur en ég vonast eftir að lenda í top 4 og ná aftur
meistaradeildarsæti.
Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Nei, ekki
nógu sáttur eins og er. Ég nefndi áðan að vörnin og
markvarslan hafa ekki verið nógu góð. Síðan veit ég
ekki alveg með nýja leikmanninn okkar, hann Alex
Oxlade-Chamberlain, en við sjáum hvað rætist úr
honum.
Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna
aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Ekkert sem ég
man eftir svona sérstaklega, en oft þegar maður nefnir
það við fólk að maður haldi með Liverpool þá fara
menn að röfla um það hvað það er langt síðan liðið
vann titil, en það fer bara inn um annað eyrað og út
um hitt.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -Það
mun klárlega vera Fernando Torres. Hann var einn af
mínum uppáhalds og átti góða tíma hjá Liverpool.
Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Nei, því miður
en það styttist vonandi.
Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Maður á
nokkrar treyjur, derhúfur, trefla og gömul plaköt.
Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í
stuðningi við liðið? -Það hefur gengið ágætlega. Náði
að koma litlu systur minni á vagninn með mér og síðan
er mamma líka Púllari en pabbi náði að ala eldri systur
mína á Man. United.
Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds
félag? -Nei, alltaf haldið með Liverpool en hef verið
að fíflast aðeins í strákunum upp á síðkastið að fara að
skipta um lið en það er nú bara smá spaug.
Uppáhalds málsháttur? -Ef ég vitna nú aðeins í Georg
Bjarnfreðarson úr Dagvaktinni þá sagði hann einu
sinni; Ferð hratt og sérð fátt, ferð hægt og margt sér.
Einhver góð saga úr boltanum? -Þegar ég fór á
Ísland–Holland með fótboltaáfanganum mínum í FNV.
Leikurinn endaði 2-0 fyrir Íslandi og Gylfi skoraði bæði
mörkin. Þetta var fyrsti alvöru leikurinn sem ég fór á
með landsliðinu eftir að þeir urðu virkilega góðir eins
og þeir eru í dag. Sennilega með betri skólaferðum
sem ég hef farið í.
Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt
eða orðið fyrir? -Fyrir nokkrum árum, þegar ég bjó
á heimavistinni, ákváðu nokkrir strákar að taka bílinn
minn og fela hann fyrir mér og bjuggu til ratleik fyrir
mig til að finna hann. Ég hló að þessu í byrjun en eftir
svona tvo klukkutíma án nokkurs árangurs var þetta
orðið nokkuð þreytt. Þeir þrjóskuðust þá loksins til að
segja mér hvar bílinn væri og var þá búið að leggja
honum fyrir utan hús í Lerkihlíðinni. Ég ætlaði þá að
fara inn í bílinn en það óheppilega var að þeir höfðu
komið lyklinum fyrir í hanskahólfinu og fyrir slysni
læst bílnum. Þannig að ég þurfti að fara að vesenast
í því að opna bílinn, en það tókst nú að opna hann á
endanum. Hrekkur sem misheppnaðist aðeins en ég
hlæ að honum núna í dag.
Spurning frá Viðari Ágústsyni: –Á Liverpool heima
í Meistaradeildinni? -Að sjálfsögðu eiga þeir heima
þar. Sjáum það öll þegar þeir lyfta bikarnum í maí.
Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum?
-Björgvin Hafþór Ríkarðsson.
Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Hvar
endar þessi endalausa saga með Diego Costa?
Hannes Ingi Másson / Liverpool
Besta skólaferðin að sjá
Ísland vinna Holland 2-0
( LIÐIÐ MITT ) palli@nyprent.is
Hannes Ingi er gegnheill Púllari. MYND ÚR EINKASAFNI
Tröll gera víðreist
Handbendi – brúðuleikhús
Handbendi – brúðuleikhús,
atvinnuleikhús á Norðurlandi
vestra, sem rekið er á
Hvamms-tanga sýnir
brúðuverkið Tröll eftir Gretu
Clough í Tjarnarbíói þann 30.
september kl. 15:30. Í
framhaldi af því verða
nokkrar sýningar á verkinu á
Tröll er endurtúlkun á sumum vinsælustu
tröllasögum landsins. MYND: HANDBENDI -
BRÚÐULEIKHÚS.
Rúnar Kristjánsson
Leiðarhvörf
Þau ölturu sem ungur kraup ég við
og áður helguð treystu gildið sanna,
nú brotin eru og beygð að tíðarsið
og burtu flæmd úr sálarheimi manna.
Mér finnst því sem ég lifi leiðarhvörf
er ljótra mála hugsun um sig grefur.
Það virðist sumum eins og innri þörf
að eyðileggja það sem gildi hefur.
Ég fæ ei skilið hroka hugsun þá
sem helst vill liðið mannlíf einskisvirða.
Og anda þann er ömurlegt að sjá
sem ávallt reynir helguð gildi að myrða.
Þó mannlífstími hver sé hverful stund
á hvötin sú að ráða öðru fremur,
að bæta mál og byggja það á grund
sem börnum okkar helst til góða kemur.
Norður-landi en að þeim
loknum verður haldið til
Englands þar sem sýnt verður
á nokkrum stöðum áður en
leikferðinni lýkur með
sýningu í South Bank Centre
í Lundúnum.
Það verður að teljast merki-
legur viðburður að verk frá
atvinnuleikhúsi sem rekið er í
litlu þorpi eins og Hvamms-
tanga sýni í jafn glæsilegu húsi
og South Bank Centre er, við
bakka Thames í miðborg
Lundúna. Tröll var frumsýnt á
Akureyri þann 11. febrúar og
hefur nú þegar verið sýnt
rúmlega 30 sinnum. Handbendi
sýnir einnig Kúrudag víða um
heim, og býður upp á
brúðusýninguna Búkollu fyrir
skóla á Íslandi, bæði til
einkasýninga, og í gegn-um
verkefnið List fyrir alla. /FE-
4 36/2017