Feykir - 10.01.2018, Page 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
Caird í þjálfarateymið
Christopher Caird leikmaður
Tindastóls í körfubolta hefur
lagt keppnisskóna á hilluna
og hefur bæst í þjálfarateymi
liðsins.
Þrálát meiðsli hafa gert
kappanum lífið leitt og hefur
hann ekki náð að beita sér líkt
og á síðasta keppnistímabili.
Meðfram spilamennsku hefur
Chris verið starfandi yfirþjálfari
yngri flokka félagsins með
mjög góðum árangri.
Á Facebooksíðu sinni segist
Chris vilja þakka fyrir þann
mikla stuðning sem hann hefur
notið hjá stuðningsmönnum
Tindastóls. Segist hann ánægð-
ur með það að fá að taka þátt í
þjálfarastarfi liðsins það sem
eftir lifir leiktímabilsins. /PF
Fyrsta liðið sem kynnt er til leiks í KS deildinni í
hestaíþróttum er lið Hrímnis en það er sigurvegari
sl. þriggja ára og ljóst er að mörg lið vilja binda
enda á þá sigurgöngu. Liðsstjóri liðsins er sem
fyrr Þórarinn Eymundsson sem alls hefur unnið
einstaklingskeppnina fjórum sinnum.
Með Tóta að þessu sinni eru fjórar valkyrjur og
ljóst að þau láta titilinn ekki auðveldlega frá sér.
Þær eru: Helga Una Björnsdóttir, Jóhanna Margrét
Snorradóttir, Líney María Hjálmarsdóttir og ný inn í
liðið kemur Valdís Ýr Ólafsdóttir.
Eitt mót á Akureyri en fjögur á Króknum
KS deildin í hestaíþróttum hefst seinni partinn í
febrúar í reiðhöllinni á Sauðárkróki og verður byrjað
á gæðingafimi. Keppnisfyrirkomulagið verður með
svipuðu sniði og verið hefur með þeirri undan-
tekningu að eitt mót verður haldið á Akureyri.
Keppnisdagar:
21. feb. - Gæðingafimi
7. mars - T2
23. mars - 5-gangur - Akureyri
4. apríl - 4-gangur
13. apríl - Tölt og skeið
LIÐSKYNNING KS DEILDARINNAR
Hrímnir
Tóti með fjórar dömur í sínu liði
Chris hefur verið afkastamikill með liði Tindastóls en nú er komið að tímamótum.
MYND. HJALTI ÁRNA
Dominos-deildin í körfuknattleik : Tindastóll
Sigur og tap í fyrstu leikjum ársins
Tindastóll hefur nú spilað tvo leiki í Dominos-
deildinni það sem af er árinu og í kvöld spilar
liðið við Hauka í Laugardalshöllinni í undan-
úrslitum Maltbikarsins.
Tap í Seljaskóla gegn ÍR
Lið Tindastóls var hálfpartinn úti á þekju gegn
baráttuglöðu og góðu liði Breiðhyltinga í 12.
umferð Dominos-deildarinnar. Það var rétt í
öðrum leikhluta sem Stólarnir náðu tangar-
haldi á heimamönnum og söxuðu þá vel á
forskot ÍR. Staðan 35-33 í hálfleik.
Í þriðja leikhluta náðu ÍR-ingar mest 20 stiga
forystu en Stólarnir minnkuðu muninn í 15 stig
fyrir lokaleikhlutann. Þrátt fyrir ágætar rispur
þá tókst okkar mönnum ekki að þjarma
nægilega að liði ÍR þar sem Ryan Taylor,
Sigurkarl og Matti fóru fyrir sínum mönnum.
Lokatölur 83-75 í leik þar sem fáir Tindastóls-
menn sýndu sitt rétta andlit en skástir voru
Pétur og Arnar.
Frábær leikur gegn Völsurum
Það var eitthvað annað uppi á teningnum þegar
Valsmenn komu í heimsókn sl. sunnudagskvöld.
Þriggja-stiga-eftir-jóla-veisla í boði Helga
Margeirs gaf tóninn í upphafi annars leikhluta
og Stólarnir stungu ringlaða Valsmenn af og
sýndu bæði frábæran varnar- og sóknarleik á
löngum köflum í leiknum. Staðan var 57-36 í
hálfleik en lokatölur voru 103-67.
Allir leikmenn Tindastóls skoruðu í leiknum
og skiluðu sínu og vel það. Stuðningsmenn voru
vel með á nótunum í leik þar sem mörg frammi-
staðan gladdi augu. Hester var frábær og aðrir
fylgdu í kjölfarið. /ÓAB
Knattspyrna : Landslið U17
Jón Gísli til Hvíta-Rússlands
Jón Gísli Eyland Gíslason,
leikmaður Tindastóls, er á
meðal tuttugu annarra sem
Þorlákur Árnason, landsliðs-
þjálfari U17 karla í knatt-
spyrnu valdi í hóp sem fer til
Hvíta-Rússlands í lok janúar
og tekur þar þátt í æfinga-
móti. Hann er á 16. ári en
þrátt fyrir ungan aldur átti
hann fast sæti í meistara-
flokki Tindastóls síðasta
keppnistímabil.
Jón Gísli hefur tekið þátt í
einu landsliðsverkefni áður og
var það fyrir undankeppni EM
en hann spilar sem hægri
bakvörður.
„Þetta leggst mjög vel í mig
og ég er bara spenntur fyrir
þessu,“ segir Jón Gísli sem
stefnir sem lengst í boltanum.
„Þetta er auðvitað hvatning
fyrir mig að ná lengra og er
vonandi byrjunin á einhverju
góðu.“
Einnig er gaman að geta
þess að Brynjar Snær Pálsson
Brynjarssonar Pálssonar, barna-
barn Binna Júlla á Sauðárkróki,
er einnig í hópnum. Hann
leikur með ÍA.
Mótið, sem er liður í
undirbúningi liðsins fyrir
milliriðla í undankeppni EM
2018, fer fram í Hvíta-Rúss-
landi dagana 21.-28. janúar
næstkomandi og taka 12 lið
þátt í því. /PF
Jón Gísli í íslenska landsliðsbúningnum.
MYND AF FACEBOOK
02/2018 5