Feykir - 10.01.2018, Page 9
Fimmti þingmaður
Norðvesturkjördæmis
er Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir,
Sjálfstæðisflokki,
og fer með embætti
ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra.
Hún býr í Kópavogi er
lögfræðingur að mennt,
gift Hjalta Sigvaldasyni
Mogensen og eru börn
þeirra tvö, Marvin Gylfi
5 ára og Kristín Fjóla
sem er ársgömul. Áður
en þingmennskan kallaði
gegndi Þórdís Kolbrún
starfi aðstoðarmanns
innanríkisráðherra, Ólafar
Nordal. Þórdís er þingmaður
vikunnar á Feyki.
Hvenær settist þú fyrst á
þing? -Í október 2016.
Hvaða máli værir þú líkleg
til að beita þér fyrir á
Alþingi framar öðrum?
-Eðli máls samkvæmt eru það
þau mál sem undir mig heyra
sem ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðuneytið.
Telur þú að stjórnmála-
umhverfið hafi breyst eða sé
að breytast frá því sem áður
var? -Já.
Telur þú að fjölmiðlar, Face-
book og aðrir samfélags-
miðlar, hafi áhrif á skoðanir
og gjörðir þingmanna? -Já.
Hvaða verkefni bíður helst
íbúa Norðvesturkjördæmis
að þínu mati? -Uppbygging
efnahagslegra innviða og
samfélagslegra til þess að jafna
búsetuskilyrði landsvæða
og auka samkeppnishæfni
svæðisins og bæta lífsgæði og
lífskjör.
Hvaða málefni telur þú
að brenni helst á íbúum
Norðurlands vestra? -Þau
sömu og bíða helst kjördæmis-
ins alls, til viðbótar myndi
ég nefna stöðu bænda og
fjölbreyttari atvinnutækifæri
á svæðinu.
Hvaða áhugamál áttu fyrir
utan pólitíkina? -Fjölskyldan
er helsta áhugamálið, að
ferðast innanlands og utan og
sundferðir í öllum veðrum.
Hver er uppáhalds tónlistar-
maðurinn? -Beyoncé og
ÞINGMAÐURINN
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Sjálfstæðisflokki
Fjölskyldan er helsta áhugamálið
UMSJÓN
palli@feykir.is
Þórdís Kolbrún, lengst til hægri, í góðum félagsskap vinkvenna.
MYND ÚR EINKASAFNI
Ásgeir Trausti.
Hvert er uppáhalds íþrótta-
félagið? -ÍA. Grindavík í
körfubolta.
02/2018 9
MYND: ÓLI ARNAR
Sigvaldi Helgi Gunnarsson / söngur og gítar
„Á Villa Vill og Björgvin
Halldórsson gátu allir hlustað“
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Sigvaldi Helgi Gunnarsson frá Löngu-
mýri í Skagafirði svarar Tón-lystinni
að þessu sinni. Sigvaldi er fæddur
1995, sonur Laufeyjar Jakobsdóttur
frá Hallfreðarstaðarhjálegu austur á
Héraði og Gunnars Rögnvaldssonar
frá Hrauni á Skaga. „Fyrstu árin mín
bjuggum við á Hólum í Hjaltadal.
En þegar ég var fjögurra ára gamall
fluttum við til Ayr í Skotlandi. Stuttu
eftir að við fluttum aftur heim til
Íslands fluttum við á Löngumýri þar
sem ég ólst að mestu leyti upp,“ segir
hann.
Sigvaldi hefur stundað spilerí með
Hljómsveit kvöldsins ásamt nokkrum
félögum sínum en hann er einnig
duglegur að troða upp einn með gítarinn
eða í félagi við aðra. Spurður um helstu
tónlistarafrekin segir hann: „Að spila
fyrir forsetann en í seinni tíð að spila á
áramótaballi með Geirmundi Valtýssyni
auðvitað!“ Þá ættu margir að kannast
við Sigvalda eftir að hann komst í fjögurra
söngvara úrslit í íslenskri útgáfu The Voice
í lok ársins 2015.
Hvaða lag varstu að hlusta á? Isn’t she
lovely með Stevie Wonder.
Uppáhalds tónlistartímabil? Ekkert
uppáhalds. Hvert tímabil hefur sínar
perlur.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun
þessa dagana? Eitthvað sem grúvar vel
og er vel samið.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu
heimili? Það var misjafnt. Oft var kveikt
á útvarpinu, Rás1, Rás2 eða Bylgjunni.
Jakob bróðir hlustaði á tímabili mikið
á rokkmúsik og alls konar popptónlist
á meðan mamma og pabbi hlustuðu
meira á eldra efni, mamma á Bubba,
Smokie eða U2 og pabbi á Dire Straits
og Stuðmenn. Á Villa Vill og Björgvin
Halldórsson gátu allir hlustað. Svo þurftu
Jakob, Dagný litla systir og mamma að
hlusta á gaulið í okkur pabbi endrum og
eins.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú keyptir
þér? Ég er kannski því miður ekki af þeirri
kynslóð sem er mikið í því að kaupa diska
en fyrsta platan sem ég man eftir að hafa
átt alveg einn og fundist góð var platan
Von eftir Mannakorn. Stuttu seinna keypti
ég safnplötur með Johnny Cash og sígildri
kántrýtónlist.
Hvaða græjur varstu þá með? Ég hlýt
að hafa hlustað á Von í bílnum okkar.
Toyota Corolla árgerð 1989 en þar sem
hún var bara með kasettutæki og ekki
hægt að hlusta á geisladiska áttum
við einhverskonar kasettu sem úr lá
hljóðsnúra og í ferðageislaspilara sem við
bræðurnir höfðum fengið í jólagjöf.
Hvert var fyrsta lagið sem þú manst
eftir að hafa fílað í botn? Still got the
blues með Gary Moore var til á kasettu
hjá mömmu og er það fyrsta sem mér
dettur í hug.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? Það er nú ekkert lag sem getur
eyðilagt fyrir mér daginn en ætli ég
verði ekki að segja að mér finnist ekkert
sérstaklega skemmtilegt að hlusta á
Þorraþrælinn.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað
læturðu hljóma í græjunum til að koma
öllum í stuð? Ignition með R-kelly. Svo
bara eitthvað sem kemur fólkinu í stuð.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudags-
morgni, hvað viltu helst heyra?
Sunnudagsmorgunn með Jóni Ólafssyni
og strax á eftir Fireflies með Owl City.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er
í heiminum og skella þér á tónleika.
Hvert færirðu, á hvaða tónleika og
hvern tækirðu með þér? Ég fór á
tónleika með John Mayer í maí sem
olli hálfgerðri geðshræringu og svipað
gerðist þegar ég fór á tónleika með
Tommy Emmanuel. Það var búið að vera
langþráður draumur. En ætli ég verði ekki
að segja Stevie Wonder, Ed Sheeran,
Michael Bublé, Eric Clapton, Toto og
auðvitað fleiri. Þá væri æðisgengið að
fara til Nashville á einhvers konar kántrý
festival. Ég myndi reyna að taka með
mér sem flesta. kærustuna, vinina og
fjölskylduna.
Hvað músík var helst blastað í bílnum
þegar þú varst nýkominn með bílpróf?
Ég gat tæplega blastað í bílnum því að
græjurnar þar voru ekki til fyrirmyndar, þá
var farþegahurðin líka óþétt og mikil læti
gerðu það að verkum að það heyrðist
ekki mikið í útvarpstækinu. En ætli ég
hafi ekki hlustað mikið á John Mayer og
Michael Bublé.
Hvaða tónlistarmenn hafa haft mest
áhrif á þig? Úff, þeir sem hafa haft
mest áhrif á mig sem tónlistarmann
eru allir þeir sem ég hef spilað með í
gegnum tíðina, strákarnir í hljómsveit-
inni auðvitað og tónlistarkennararnir í
tónlistarskólanum. Þá hefur fjölskyldan
alltaf stutt mig. En af stórstjörnunum
held ég áfram að segja John Mayer,
Michael Bublé, Stevie Wonder og
Tommy Emmanuel.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? Allar plötur
John Mayer eru frábærar, en nýlega
hef ég uppgötvað Thriller með Michael
Jackson og Rumours með Fleetwood
Mac. Hell Freezes Over með Eagles er
mjög hlustendavæn og góð afþreying. En
listinn er endalaus.
toppurinn
Ég nota Spotify nú til
dags til að hlusta á tónlist
en það er ekki neinn listi
sem sýnir þau lög sem ég
hef hlustað oftast á. En
áður en ég notaði Spotify
var ég með tónlist í síma-
num og hann sýnir þetta.
I’m Not the Only One
SAM SMITH
Lyin’ Eyes
EAGLES
Queen of California
JOHN MAYER
The Hills
WEEKND
Say My Name
BEA MILLER
I don’t trust myself
(with loving you)
JOHN MAYER
M
YN
D
: H
IN
IR
S
Ö
M
U
sf
.