Feykir - 31.01.2018, Síða 3
Mikil frjósemi í upphafi árs
Fjögur lömb í Laxárdal
Feykir greindi frá því í síðustu
viku að tvö hrútlömb hefðu
komið í heiminn á Ytri-
Hofdölum í Skagafirði á
bóndadag og eitt til á Óslandi í
Skagafirði degi síðar. Var það
hrútur sem fékk að sjálfsögðu
nafnið Þorri. Þetta verður að
teljast nokkuð snemmbúinn
sauðburður en samt sem áður
hafa nú borist fregnir af einni
á til hér á svæðinu sem skaut
þeim báðum ref fyrir rass og
bar fjórum lömbum þann 13.
janúar.
Ærin sú heitir Gola og er í
eigu Jónu Guðrúnar Ármanns-
Sérfræðikomur
í febrúar 2018
www.hsn.is
2. FEBRÚAR
Bjarki Karlsson nokkrir tímar lausir
12. OG 13. FEBRÚAR
Sigurður M. Albertsson alm. skurðlæknir
Tímapantanir í síma 455 4022.
FISK Seafood
Drangey í fyrsta prufutúrnum
Eftir prófanir á búnaði
millidekks og lestar í Drangey
SK 2 sl. föstudag voru kör
sett í lestar skipsins og
undirbúið fyrir brottför í
prufutúr sem lagt var upp í
sl. laugardag.
Á fésbókarsíðu Fisk Seafood
segir að auk áhafnarinnar séu
um borð starfsmenn frá
Skaginn 3X en í túrnum verður
búnaður skipsins prufukeyrður.
Þegar Feykir hafði samband
við Snorra Snorrasonar, skip-
stjóra, sl. sunnudag hafði allt
gengið vel það sem af var túrn-
um en skipið hefur verið að
toga úti fyrir Norðurlandi. /PF
www.skagafjordur.is
Álagningu fasteigna-
gjalda 2018 lokið
Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og
lögaðilar, geta nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu
sveitarfélagsins. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu
island.is undir flipanum „Mínar síður“.
Álagningarseðlar eru sendir á pappírsformi til þeirra greiðenda sem þess óskuðu. Greiðslu-
seðlar vegna fasteignagjaldanna birtast í öllum heimabönkum og verða sendir þeim sem
óskað hafa eftir að fá þá heimsenda.
Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt til bráðabirgða hjá elli- og
örorkulífeyrisþegum og miðað er við tekjur ársins 2016. Þegar álagning 2018 vegna tekna
ársins 2017 liggur fyrir í júlí/ágúst n.k. verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það
leitt til inneignar eða skuldar eftir því sem við á. Allar breytingar verða þá kynntar bréflega
hverjum og einum. Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.
Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru
veittar á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 455 6000
eða í innheimta@skagafjordur.is
Verið að undirbúa skipið fyrir fyrsta túr. MYND: PF
dóttur og Jóhanns Ragnarssonar, bænda í Laxárdal 3 í Hrútafirði. Að
sögn Jónu Guðrúnar er Gola sjálf fjórlembingur af Þokukyni, fædd
árið 2014 og er því að bera í fjórða sinn. Það er óhætt að segja að Gola
hafi verið frjósöm um dagana en sem gemlingur var hún þrílembd,
tvílembd sem tvævetla og í fyrravor var hún þrílembd en lömbunum
lét hún í það skiptið í lok mars. Það er víst engum blöðum um það að
fletta að Gola hefur hitt einhvern sætan hrút í lok ágúst og þetta er
útkoman. Lömbin fjögur eru tveir hrútar og tvær gimbrar sem fengu
heitin Janus, Hrafntinna, Prinsessa og Perla. /FE
Heimasætan Jóhanna Guðrún
með einn fjórlembinganna.
MYND: JÓNA GUÐRÚN ÁRMANNSDÓTTIR
05/2018 3