Feykir - 31.01.2018, Síða 10
Bók-haldarinn okkar að
þessu sinni er Sigurlaug Rún
Brynleifsdóttir, eða Silla í
Dalsmynni, sem er deildar-
stjóri í Grunnskólanum
austan Vatna. Það er óhætt
að segja að Silla hafi tals-
verða tengingu við lestur en
hún hefur unnið mikið með
læsi í skólum og stýrði meðal
annars vinnu við Lestrar-
stefnu Skagafjarðar sem út
kom síðastliðið haust. Hún
segist hafa gaman af ævi-
sögum og ýmiss konar
uppflettiritum og fræði-
bókum en íslenskar skáld-
sögur séu þó það sem hún
les mest af.
Hvaða bækur voru í uppáhaldi
hjá þér þegar þú varst barn?
-Pési grallaraspói og Mangi
vinur hans eftir Ole Lund
Kirkegaard var í miklu uppá-
haldi hjá mér þegar ég var
barn ásamt Baldintátubók-
unum eftir Enid Blyton. Svo
má auðvitað ekki gleyma
Salómon svarta sem var lesinn
aftur á bak og áfram. Það er
ein bók sem er mér sérstaklega
minnistæð frá barnæskunni
og sennilega vegna þess að
mér fannst ég vera að lesa
„alvöru“ bók, en það var bókin
Marína eftir Jón Thorarensen.
Hver er uppáhaldsbókin af
þeim sem þú hefur lesið gegn-
um tíðina? -Uppáhaldsbókin
mín er án efa Jóladraumur
eftir Charles Dickens, algjör
klassík.
Hver er þinn uppáhaldsrit-
höfundur og hvers vegna?
-Þetta er erfið spurning. Það
koma nokkur nöfn upp í
hugann, t.d. Vigdís Gríms-
dóttir, Bragi Ólafsson, Jón
Kalman Stefánsson og Guð-
mundur Andri Thorsson.
Þetta eru svona þeir höfundar
sem ég hef leitað svolítið í, en
ég get ekki sagt að einhver
einn þeirra sé meira uppáhalds
en annar.
Hvaða bækur eru á náttborð-
inu hjá þér þessa dagana?
-Náttborðsstaflinn litast tölu-
vert af áhugamálunum. Núna
er ég að lesa bókina Konan í
dalnum og dæturnar sjö en
auk hennar eru Garðrækt í
sátt við umhverfið og Fjall-
vegahlaup á náttborðinu hjá
mér.
Ertu fastagestur á einhverju
bókasafni? -Því miður hef ég
ekki verið dugleg að nota
bókasöfn. Sennilega stafar það
af því að ég á svo mikið af
ólesnum bókum hér heima.
Silla með bók og tóman kaffibolla. MYND ÚR EINKASAFNI
( BÓK-HALDIÐ ) frida@feykir.is
Myndin af Grýlu í
Vísnabókinni minnisstæð
Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir í Dalsmynni / kennari
Þegar ég fer á bókasafn þá
verður bóksafn skólans sem ég
starfa við helst fyrir valinu.
Áttu þér uppáhaldsbókabúð?
-Ég á mér enga uppáhaldsbúð,
en ég kem nú oftast við í
Pennanum þegar ég á leið til
Akureyrar og síðan reyni ég að
fara árlega á Bókamarkaðinn.
Hvað áttu margar bækur í
bókahillunum heima hjá þér?
-Miðað við að ég hef ekki
komist yfir að lesa þær allar þá
eru þær sennilega alltof margar.
Eftir grófa útreikninga myndi
ég giska á að þær væru á bilinu
fimm til sexhundruð og þá tel
ég barnabækurnar að sjálf-
sögðu með.
Hvað kaupirðu eða eignast að
jafnaði margar nýjar bækur yfir
árið? -Líklega eignast ég á
bilinu 3-6 bækur á ári. Hins
vegar kaupi ég mun fleiri til að
gefa öðrum.
Eru ákveðnir höfundar/bækur
sem þú færð „alltaf“ í jólagjöf?
-Ég hef ekki verið í jólagjafa-
áskrift að bókum nema að
þeim árum undanskildum
þegar Jón Kalman Stefánsson
og Vigdís Grímsdóttir gáfu út
þríleikana sína.
Hefur einhver bók sérstakt gildi
fyrir þig? -Sú bók sem fyrst
kemur upp í hugann er Vísna-
bókin en hún var til á mínu
æskuheimili og var mikið lesin.
Ég keypti hana að sjálfsögðu
handa mínum börnum og ef ég
man rétt var eldri dóttir mín
tveggja mánaða þegar ég keypti
bókina og byrjaði að raula og
lesa vísurnar fyrir hana. Mynd-
irnar í bókinni eru svo greiptar
í minnið og þá sérstaklega
myndin af Grýlu sem mér
fannst mjög ógnvekjandi þegar
ég var barn. Ég gerði alltaf ráð
fyrir því að systkini mín hefðu
borið jafn óttablandna virðingu
fyrir Grýlu og ég. Þess vegna
tók ég mig til fyrir nokkrum
árum og saumaði bútasaums-
mynd af Grýlu í dúka ásamt
broti úr vísunni Grýla reið
með garði og gaf systkinum
mínum í jólagjöf. Dúkarnir
vöktu að sjálfsögðu mikla
lukku.
Hefur þú heimsótt staði sem
tengjast bókum eða rithöf-
undum þegar þú ferðast um
landið eða erlendis? -Ég hef
ekki gert mikið af því en hins
vegar finnst mér mjög skemmti-
legt að lesa sögur sem gerast á
svæðum þar sem ég hef komið
og þekki jafnvel til staðhátta.
Ein slík tenging átti sér stað
þegar ég las Sendiherrann eftir
Braga Ólafsson en þegar ég las
þá bók þá hafði ég nýlega farið
með kvenfélagi Hólahrepps í
ferð til Vilnius í Litháen og
kannaðist því að einhverju leyti
við þá staðhætti sem Bragi lýsir
í bókinni. Skemmtileg tilviljun
að bókin skyldi koma út sama
ár og ég fór til Vilnius.
Ef þú ættir að gefa einhverjum
sem þér þykir vænt um bók,
hvaða bók yrði þá fyrir valinu?
-Ef ég myndi vilja koma ein-
hverjum til að hlæja myndi ég
gefa viðkomandi Bítlaávarpið
eftir Einar Má Guðmundsson.
Ég mæli líka með henni fyrir þá
sem hafa ekki lesið lengi og
halda að þeir hafi ekkert gaman
af bóklestri. Börnum myndi ég
gefa bækurnar Dimmalimm
og Helgi skoðar heiminn.
Telur þú að fjölmiðlar, Face-
book og aðrir samfélags-
miðlar, hafi áhrif á skoðanir
og gjörðir þingmanna? -Oft
er sagt að stjórnmálamenn
eigi ekki að láta svona lagað
hafa áhrif á sig og flestir vinna
eftir því. Það er hins vegar
svo með mannlegt eðli að allt
í umhverfi okkar hefur áhrif
og mótar okkar skoðanir.
Auðvitað eru fjölmiðlar, face-
book o.fl. ekki undanskilið
hvað það snertir.
Hvaða verkefni bíður helst
íbúa Norðvesturkjördæmis
að þínu mati? -Uppbygging
innviða á sviði samgangna,
fjarskipta o.fl. Við þurfum að
auka byggðajafnrétti á öllum
sviðum og í því sambandi
að stíga skref í þá átt að taka
upp norska byggðastefnu þar
sem ýmsum fjárhagslegum
hvötum er beitt. Ríkisvaldið
þarf að standa með atvinnu-
uppbyggingu á landsbyggð-
inni og vinna með sveitar-
stjórnum þegar kemur að
þeim málum.
Hvaða málefni telur þú
að brenni helst á íbúum
Norðurlands vestra? -Stjórn-
völd þurfa að standa með
grunnatvinnugreinum svæð-
isins, landbúnaði og sjávar-
útvegi, og hvetja til sóknar og
nýsköpunar. Stjórnvöld þurfa
að standa við bakið á sveitar-
félögunum á svæðinu varðandi
það að nýta orku úr héraði til
atvinnuuppbyggingar. Ferða-
þjónustan er líka í sókn og
þar er mikilvægt að stjórnvöld
tryggi að samgöngur bæði
á landi og lofti séu tryggar.
Samstaðan sem hefur verið að
myndast milli sveitarstjórna
um helstu áherslur er mikil-
væg til að ná árangri og á
þeim grunni getum við saman
komið góðum málum áfram.
Hvaða áhugamál áttu fyrir
utan pólitíkina? -Ég er mikill
áhugamaður um íþróttir og fer
á mjög marga körfuboltaleiki
og hef gaman af. Jafnframt hef
ég gaman af því að veiða og
ferðast.
Hver er uppáhalds tónlistar-
maðurinn? -Villi Vill (Vil-
hjálmur Vilhjálmsson).
Hver er uppáhalds kvik-
myndin? -Af íslenskum
myndum þá er það klárlega
Dalalíf en enginn sérstök
erlend mynd í uppáhaldi.
Finnst alltaf gaman að horfa
á Beverly Hills Cop eða Die
Hard myndirnar.
Hvert er uppáhalds íþrótta-
félagið? -Skallagrímur í
Borgarnesi og Swansea í enska
boltanum.
Ein góð saga í lokin: -Þær eru
margar góðar en læt þær bíða
næsta opna fundar á svæðinu.
Ásmundur með dæturnar þrjár.
10 05/2018