Feykir - 21.03.2018, Blaðsíða 1
12
TBL
21. mars 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 10
Arna Björg Bjarnadóttir
svarar Rabb-a-babbi
Bláber með sykri
og rjóma er besta
helgarnammið
BLS. 9
Árshátíð Ferðaklúbbsins 4x4
var í Skagafirði um helgina
Skemmtileg
ferð um hálendi
Skagafjarðar
Friðfinna Lilja Símonardóttir er
með ýmislegt á prjónunum
Saumaði íslenska
búninginn á
strákana sína
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Í gær var, á táknrænan hátt, skrifað
undir samstarfssamning milli Sveitar-
félagsins Skagafjarðar og Sýndarveru-
leika ehf. um uppbygginu og rekstur
sýndarveruleikasýningar um atburði
sem gerðust í Skagafirði á Sturlunga-
öld m.a. Örlygsstaðabardaga sem er
fjölmennasta orrusta sem háð hefur
verið á Íslandi. Undirritunin fór fram í
Aðalgötu 21, í húsnæði því sem hýsa
á sýninguna, að viðstöddu sveitar-
stjórnar- og fjölmiðlafólki sem og
fulltrúum yngri kynslóðarinnar sem
fengu að setja upp sýndargleraugu
og prófa útbúnaðinn.
„Þetta er vonandi fyrsta skrefið af
nokkrum til þess að draga að ferðamenn
bæði innlenda og erlenda,“ segir Ingvi
Jökull Logason sem leiðir verkefnið
fyrir hönd Sýndarveruleika ehf. Hann
segir verkefnið metnaðarfullt og mjög
jákvætt skref í þeirri nálgun.
Ingvi segir verkefnið hafa byrjað á
einfaldri og skemmtilegri hugmynd sem
nokkrir aðilar tóku ástfóstri við. „Þeir
fara síðan af stað og reyna að safna
fjárfestum og draga menn með sér í
verkefnið sem er mjög metnaðarfullt
bæði í tæknilegri nálgun og ekki síst í
því að þora að eiga samstarf og vinna að
uppbyggingunni með sveitarfélaginu
og íbúum Skagafjarðar. Hann segir
aðspurður fjármögnunina hafa gengið
vel en bendir á þá staðreynd að hver sá
sem hefur tekist á við svona verkefni
viti að mörg símtöl eru að baki og mörg
nei, áður en jáin koma.
„Staðan er þannig í dag að við erum
að loka fjármögnunarvinnunni og eftir
því sem ég best veit er einn aðili með
aðalfund í dag [í gær] sem við vonumst
eftir jákvæðu svari frá. Þetta eru um
10% sem við eigum eftir að loka og sú
vinna heldur áfram. Við erum búin að
tryggja fjármagn til að byrja og kom-
umst mjög langt en við munum þurfa að
halda áfram með fjármögnunarvinn-
una samhliða.
Ingvi segir hugmyndina spretta upp
úr vinnu sem snýr að því að búa til segul
á Sauðárkrók, þar sem ekki sé nægjan-
lega mikil ferðamennska eða að ferða-
menn staldri ekki nægilega lengi við í
Skagafirði. „Þannig að við erum að
reyna að fá fólk til að taka vinstri beygju
eins og við köllum það, þ.e. af hring-
veginum. Það er alveg klárt að það er
áskorun en við lítum svo á að það sé
alveg nægur grunnur til að byggja á.
Ferðamenn sem koma í Glaumbæ og
sútunarverksmiðjuna benda til þess og
aðrar mælingar. Það er áskorun að ná
ferðamönnum á staðinn til að staldra
við í einhverja stund sem vonandi gista
og njóta bæjarins meira.“
Ingvi segir allar áætlanir ganga vel
og framkvæmdir séu þegar hafnar við
húsið. „Við vonumst til þess að ytri
ásýnd verði lokið einhvern tímann í
sumar, júní eða júlí, ef bestu áætlanir
ganga eftir og þá eigum við eftir að
ganga frá innanhúss og fleira en stefn-
um á seinni part haustsins. Október er
það sem við erum með eyrnamerkt í
dag.“ /PF
Skagafjörður verði leiðandi sveitarfélag í nýtingu sýndarverleika
Atburðir Sturlungasögu lifna við
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Fyrir framan komandi sýndarveruleikahús að Aðalgötu 21. Ingvi Jökull Logason forsvarsmaður Sýndarveruleika ehf. og sveitarstjórnarfulltrúarnir,
Stefán Vagn Stefánsson, Viggó Jónsson, Sigríður Svavarsdóttir og Gunnsteinn Björnsson MYND: PF