Feykir


Feykir - 18.04.2018, Blaðsíða 3

Feykir - 18.04.2018, Blaðsíða 3
Frá aðalfundi KS sl. laugardag. Mikið var rætt um stöðu sauðfjárbænda og hvernig hægt væri að blása til sóknar í markaðsmálum. MYND: PF Góð afkoma KS 2017 Heildartekjur rúmir 33 milljarðar Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga fór fram í Selinu í Kjötafurðastöð KS sl. laugardag að viðstöddu fjölmenni. Árið 2017 er stærsta einstaka fjárfestingaár í allri sögu félagsins sem námu allt að 14 milljörðum króna. Í árslok voru dótturfélögin 14 talsins en nokkur þeirra mynda sjálf samstæðu með dótturfélögum sínum. Hagnaður félagsins var rúmir 2,3 milljarðar. Eignir félagsins eru metnar á tæpa 50 milljarða og jókst um tæpa 10 milljarða milli ára og eru veiðiheimildir og aðrar óefnislegar eignir hæstar eða tæpir 14 milljarðar. Fasteignir námu rúmum 9 milljörðum og skip 3,8 milljarðar. Í inngangsorðum Þórólfs Gíslasonar, kaupfélagsstjóra, kom fram að rekstur Kaup- félagsins 2017 samanstóð af sömu fyrirtækjum og mynduðu rekstarsamstæðu félagsins 2016. Eina breytingin var sú að undir lok rekstarársins 2017 keypti FISK Seafood útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Soffaníus Cecilsson í Grundarfirði, en það félag hefur með höndum fisk- vinnslu og útgerð á tveimur bátum. Kaupin höfðu hins vegar í för með sér verulega stækkun á efnahagsreikningi félagsins. Heildartekjur á árinu 2017 voru 33,1 milljarður sem er hækkun um tæpa tvo milljarða frá fyrra ári, rekstrarafkoma fyrir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 4,2 milljarða sem er sama tala og 2016. Fjöldi ársverka var tæplega 950, sem er lítilsháttar fjölgun miðað við árið 2016 og laun og launatengd fjöld voru um 7,8 milljarðar á árinu 2017. Stærstu einstöku rekstrar- þættir samstæðunnar miðað við tekjur á árinu 2017 voru: Kaupfélag Skagfirðinga svf. 11,6 milljarðar, FISK Seafood ehf. 7,4 milljarðar og Fóðurblandan hf. 5,6 milljarðar. Vilja taka á markaðsmálum fyrir sauðfjárafurðir Á fundinum skapaðist mikil umræða um stöðu sauðfjár- bænda en hún hefur verið erfið undanfarin misseri. Voru menn sammála um að spýta þyrfti í lófana og taka á markaðs- málunum fyrir sauðfjárafurðir. Þórólfur Gíslason upplýsti fundarmenn um það hve sterk króna er erfið fyrir allan útflutning, hvort það eru sjávar- eða landbúnaðarafurðir, steinull eða annað. „Mikilvægt er að samstaða náist meðal sauðfjárbænda og sláturleyfishafa um aðgerðir er gagnist atvinnugreininni til framtíðar litið. Annars er hætt við óæskilegri og neikvæðri búseturöskun,“ sagði Þórólfur. Þrátt fyrir erfitt rekstarum- hverfi vegna hás gengis íslensku krónunnar á síðasta ári varð hagnaður Kaupfélags Skagfirð- inga rúmir 2,3 milljarðar. /PF 15/2018 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.