Feykir - 30.05.2018, Síða 12
Kominn tími til
að endurnýja
björgunarskipið
Björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd
Meirihluti björgunarsveita landsins sinnir sjóbjörgun
með einum eða öðrum hætti og segir á heimasíðu
Landsbjargar að u.þ.b. 2.200 manns hafi verið bjargað
úr strönduðum skipum hér við land með svokölluðum
fluglínutækjum. Langflestar sveitir við ströndina hafa
slíkan búnað og æfa reglulega meðferð hans.
Búnaðurinn samanstendur af skotflaug sem dregur á
eftir sér línu út í hið strandaða skip, tildráttartaug, líflínu,
björgunarstól og þrífæti.
Björgunarbátum sveitanna má
skipta í þrjá meginflokka og
eru eftirfarandi upplýsingar
sóttar á landsbjorg.is:
Slöngubátar en um það bil 95
slíkir eru í eigu björgunar-
sveitanna. Þetta eru uppblásnir
bátar, flestir tæplega 5 metra
langir með 30-40 hestafla utan-
borðsvélum, en ganghraði
þeirra er um 20-30 sjómílur á
klukkustund og í áhöfn eru
yfirleitt 2-3 menn.
Harðbotna slöngubátar en
þeir eru 25 talsins með góða
dreifingu umhverfis landið.
Þeir eru á stærðarbilinu frá 5,5
og upp í 9 metra langir, ýmist
með utanborðsvélum eða
föstum dieselvélum. Nokkrir
þeirra eru með litlu stýrishúsi
en flestir eru alveg opnir en
með stjórnpúlti og hnakk fyrir
áhöfnina sem er yfirleitt 3-4
menn. Ganghraði þessara báta
er yfirleitt nálægt 30 sjómílum.
Björgunarskip eru fjórtán
talsins og eru þar sem
slysahætta er talin mest vegna
sjósóknar. Sérstakir sjóðir sjá
um rekstur þeirra, samvinnu-
verkefni félagseininga á
stöðunum, en Björgunarbáta-
sjóður greiðir laun vélstjóra og
meiriháttar viðgerðir. Flestir
þessara báta voru fengnir frá
systurfélögum okkar í Evrópu
en þar fer fram mikil þróun í
gerð og búnaði slíkra báta.
Þessir bátar eru frá 15 og upp í
25 metra langir og allt að 85
tonn. Ganghraði bátanna er frá
12 og upp í 30 sjómílur og í
áhöfn eru frá 4 og upp í 8 menn.
Á Skagaströnd eru staðsettir
þrír bátar sem falla í fyrrgreinda
flokka og þjóna þeir Húna-
flóasvæðinu. Feykir sendi
Reyni Lýðssyni, formanni
Björgunarsveitarinnar Strandar
á Skagaströnd, línu og forvitn-
aðist lítillega um hann og
björgunarsveitina. Reynir, sem
stjórnar fiskmarkaðinum á
Skagaströnd dags daglega,
hefur verið formaður Strandar
sl. tólf ár en þar áður nokkur ár
sem varaformaður.
Sækja námskeið
á vegum
Björgunarskólans
Hvaða búnað hafið þið til
sjóbjörgunar og hvernig
gengur að manna bátana?
-Við erum með Húnabjörgu,
Aðalbjörgu og svo tuðru.
Húnabjörgin er stórt björg-
unarskip af gerðinni Aron sem
gengur 16 sjómílur, Aðalbjörg-
in er undanfari af gerðinni
Atlantic 75 og gengur 31
sjómílu.
Hvernig er mannskapurinn
þjálfaður? -Við sækjum nám-
skeið á vegum Björgunarskól-
ans en einnig höfum við æft
með þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar. Svo eru flest allir
áhafnarmeðlimir sjómenn með
tilheyrandi reynslu og þjálfun.
Hvernig gengur að reka sjó-
björgunarskipið Húnabjörg?
-Það gengur, þökk sé ríkis-
styrkjum til björgunarskipa á
Íslandi.
Er eitthvað sem vantar upp á
búnað sveitarinnar að þínu
mati til sjóbjörgunar? -Það er
kominn tími til þess að endur-
nýja björgunarskipið okkar
sem er 31 árs.
Hver er aðaltekjulind Björg-
unarsveitarinnar? -Flugelda-
sala, sjómannadagurinn og
ýmis gæslustörf.
Hvernig kemur Björgunar-
sveitin að hátíðarhöldum á
sjómannadaginn? -Hingað til
höfum við séð alfarið um
sjómannadaginn en í ár eru
breytingar á þar sem tóm-
stunda og menningarmála-
nefnd sveitarfélagsins vinnur
með okkur að deginum. Í ár
ætlum við að prufa að hafa
helgina alla undir og köllum
við hátíðina Hetjur hafsins.
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri? -Já, mig langar að
koma á framfæri þakklæti til
allra, fyrirtækja og einstaklinga
sem hafa í gegnum árin styrkt
okkur með ýmsum framlögum,
án ykkar værum við ekki svona
öflug í dag.
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Reynir Lýðsson við Húnabjörg,
björgunarskip Björgunarsveitarinnar
Strandar á Skagaströnd.
AÐSEND MYND
12 21/2018