Feykir


Feykir - 25.07.2018, Blaðsíða 1

Feykir - 25.07.2018, Blaðsíða 1
29 TBL 25. júlí 2018 38. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra María Ósk skrifaði Sveitar- félaginu Skagafirði bréf Langar í ærslabelg á Krókinn Bletturinn á Hvammstanga „Það var sagt að það væri ekki hægt að rækta hér“ Myndasyrpa og umfjöllun um Húnavöku á Blönduósi Vel heppnuð Húnavaka Við þjónustum bílinn þinn! Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570 Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða- menn með áralanga reynslu. Nýttu þér netverslun Skoðaðu vöruúrvalið á lya.is FYRIR HEYSKAPINN Eigum til tinda og hnífa í flestar gerðir heyvinnuvéla, einnig slöngur og dekk með eða án felgu. & 453 8888 NETFANG velaval@velaval.is BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227 Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta Á fundi stjórnar SSNV, sem fram fór þann 10. júlí sl. lagði Unnur Valborg framkvæmdarstjóri fram lista yfir nýkjörna aðalmenn í sveitarstjórnum á starfsvæði SSNV. Samkvæmt honum er konur nú 47% sveitarstjórnarfulltrúa samanborið við 38% á nýliðnu kjörtímabili. Sveitarstjórn Húnaþings vestra er skipuð fjórum körlum og þremur konum. Fimm konur eru varamenn í sveitarstjórn og tveir karlmenn. Sveitarstjórn Húnavatnshrepps er skipuð fjórum konum og þremur körlum. Fjórir karlmenn eru varamenn í sveitarstjórn og þrjár konur. Sveitstjórn Blönduósbæjar er skipuð fjórum körlum og þremur konum. Fimm karlmenn eru varamenn í sveitarstjórn og tvær konur. Sveitarstjórn Skagastrandar er skipuð þremur körlum og tveimur konum. Fjórar konur eru varamenn í sveitarstjórn og einn karlmaður. Hreppsnefnd Skagabyggðar er skipuð þremur körlum og tveimur konum. Fjórar konur eru varamenn í hreppsnefnd og einn karlmaður. Sveitarstjórn Skagafjarðar er skipuð fimm konum og fjórum körlum. Fimm karlmenn er varamenn í sveitarstjórn og fjórar konur. Hreppsnefnd Akrahrepps er skipuð þremur körlum og tveimur konum. Fjórar konur eru varamenn i hreppsnefnd og einn karlmaður. Nýliðar í sveitarstjórnum eru nú 67% samanborið við 51% á nýliðnu kjörtímabili. Með nýliðum er átt við fulltrúa sem ekki sátu kjörtímabilið á undan en í þeim hópi eru einhverjir sem eru að koma inn í sveitarstjórnir að nýju eftir hlé í eitt kjörtímabil eða meira. /LAM Sveitarstjórnarmál Konur 47% kjörinna fulltrúa á Norðurlandi vestra Það brast á með þriggja daga blíðu í síðustu viku og krakkarnir á siglinganámskeiðinu í Sumar-TÍMinu á Króknum nýttu dagana vel. Námskeiðið er í umsjón Siglingaklúbbsins Drangeyjar og á fimmtudaginn þegar fréttamaður Feykis var á ferð við höfnina voru óvenju margir krakkar á námskeiði að sögn leiðbeinandans enda skein sólin í heiði. Reyndar var nokkur gola sem kom sér bara vel fyrir þá sem sigldu seglum þöndum á skútu og náðust ekki á mynd. MYND: FE Sauðárkrókur Lagt frá landi

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.