Feykir


Feykir - 25.07.2018, Blaðsíða 3

Feykir - 25.07.2018, Blaðsíða 3
Eldur í Húnaþingi byrjar í dag Húnaþing vestra Listahátíðin Eldur í Húnaþingi hefst í dag með opnunarhátíð kl. 18:00 við Félagsheimilið á Hvammstanga og á Bangsatúni. Boðið verður upp á súpu til að næra líkamann og eitthvað verður við að vera fyrir alla fjölskylduna. Hinn árvissi atburður þar sem heimamenn koma fram, Mello Musika, er á sínum stað annað kvöld kl. 20:30 í Félagsheimilinu. Dagskráin er mjög vegleg en m.a. koma fram Moses Hightower, Paparnir, Ylja, og hinir margverðlaunuðu búk- sláttarmenn Body Rhythm Factory ásamt leikverkinu Tatterdamalion – báðir þessir erlendu atburðir eru fjöl- skylduvænir. Sverrir Berg- mann og Halldór Gunnar spila í Borgarvirki á föstu- dagskvöldi. Boðið er upp á kvikmyndasmiðju námskeið, heimsmeistaramótið í klepp- ara fer fram, sameiginlegt lið Kormáks/Hvatar tekur á móti Kríu á Hvammstangavelli á laugardaginn og á sunnu- dagsmorgun verður strand- hreinsun og kaffimorgunn í samstarfi við Ocean Con- servancy. Ásgeir Trausti lokar svo hátíðinni með tónleikum í Ásbyrgi á Laugabakka á sunnudagskvöldið kl. 21:00. Ítarlegri dagskrá má finna á vef hátíðarinnar www. eldurihun.is. /LAM Enn aukum við gæðin & þjónustuna Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Nú höfum við tekið í gagnið nýja stafræna prentvél, Canon imagePRESS C700, sem skilar frábærum gæðum og gerir okkur kleift að auka enn við þjónustuna. Nú getum við rennt í gegn allt að 300g þykkum pappír, vélin getur prentað á allt að 70 blöð á mínútu og skilar frábærum myndgæðum. Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Með tilkomu Canon ImagePRESS C700 getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á hagstæðari, fjölbreyttari og skilvirkari þjónustu. Stafræn prentun hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru ekki að leita eftir miklu upplagi í prentun. Leitaðu ekki langt yfir skammt – kíktu í Nýprent! BÆKLINGAR ÁRSSKÝRSLUR BOÐSKORT PLAGGÖT EINBLÖÐUNGAR NAFNSPJÖLD MATSEÐLAR MARKPÓSTUR ný pr en t e hf / 0 32 01 8 Norðurland vestra Hundakostur lögreglunnar til lögreglustjórans á NV Morgunblaðið greindi frá því í síðustu viku að lögreglu- stjóranum á Norðurlandi vestra hafi verið falin umsjón með hundakosti lögreglunnar hér á landi. Morgunblaðið hefur undan- farið fjallað um aðgerðaleysi í málefnum fíkniefnahunda á landinu en í samtali við Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráð- herra, kemur fram að nú muni verða breyting á málaflokknum og tekið á málum af festu. Sigríður segir að öll lög- regluembættin á landinu verði framvegis í samstarfi við lög- reglustjórann á Norðurlandi vestra hvað hundakost varðar. „Aðstæður eru þannig að hann getur tekið við þessu og þannig verður þessu háttað. Hjá honum verður lögreglumaður sem mun taka þetta verkefni að sér og verður í raun þessi yfir- hundaþjálfari sem eitt sinn starfaði hjá ríkislögreglustjóra.“ Umræddur lögreglumaður mun vera Steinar Gunnarsson á Sauðárkróki. /FE Norðurland vestra Kirkjugarður finnst í Utanverðunesi Í sumar hefur verið unnið að rannsóknum á vegum Skagfirsku kirkju- og byggða- sögurannsóknanna í Hegra- nesi fjórða árið í röð en það er samstarfsverkefni Byggða- safns Skagfirðinga og forn- leifarannsóknastöðvarinnar Fiske Center í UMass Boston. Rannsóknirnar hafa þann tilgang að skoða aldur og dreifingu elstu byggðar í Hegra- nesi og tengsl byggðaþróunar við kirkjusögu svæðisins. Á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga segir að við rann- sóknina í sumar hafi m.a. fundist forn kirkjugarður í landi Utan- verðuness en í fyrra sýndu ratsjármælingar vísbendingar um mögulegan kirkjugarð rétt sunnan við garðinn kringum íbúðarhúsið. Vísbendingar um að þar hafi verið kirkja finnast í bréfi frá 14. öld þar sem segir að presturinn á Sjávarborg fái greitt fyrir að syngja messu í Keflavík, Utanverðunesi og á Hellulandi. Eru það einu ritheimildirnar sem fundist hafa en áður var upphækkun sem kallaðist Kirkjuhóll í túni sunnan bæjar- ins og voru sögusagnir um kirkjugarð tengdar hólnum. „Könnunarskurður var tek- inn í sléttuðu túni rétt sunnan við meinta kirkju samkvæmt jarðsjármyndinni. Í ljós komu mögulegar leifar veggjar sem hlaðinn hefur verið eftir 1104 og gætu verið leifar bænhússins frá 14. öld. Neðan 1104 gjóskunnar komu svo í ljós samskonar uppfyllingar torflög og fundist hafa í öðrum samtíða kirkjugörðum. Þessi lög hafa verið sett í garðana til að slétta úr misfellum í landslagi og til að auðvelda greftrun í þeim. Í uppfyllingarlaginu sáust svo útlínur einnar grafar. Á um 60 sm dýpi fundust svo leifar kistu og í henni beinagrind. Það er því ljóst að þarna hefur verið kirkjugarður á 11. öld sem hefur verið aflagður snemma þótt þarna stæði áfram bænhús a.m.k. fram á 14. öld,“ segir á heimasíðu Byggðasafns-ins. /FE Á myndinni má sjá staðsetningu könnunarskurðsins sem grafinn var á túni Utanverðuness. MYND: BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA Mynd tekin í gæðaúttekt á lögregluhundum sumarið 2016. Steinar Gunnarsson þriðji frá hægri. MYND: HÖSKULDUR B. ERLINGSSON 29/2018 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.