Feykir - 25.07.2018, Blaðsíða 4
AÐSENT Sigurður Páll Jónsson skrifar
Umhverfis og náttúruvernd. Uppbygging og samfélagsvernd
Að vera í sátt við guð og menn er
okkur hverju og einu oft mislagðar
hendur, en öll erum við
partur af náttúrunni og
getur drjúgur tími ævinnar
farið í að gera sér grein
fyrir því. Ein er sú tegund
sáttar sem við, er látum
okkur málin varða, erum
ekki á einu máli um en það
er hvernig staðið er að
samfélagsuppbyggingu og
þjónustu í dag.
Í mannfjöldaspá Hagstofu
Íslands er til næstu 50 ára spáð að
íbúafjöldi verði 452 þúsund samkvæmt
miðspá. Háspá gerir ráð fyrir 531 þúsund
en lágspá 367 þúsund. 1. janúar 2017 var
íbúafjöldi á landinu 338 þúsund. Birt eru
þrjú afbrigði af spám, það er
háspá, miðspá og lágspá sem
byggðar eru á mismunandi
forsendum um hagvöxt, frjó-
semishlutfall og búferlaflutn-
inga.
Hvernig sem rætist úr
þessari mannfjöldaspá inn í
framtíðina þá er það stað-
reynd í dag að misjafnt er eftir
því hvar á landinu þú býrð,
hvernig þjónustu þú færð og
þau fyrirtæki sem rekin eru
vítt og breytt um landið. Samgöngu-,
raforku-, heilbrigðismál og öll önnur
þjónusta, svo kallaðir innviðir eru ekki á
pari víða úti á landi miðað við það sem
þyrfti að vera nú á tímum.
Samgöngumálum og afhendingar-
öryggi raforku er víða ábótavant svo ekki
sé dýpra í árina tekið og oft er það vegna
umhverfis- og náttúruverndarsjónar-
miða. Ég vil taka það fram að sjálfur er ég
náttúruunnandi og ber mikla virðingu
fyrir umhverfismálum. Í mínu kjör-
dæmi, Norðvesturkjördæmi, hefur verið
til margra ára deilt um veglagningu um
Gufudalssveit á Barðaströnd (Teigskógs-
málið) og núna eru áform um Hvalár-
virkjun við Ófeigsfjörð á Ströndum að
sigla í þrætur. Víða á Vesturlandi eru
vegir í slæmu ásigkomulagi. Í Dalasýslu
eru um 70% malarvegir, svipaða sögu er
hægt að segja í Húnavatnssýslum. Á
Snæfellsnesi er raforkuflutningur ekki
tryggur, sömu sögu er að segja á
Vestfjörðum, þó hefur verið sett
varaaflstöð á Bolungarvík sem er
díseldrifin og varla getur það verið
vistvænn kostur þegar bæði vindur og
vatnsföll búa yfir hreinni orku.
Búsetuskilyrði hljóta í grunninn að
byggjast á þeirri aðstöðu sem býðst á
hverjum stað með góðum samgöngum,
raforkuafhendingaröryggi og auðvitað
allri þjónustu sem nauðsynleg er.
Sigurður Páll Jónsson.
Þingmaður Miðflokksins í
Norðvesturkjördæmi.
Hvernig nemandi varstu? Ég
var örugglega á iði. En átti frekar
auðvelt með að læra. Bara ekki
lengi í einu á sama stað.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Hvað mér
þótti slaufan sem ég var með
alveg ferlega ljót.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Bóndi og hesta-
maður.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki? Ég
lék mér mikið að Legói. Svo átti
ég bú sem mér þótti mjög gaman
að leika mér í.
Besti ilmurinn? Lyktin af blóm-
strandi blóðbergi.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Ég tengi
þetta tímabil við sveitaböll, lagið
Song2 með Blur og hljómsveitina
Quarashi.
Hvernig slakarðu á? Drekka kaffi
og lesa Bændablaðið.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Ætli það séu ekki
þættir tengdir náttúru og sögu.
Besta bíómyndin? Sódóma
Reykjavík. Hún er klassík.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Lionel Messi.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Grilla kjöt og
járna hesta.
Hvert er snilldarverkið þitt í eld-
húsinu? Andabringur í appelsínu-
sósu.
Hættulegasta helgarnammið?
Doritos með ostasósu og brædd-
um osti.
Hvernig er eggið best? Eggja-
hræra með beikoni og pylsum.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? Ekkert. Ég er eins og ég
er og hvernig á ég að vera eitthvað
annað.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Fólk sem missir
stjórn á skapi sínu.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Nú er bara að duga
eða, já nú er bara að standa sig
(úr myndinni Magnús).
Hver er elsta minningin sem
þú átt? Sennilega þegar ég
kúkaði í buxurnar á Þingvöllum
þegar ég var tveggja ára. Mér
fannst það mjög fyndið en öðrum
nærstöddum ekki.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? Ég hef engan
áhuga á því að vera einhver annar.
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Stóðhesta-
bókin.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Kemur í ljós.
Hvaða þremur persónum vildirðu
bjóða í draumakvöldverð? Myndi
bjóða Trump, Pútín og Kim Jong
Un, en hef ekki hugmynd um af
hverju. Ætli ég myndi ekki grilla
fyrir þá folaldakjöt.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Það væri
gaman að fara aftur til áranna í
kringum landnám Íslands og sjá
hvernig landið leit út.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Aftur á bak.
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Friðrik Már Sigurðsson.
ÁRGANGUR: 1980.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Sonju Líndal Þórisdóttur. Við eigum
tvö börn Jakob 7 ára og Margréti Þóru 1 árs.
BÚSETA: Lækjamót í Víðidal, Húnaþingi vestra.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Sonur Sigurðar Leifssonar
og Margrétar Árnýjar Sigursteinsdóttur. Fæddur í Kaup-
mannahöfn, uppalinn í Reykjavík. Svo hef ég mikil tengsl
í Skagafjörð þaðan sem pabbi er ættaður. Foreldrar mínir
eiga jörðina Hjaltastaðahvamm í Akrahreppi og þar dvelur
fjölskyldan oft.
STARF/NÁM: Sjálfstætt starfandi. Vinn við allt sem viðkemur
hestum, tamningu, þjálfun, kennslu, járningar, dóma o.s.frv.
Ég er með Diploma í tamningum og Diploma í þjálfun og
reiðkennslu frá Háskólanum á Hólum. B.Sc. í búvísindum
frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Svo stunda ég nám í
klassískum söng við Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Taka sæti í sveitarstjórn og byggðaráði í
Húnaþingi vestra. Næstu fjögur ár verða bæði spennandi og
krefjandi. Ég hlakka mikið til.
Friðrik Már
Friðrik Már Sigurðsson, Lækjarmóti í Víðidal. MYND ÚR EINKASAFNI
Sveitarfélagið Skagafjörður
Umsækj-
endur um
stöðu sveit-
arstjóra
Þrettán umsækjendur eru um
stöðu sveitarstjóra í Skagafirði
sem auglýst var laus til
umsóknar.
Umsóknarfrestur rann út
þann 15. júlí síðastliðinn. Fjórir
umsækjendur drógu umsókn
sína til baka.Umsækjendur eru
í stafrófsröð:
Áróra Jóhannsdóttir -
eigandi / sölumaður
Áskell Heiðar Ásgeirsson -
framkvæmdastjóri
Einar Örn Thorlacius -
lögfræðingur
Guðrún Pálsdóttir -
verkefnastjóri
Haukur Þór Þorvarðarson -
enskukennari
Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir -
nefndarmaður
Hugi Jens Halldórsson -
deildarstjóri einstaklingssölu
Linda Björk Hávarðardóttir -
vendor manager
Matthias Magnusson -
framkvæmdastjóri
Ólafur Rafn Ólafsson -
yfirsópur
Sigfús Ingi Sigfússon -
verkefnastjóri
Sveinbjörn Freyr Arnaldsson -
framkvæmdastjóri
Þórður Valdimarsson -
verkefnastjóri
Unnið er að því að yfirfara
umsóknir og stefnt er á að
viðtöl fari fram í vikunni. /LAM
4 29/2018