Feykir - 25.07.2018, Síða 11
EFTIRRÉTTUR
Pavlova
4 stk eggjahvítur
200 g sykur
1 tsk borðedik
½ tsk kartöflumjöl
Aðferð: Byrjið á því að stífþeyta
eggjahvíturnar og að því loknu er
sykrinum bætt saman við og stífþeytt
aftur. Blandið síðan edikinu og
kartöflumjölinu varlega saman við
með sleif. Þessu er síðan smurt á
bökunarpappír sem búið að er strika
21 sm hring í þvermál á.
Bakað við 130°C í u.þ.b. 1 klst. og
15 mín.
Til að fullkomna Pavlovuna þarf
góðan rjóma.
Rjómi:
2½ dl rjómi
1½ tsk sykur
½ tsk vanilludropar
Öllu blandað saman, þeytt og síðan
smurt ofan á Pavlovuna. Skreytið
Pavlovuna síðan að vild með góðum
berjum.
Hver elskar ekki nýbakað brauð!
Nýbakað brauð með smjöri og osti er
bara með því betra sem við fáum,
enda miklir sælkerar á þessu heimili.
Fljótlegt og einstaklega gott brauð.
RÉTTUR 3
Brauð
370 g gróft spelt
1 msk lyftiduft
1 tsk sjávarsalt
2 msk agave sýróp
350 ml möndlumjólk
Aðferð: Blandið þurrefnunum
saman. Vökvanum síðan bætt við og
hrært varlega þangað til deigið er
orðið eins og þykkur grautur. Hrærið
sem minnst (annars getur deigið
orðið seigt og illviðráðanlegt). Bakið í
brauðformi í um 45 mín. við 180°C.
Takið þá brauðið úr forminu og
bakið í 5-10 mín. til viðbótar.
Verði ykkur að góðu!
Ásdís Adda Ólafsdóttir og Sigurgeir
Þór Jónasson taka við áskorun um að
vera næstu matgæðingar.
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS::Fall.
Feykir spyr...
Hverju ætlar þú
ekki að missa af á
Eldi í Húnaþingi?
Spurt á Hvammstanga
UMSJÓN Lee Ann
„Ylju á Sjávarborg, Moses
Hightower, Sverri Bergmann
í Borgarvirki og hangover
brunch á sunnudaginn.“
Hrund Jóhannsdóttir
„Bjórjóga og Papaballinu á
laugardaginn.“
Hlynur Rikk
„Melló músíka, Papaballinu
og leikhópnum Lottu.“
Fanney Dögg Indriðadóttir
„Bestu tónleikahljómsveit
landsins; Moses Hightower.“
Sigurvald Ívar Helgason
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Það er aðeins eitt verra en að þjálfa upp starfmann og
missa hann en það er að þjálfa ekki upp starfsmann
og halda honum. – Zig Ziglar
Matgæðingar vikunnar eru að þessu sinni Ármann Óli Birgisson og
Matthildur Birgisdóttir sem eru fædd og uppalin hvort í sinni sýslunni,
Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði. Þau búa á Blönduósi ásamt
tveimur dætrum sínum og segja markmið sumarsins vera að njóta og
skapa fjölskylduminningar.
„Það er fátt skemmtilegra en að gæða sér á góðum mat í góðra vina
hópi en stundum er einfaldleikinn góður og þegar annríkið tekur völdin
getur verið gott að eiga mat í kistunni. Því ákváðum við að bjóða upp á
einfalt, fljótlegt og þægilegt þessa vikuna og síðast en ekki síst gott. Það
getur verið ansi þægilegt að eiga góðar kjötbollur til að grípa upp úr
kistunni eftir annasaman dag. Því er aðalréttur vikunnar bestu kjötbollur
sem við höfum smakkað. Við hreinlega fáum ekki nóg af þessum og það
besta við þær er að stelpurnar okkar elska þegar þetta er borið á
matarborðið. Við reynum að eiga alltaf kjötbollur í frystinum,“ segja
Matthildur og Ármann.
AÐALRÉTTUR
Litlar kjötbollur
1 kg nautahakk (eða það hakk
sem til er í kistunni)
1 bréf af púrrulaukssúpu
1 pakki Ritzkex
Aðferð: Myljið Ritzkexið mjög smátt
og blandið saman við hakkið ásamt
súpuduftinu. Því næst er að gera litlar
bollur, sirka munnbitastærð, og
steikja síðan á pönnu.
Sósa (miðast við 500 g af bollum):
1-2 flöskur Heinz Chili sósa
3-4 msk rifsberjahlaup
Aðferð: Þessu blandað saman og
hitað að suðu. Sósunni síðan hellt yfir
kjötbollurnar og þær hitaðar í ofni í
20-30 mín við 180°C.
Húsfreyjunni þykir heldur skemmti-
legra að baka en elda og er því vel við
hæfi að hafa tvo rétti sem þarf að
baka. Fyrst er það Pavlovan sem
hefur ansi oft verið borin á borð á
heimilinu, það er frekar fljótlegt að
hrista þessa fram úr erminni og bera
fram í eftirrétt.
Su
do
ku
Litlar kjötbollur,
Pavlova og
fljótlegt brauð
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Matthildur og Ármann Óli á Blönduósi matreiða
Ármann Óli og Matthildur. MYND ÚR EINKASAFNI
29/2018 11
Ótrúlegt – en kannski satt..
Alþýðulýðveldið Kína er fjölmennasta ríki veraldar með yfir
1,4 milljarða íbúa, sem jafngildir um fimmtungi mannkyns.
Þá er áætlað að um 34 milljónir fólks af kínverskum uppruna
búi utan Alþýðulýðveldisins. Ótrúlegt en satt, þá myndi röð
kínverskra íbúa aldrei taka enda ef þeir gengju framhjá þér,
vegna hraða æxlunar þeirra.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Finndu mig í fjörunni.
Fræðiorð í málvísi.
Gamanlaust í glímunni.
Grunnhugtak í stærðfræði.
FEYKIFÍN AFÞREYING