Feykir - 17.10.2018, Síða 10
Ingunn Ásdís Sigurðardóttir,
sem titlar sig sem sérkennara
á eftirlaunum, móður, ömmu,
vinkonu og margt fleira, hefur
lengi verið búsett á
Sauðárkróki og starfað sem
sérkennari við Árskóla. Ingunn
segir lestrarvenjur sínar hafa
tekið talsverðum breytingum í
tímans rás og listinn yfir
lesefni hennar er afar
fjölbreytilegur enda segist hún
eiga þó nokkur hundruð bóka í
bókahillum heimilisins.
Hvers konar bækur lestu helst?
Lestrarvenjur mínar hafa tekið
breytingum í gegn um tíðina.
Ég hef lesið heilmikið
af fræðibókum í tengslum
við starfið, kennslufræði og
kenningar um líðan barna,
birtingarmyndir og einkenni
ýmiss konar vanda, kenningar
greiningar og gagnleg úrræði.
Listinn gæti orðið langur!
Á álagstímum og þörf fyrir
eitthvað „róandi“ að lesa fyrir
svefninn var ég áður sólgin
í að lesa leynilögreglu- og
glæpasögur! Það gat reyndar
stytt svefntímann ef þær voru
mjög spennandi, en lesturinn
hvíldi samt hugann sem
annars var sífellt upptekinn við
vinnutengdar lausnaleitir.
Nú hef ég betri tíma og
nýt þess að lesa margs konar
reynslusögur og ferðabækur,
þó að notalegt „léttmeti“ sé
alla jafna á náttborðinu líka.
Ég las nýlega bókina Villt,
eftir Sheryl Strayed, sem Elísa
Jóhannsdóttir þýddi. Mæli með
henni. Nú er ég líka heilluð af
bókum Jenny Colgan í þýðingu
Ingunnar Snædal, um Litlu
bókabúðina í Hálöndunum
og bækurnar um Bakaríið við
Strandgötu.
Mér þykir gott að hlusta
á hljóðbækur í bílnum.
Góði dátinn Sveijk var lengi
ferðafélagi minn og ég saknaði
hans þegar bókin var búin. Nú
eru sögurnar hennar Guðrúnar
frá Lundi alltaf með í lengri
ferðum. Hæg framvinda sögu-
þráða þeirra tryggir að ég
keyri ekki yfir hámarkshraða á
meðan ég hlusta og lifi mig inn
í gamla tímann, sem hún lýsir
svo notalega.
Hvaða bækur voru í uppáhaldi
hjá þér þegar þú varst barn?
Sem barn og unglingur gleypti
ég í mig allar hefðbundnu
barna- og unglingabækurnar
sem bárust inn á heimilið og
þóttu „strákabækurnar“ ekki
lakara lesefni en þær sem voru
kyrfilega merktar stelpum. Af
„nýrri“ unglingabókum vil
ég nefna perlurnar Benjamín
Dúfu, eftir Friðgeir Erlingsson
og bækur Guðrúnar Helga-
dóttur. Bækur Ole Lund Kirke-
gaard um Gúmmí Tarsan, Fúsa
froskagleypi, Virgil litla o.fl.
standa líka alltaf fyrir sínu.
Bókaskápurinn hans afa
Þorbjörns, á bernskuheimili
mínu, geymdi margt forvitni-
legt. Afi hafði stundum þann
sið að strika undir það sem
honum þótti athyglisvert og
grípandi í bókunum og skrifa
athugasemdir á spássíurnar.
Halla og Heiðarbýlið eftir
Jón Trausta og sögur Þorgils
gjallanda báru allar þessi
merki og ég las þær af innlifun
sem barn. Svo hafði ég líka
dálæti á Þjóðsagnasafni Jóns
Árnasonar.
Hver er þinn uppáhaldsrit-
höfundur og hvers vegna? Ég
Ingunn Ásdís Sigurðardóttir. MYND ÚR EINKASAFNI
Uppáhaldsbækur Ingunnar: Blómálfabókin sem hún eignaðist þegar hún var á öðru
ári og Ævisögubrot hennar sjálfrar sem hún fékk þegar hún varð sextug.
MYND ÚR EINKASAFNI
( BÓK-HALDIÐ ) frida@feykir.is
Lætur Guðrúnu frá Lundi
passa upp á hámarkshraðann
Ingunn Ásdís Sigurðardóttir / Sauðárkróki
vel að nefna hér Guðrúnu
Helgadóttur. Hún hefur gefið
okkur dýrmætan bókmennta-
arf, sem við þurfum að hlúa að
og meta að verðleikum.
Hvaða bækur eru á náttborðinu
hjá þér þessa dagana? Þar
kennir nú ýmissa grasa:
Málkrókar eftir Mörð Árna-
son, Allar smásögur Tolstoys í
þýðingu Gunnars Dal, Svar
Soffíu, þýdd af Ingibjörgu Elsu
Björnsdóttur, Vitu og Benedikt
S. Lafleur, Harry Potter og
fanginn frá Azkaban eftir J.K.
Rowling, Árið sem tvær
sekúndur bættust við tímann í
þýðingu Ingunnar Snædal,
Konan í blokkinni eftir Jónínu
Leósdóttur og Húnavaka 2018
halda mér félagsskap núna.
Ertu fastagestur á einhverju
bókasafni? Við hjónin notum
Héraðsbókasafn Skagfirðinga
mjög mikið.
Áttu þér uppáhaldsbókabúð?
Það er alltaf nærandi fyrir
sálina að koma í „alvöru“
bókabúðir með notalegu and-
rúmslofti. Bókastaflar á borð-
um stórverslana sem alla jafna
selja matvöru o.þ.h. freista mín
hins vegar ekki.
Hvað kaupirðu eða eignast að
jafnaði margar nýjar bækur yfir
árið? Vegna plássleysis er ég
hætt að „safna“ bókum, en nýti
mér bókasöfn og skiptibóka-
markaði í staðinn. Eignast
samt 3-4 á ári.
Hefur einhver bók sérstakt gildi
fyrir þig? Nefni hér tvær bæk-
ur sem eru mér hjartfólgnar:
Fyrstu bókina sem ég eignaðist
„sjálf “ fékk ég frá afa á Hofi er
ég var á öðru ári. Hún heitir
Blómálfabókin og var þýdd af
Freysteini Gunnarssyni. Marg-
lesin og skoðuð en ber
aldurinn vel. Hina bókina gáfu
synir mínir og fjölskyldur
þeirra mér er ég varð sextug.
Hún ber nafn mitt og undir-
titilinn Ævisögubrot. Mjög
persónuleg bók og stútfull af
dýrmætum minningum.
Ef þú ættir að gefa einhverjum
sem þér þykir vænt um bók,
hvaða bók yrði þá fyrir valinu?
Það færi algerlega eftir
persónunni. Ástarljóð Páls
Ólafssonar kæmu til greina,
eða Perlur úr ljóðum íslenskra
kvenna, sem Silja Aðalsteins-
dóttir valdi.
Markviss 30 ára
Fagnar með
byssu-
sýningu á
Blönduósi
Afmælissýning Skotfél-
agsins Markviss verður
haldið næsta laugardag 20.
Október í Félagsheimilinu
á Blönduósi.
Þar verður dregið fram í
dagsljósið það helsta úr eigu
félagsmanna og segir í
tilkynningu að fjölbreyti-
leikinn sé í fyrirrúmi, her-
rifflar, skammbyssur, veiði-
byssur, keppnisbyssur,
byssur smíðaðar af Jóni
Þorsteinssyni og Jóni
Björnssyni o.fl. Byssusýning
er í tilefni af 30 ára afmæli
félagsins.
Daginn eftir verður efnt
til Rjúpnafjörs 2018 sem er
árlegt gleði og grínmót
Markviss og sagt er óhefð-
bundnasta skotmót ársins
hérlendis, ef ekki í gjörvallri
Norður-Evrópu.
„Nánari uppsetning og
útfærsla er algert trúnaðar-
mál en skýrist upp að vissu
marki á mótsdegi. Hvetjum
alla sem vettlingum, húfum
og öðru lauslegu geta valdið
(t.d. haglabyssum) til að
taka þátt í þessu bráð-
skemmtilega móti,“ segir á
Facebooksíðu félagsins. /PF
SSNV
Hefurðu áhuga
á að virkja
lækinn þinn?
Smávirkjanasjóður
SSNV auglýsir eftir
umsóknum í Skref 1 sem
er frummat smávirkjana.
Tilgangur sjóðsins er að
styrkja fyrstu skrefin í
rannsóknum á mögulegum
rennslisvirkjunum á
Norðurlandi vestra sem eru
undir 10 MW að stærð.
Miðað er við fyrirliggj-
andi yfirlit á mögulegum
rennslisvirkjunum sem upp
eru taldir í skýrslu Mannvits
2018: Frumúttekt á smá-
virkjanakostum á Norður-
landi vestra. Þó er heimilt að
bæta við fleiri virkjunar-
kostum með samþykki
SSNV. Sjá nánar á ssnv.is /PF
10 39/2018