Feykir - 31.10.2018, Page 1
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Á fundi atvinnu-, menningar- og
kynningarnefndar í síðustu viku var
lagt fram bréf frá Safnaráði varðandi
eftirlitsferð vegna nýs varðveislurýmis
Byggðasafns Skagfirðinga að
Borgarflöt á Sauðárkróki. Gerðar eru
athugasemdir við langtímavarðveislu
gripa í húsnæðinu hvað varðar
eldvarnir, mögulegt vatnstjón og
mengunarhættu einkum vegna
bifreiðaverkstæðis við hliðina á
varðveislurýminu.
Að ósk Byggðasafns Skagfirðinga
sendi Safnaráð forvörð úr eftirlitsnefnd
til að skoða aðstæður verðandi nýs
geymsluhúsnæðis Byggðasafnsins að
Borgarflöt 17 - 19, en þegar er búið að
opna bifreiðaverkstæði í næsta bili við
það rými sem er ætlað sem geymslu-
húsnæði safnsins. Nathalie Jacqueminet
forvörður heimsótti safnið nýverið og
skilaði Safnaráði skýrslu en heimsóknin
var hluti af eftirliti Safnaráðs með viður-
kenndum söfnum.
„Safn sem ekki uppfyllir kröfur getur
misst viðurkenningu Safnaráðs, en slík
viðurkenning er meðal annars forsenda
þess að hægt sé að sækja um rekstrarstyrki
úr Safnasjóði. Nathalie kemst að því að
ljóst sé að nokkur atriði viðkomandi
langtímavarðveislu gripa yrðu ekki
uppfyllt í nýju húsnæði að Borgarflöt
17-19, til dæmis hvað varðar eldvarnir,
mögulegt vatnstjón og mengunarhættu
og uppfylla þar af leiðandi ekki skil-
yrði Safnaráðs hvað varðar húsnæði
viðurkenndra safna,“ segir Berglind
Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns
Skagfirðinga. Hvetur Safnaráð eigendur
Byggðasafns Skagfirðinga til að gera við-
eigandi ráðstafanir varðandi geymslu-
húsnæði safnsins, þannig að það uppfylli
skilyrði Safnaráðs um viðurkennd söfn.
Lóðin skilgreind
sem iðnaðarlóð
Atvinnu-, menningar- og kynningar-
nefnd Svf. Skagafjarðar harmar það að til
standi að starfrækja bifreiðaþjónustu við
hliðina á bráðabirgða varðveislurými
Byggðasafnsins sem setur varðveislumál
í uppnám og hyggst skoða málið til hlítar
og leita lausna.
Berglind segir rekstur bifreiðaverk-
stæðis á þessum stað hafa komið á
óvart þar sem upphaflega hafi verið
gert ráð fyrir geymslum og frístunda-
húsnæði í byggingunni en stutt er
síðan húsnæðisbilin voru afhent nýjum
eigendum. Segir Berglind að verið sé að
skoða hvað hægt sé að gera en ekki er
búið að leysa málið.
Pétur Jóhannsson, eigandi Áka, sagði
í samtali við Feyki að hvergi hafi það
komið fram er bilin voru auglýst til sölu
að ekki mætti vera með atvinnustarfsemi
í húsinu, hvorki bílaverkstæði né annað.
„Eðlilegt er að hver og einn sinni sínu
bili og sæki um það sem hann þarf fyrir
sína eign eða starfsemi. Sveitarfélagið
lætur eins og það eigi húsið og vilji ráða
því hvað sé gert í því. Ég sinni mínu bili
og aðrir verða að sinna sínu. Lóðin er
skilgreind sem iðnaðar og athafnalóð og
bilin seld sem iðnaðarbil,“ segir Pétur. /PF
Geymslurými Byggðasafns Skagfirðinga í uppnámi í nýju húsi
Bifreiðaverkstæði setur strik í reikninginn
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Í bili tvö og þrjú frá vinstri eru geymslur Byggðasafnsins en Áki bifreiðaþjónusta er í fjórða bili þar sem dyrnar standa opnar. MYND: PF
ÁTAKSVERKEFNI KRABBAMEINFÉLAGSINS
Hér er laust pláss!
Hafðu samband í síma 455 7171
og tryggðu þér frábæran stað
til að minna á þig eða fyrirtækið þitt
– Feykir er sprækur sem lækur!
41
TBL
31. október 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–8
BLS. 10
Liðskynning Tindastóls
Leikmenn meistara-
flokks karla
kynntir
BLS. 9
Ofurhetjan Vala Mist Valsdóttir
16 aðgerðir og
18 svæfingar á
21 mánuði
Guðný Hrund Karlsdóttir
á Hvammstanga stýrir
áskorendapennanum
Ertu að reima
skóna þína rétt
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Stórprent í toppgæðum
Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og
plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum