Feykir - 07.11.2018, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
42
TBL
7. nóvember 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Þegar allt er eins og það á að vera
Saga af sauðburði
Stundum rekumst við á
skemmtilegar Facebook-
færslur og þessi er ein
þeirra. Hafdís Brynja
Þorsteinsdóttir, Haddý,
sauðfjárbóndi með meiru
á Hvalshöfða í Hrútafirði,
setti þessa færslu inn
þann 22. október og gaf
okkur góðfúslegt leyfi til
að birta:
„Eins og mér finnst nú
alltaf gaman að vera bóndi,
þá er einn dagur á ári sem
mér finnst ömurlegur og
það er þegar maður er að
taka gömlurnar sínar frá til
að fara í hvíta húsið.
Ég á mér eina uppáhalds-
kind sem var á sínum tíma
nefnd eftir ödru uppáhaldi
og kölluð Gudda. Gudda
þessi er níu vetra og hefði
því átt að fara í ferðina
löngu í fyrra en sökum
þess að hún hugsar svo vel
um sig, drekkur helst ekki
vatn úr vatnsstokknum,
heldur beint úr krananum
og gerir svo reglulega
teygjuæfingar með því að
setja framlappirnar uppá
vegginn milli króa og
teygir á líkamanum, fékk
hún bónus ár og líka vegna
þess að bændurna langaði
til að fá kannski
lífgimbrasett undan henni
þetta árið. En í vor tókst
svo illa til að Gudda greyið
lét tveimur lömbum í apríl
þannig að sú von fauk út í
vorið með sunnanáttinni.
En aftur að deginum. Við
rákum inn í gær og fórum
svo í gegnum féð í dag og
Gudda beið örlaga sinna
ásamt fleirum.
Við áttum von á fjárbílnum
um miðjan dag, en það
dróst eins og getur gerst
þegar þarf að sækja fé
langar leiðir. En svo kom
hann um níuleytið og er að
bakka að húsunum en ég
var ofaní krónni hjá ánum
þegar ég heyrði hljóð sem
maður heyrir nú yfirleitt
ekki nema á vorin. Kumr í
kind. Það var hún Gudda
mín og út úr henni stóð
löpp og haus á lambi.
Mikið svakalega varð ég
glöð þegar ég kippti henni
og lambinu yfir í aðra kró
og lá við að ég hoppaði af
gleði þangað til ég gat sagt
Róbert fréttirnar og hann
varð ekki minna kátur.
Skömmu seinna fæddist
svo önnur drottning.“
Það er ekki að undra að
þau hjón, Haddý og
Róbert, hafi glaðst enda
mátti varla tæpara standa.
„Rabbi á rollubílnum var
kysstur fyrir að koma
svona seint því mig langar
ekki að hugsa þá hugsun til
enda ef hann hefði verið
fyrr á ferðinni. En Guddan
verður dekruð í drasl með
heyi og fóðurbæti,“ bætir
Haddý við.
/FE
Meiri jákvæðni í íþróttir
UMFÍ
Breyta þarf orðræðunni í íþróttum til að byggja upp
jákvætt andrúmsloft. Þetta segir dr. Viðar Halldórsson,
dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann mælir
með því að fólk hætti að nota orð eins og klúður og
mistök og skipti þeim út fyrir tilraunir.
Viðar var á meðal fyrirlesara á ráðstefnunni „Jákvæð
íþróttamenning“ sem ÍSÍ og UMFÍ héldu undir
merkjum verkefnisins Sýnum karakter í síðustu viku.
Fjölmargir forvitnilegir fyrirlestrar voru á ráðstefnunni
en upptaka af henni verður fljótlega birt á vefsíðunni
www.synumkarakter.is. /PF
Gudda með drottningunum sínum tveimur.
MYND: KARL B. ÖRVARSSON
Feykir.isFjörið er á...