Feykir - 21.11.2018, Qupperneq 6
Pála Margrét Gunnarsdóttir er 24 ára dama, fædd og uppalin á Sauðárkróki þó hún segi
reyndar hjartað eiga heima á mun fleiri stöðum. Hún er dóttir Gunnars Þórs Gestssonar
og Guðnýjar Guðmundsdóttur og elst þriggja systra. Það er sennilega hægt að fullyrða
að Pála Margrét lifir ekki alveg þessu týpíska lífi sem flestir lesendur Feykis þekkja. En
nú verðum við að átta okkur á því að það sem var óhugsandi fyrir örfáum árum þykir
sjálfsagt í dag og unga fólkið lærir nú það sem það langar til, þar sem það langar til. Já og
heimurinn kemst mest allur fyrir í litlu snjalltæki sem við erum flest með í vasanum.
Pála Margrét fyrir utan staðinn sem hún dvaldi á á eyjunni Koh Samui í Taílandi en eyjan þykir mörgum með fegurri stöðum jarðar. MYNDIR ÚR EINKASAFNI
( DAGUR Í LÍFI BROTTFLUTTRA ) oli@feykir.is
Pála Margrét Gunnarsdóttir / Króksari á faraldsfæti og -höndum á Koh Samui
leiðslu sem er sérstök tegund
hugleiðslu sem nú er hægt að
stunda í hugleiðslusetrum víðs
vegar um heiminn. – Þetta líf,
þetta líf, eins og einhver sagði.
Þó Pála væri á förum frá
Taílandi til Malasíu þegar
Feykir náði í skottið á henni
var hún meira en til í að greina
frá dvöl sinni á eyjunni Koh
Samui, sem er eyja í suður
Taíandi. „Satt best að segja þá
gæti þetta verið minnst taí-
lenski staðurinn til að vera á,“
segir Pála. „Það er mjög mikill
túrismi hér og í raun snýst allt
líf á eyjunni í kringum túrisma.
Þar af leiðandi er mjög mikið
um jóga hér líka og jógakenn-
aranám. Þetta er paradísar-
eyja, en vegna þess þá er hún
líka mjög vinsæll ferðamanna-
staður.“
Konungsríkið Taíland er
ríflega 510 þúsund ferkíló-
metrar að stærð og á landamæri
að Laos í norðri, Kambódíu í
suðaustri, Malasíu í suðri og
Mianmar í vestri. Risinn Kína
lúrir lengra í norðri. Taíland er
eina ríki Suðaustur Asíu sem
hefur aldrei verið undir stjórn
Evrópuríkja. Rétt tæplega 95%
íbúa eru búddatrúar. Lítið er
vitað um uppruna jóga en þó er
talið að það eigi uppruna sinn í
Pála Margrét er jógakennari og
meistaranemi í foreldrafræðslu
og uppeldisráðgjöf. Síðustu
misserin hefur hún verið á
þeytingi um heiminn endi-
langan við jóganám.
Pála segir að þegar jóga
færðist frá austri til vesturs [frá
Himalaya til Vesturlanda] voru
það aðallega líkamlegu æfing-
arnar sem fólk nýtti sér, sem er
ástæðan fyrir því að fólk í dag
þekkir jóga að mestu sem
teygjur fyrir líkamann, sem er í
raun langt frá upphaflegu
markmiði jóga. „Markmiðið
með jóga er að öðlast enlighten-
ment sem erfitt er að þýða yfir á
íslensku, felst í sameiningu við
æðri mátt heimsins, sem sumir
kalla guð og aðrir kalla öðrum
nöfnum. Allar æfingar í jóga
voru þróaðar til þess að hreinsa
og stilla hugann og vekja upp
orku innra með okkur sem
getur sameinað okkur þessari
æðri orku,“ segir Pála. Það er
þessi andlega hlið jóga sem
hún hefur verið að kafa í
síðustu misserin.
Feykir frétti af Pálu í Tæ-
landi nú í október og þó svo að
Pála hafi ekki fasta búsetu þar
þá þótti athugandi að vita hvort
hún væri til í að deila með
okkur degi í lífi brottflutts.
Heppnin var með því hún var
með aðgang að tölvu þegar
Feykir bankaði upp á í net-
heimum, en þá voru aðeins
nokkrir dagar í að hún hæfi 10
sólarhringa Vipassana hug-
Hamingjan er val.
Ferðalaginu lýkur aldrei
Með skírteinið og meistaranum Andrey Lappa, sem kenndi námskeiðið á Koh Samui.
6 44/2018