Fréttablaðið - 22.04.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —9 4 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . A P R Í L 2 0 2 0
Boost í skál ...
Það má alveg!
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynntu annan pakka aðgerða til þess að
sporna við efnahagslegum skakkaföllum af völdum COVID-19 faraldursins, í Safnahúsinu við Hverfisgötu síðdegis í gær. Enn f leiri aðgerðir verða boðaðar í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VIÐSKIPTI Breska fjártæknifyrir
tækið Rapyd, sem hefur keypt
Korta, áformar að fjárfesta háum
fjárhæðum í uppbyggingu á starf
semi íslenska fyrirtækisins.
„Eitt af því fyrsta sem við hyggj
umst gera er að ráðast í verulega
fjárfestingu á íslenska markaðin
um og við munum líklega tvöfalda
starfsmannafjölda Korta,“ segir
Arik Shtilman, forstjóri Rapyd, en í
dag starfa 40 manns hjá Korta. Ráða
á sérhæft starfsfólk þannig að Korta
verði miðstöð vöruþróunar Rapyd í
Evrópu. – þfh / sjá Markaðinn
Tvöfalda fjölda
starfsmanna
Arik Shtilman,
forstjóri Rapyd
STJÓRNMÁL Formenn stjórnar
andstöðuf lokkanna munu styðja
aðgerðir í öðrum aðgerða pakka
ríkisstjórnarinnar vegna COVID
19 faraldursins en telja að ekki sé
nóg að gert.
Logi Már Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir aðgerðirn
ar í heild sinni allt of smáar og stórir
hópar verði út undan. „Það virðist
sáralítið vera gert fyrir heimilin,
sem einnig verða fyrir tekjufalli,“
segir Logi og nefnir hækkun
atvinnuleysisbóta og frystingu
lána sem leiðir. „Sveitarfélögin,
sem eru risastór eining, virðast líka
gleymast. Þess er krafist að þau auki
kostnað án þess að geta aflað tekna
á móti. Þetta gengur ekki upp.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, segir að hún
hafi búist við meiru í ljósi þess
að mánuður sé liðinn frá síðasta
aðgerðapakka.
„Við töldum að ríkisstjórnin
ætlaði að hafa skref in stór og
afgerandi eins og ráðherrar hafa
ítrekað boðað. Annað hefur komið
á daginn. Það eru ákveðin von
brigði,“ segir Þorgerður Katrín.
„Mér finnst ríkisstjórnin vera svo
lítið föst í því að ýta skaf linum á
undan sér í stað þess að ráðast í að
moka hann.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugs
son, formaður Miðf lokksins, tekur
í sama streng. Þörf sé á umfangs
meiri aðgerðum fyrir ferðaþjón
ustuna. „Ég velti því fyrir mér hvort
þær verði þess eðlis að vakúm
pakka þessi fyrirtæki og þau sett í
frost til að hægt sé að taka þau upp
fersk aftur þegar markaðurinn
opnast.“
Hann setur stórt spurningar
merki við útfærsluna á 350 millj
óna króna styrk til einkarekinna
fjölmiðla. „Það er ekki vanþörf á.
Svo fylgir sögunni að ráðherrann
fái heimild til að setja reglugerð
um hvernig ráðherrann skiptir
peningunum á milli fjölmiðlanna,
það finnst mér ótrúlegt,“ segir Sig
mundur. „Ég ætlaði varla að trúa
þessu og ég held að við hljótum að
taka þetta upp í þinginu.“
– khg, ab / sjá síðu 6
Telja ekki nóg að gert
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna munu styðja þær aðgerðir sem boðaðar
voru í gær en telja þær of smáar í sniðum og að margir hópar verði útundan.VIÐSKIPTI Fimm íslenskir lífeyrissjóðir, sem fara með meirihluta í
Bakkastakka, félagi sem heldur
utan um milljarða króna f jár
festingu þeirra í kísilverinu PCC á
Bakka, hafa lækkað mat sitt á virði
hlutafjár sjóðanna í kísilverinu um
á bilinu 75 til 100 prósent.
Þá hefur Íslandsbanki, næst
stærsti hluthaf i Bakkastakks,
sömuleiðis fært eign sína „töluvert
niður“ en í svari til Markaðarins
segist bankinn ekki vilja gefa upp
um hversu mikið. Niðurfærslan
kemur til vegna mikillar óvissu í
rekstri PCC.
Samtals hafa lífeyrissjóðirnir,
ásamt Íslandsbanka, fært niður
hlutafé sitt í PCC um liðlega tvo
milljarða en þeir lögðu kísilverinu
upphaflega til nærri 2,5 milljarða í
hlutafé 2015. – hae / sjá Markaðinn
Færa niður virði
hlutafjár í PCC
um milljarða