Fréttablaðið - 22.04.2020, Page 2

Fréttablaðið - 22.04.2020, Page 2
Veður Hæg breytileg átt í dag og bjart með köflum, en sunnan 5-10 m/s og smáskúrir um vestan- vert landið. Hiti 5 til 15 stig að deginum, hlýjast austanlands. SJÁ SÍÐU 16 Losað úr lóninu Með því að auglýsa í Atvinnublaðinu nær þitt fyrirtæki til 89% lesenda dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu. SMÁDÝR Árlega koma upp allnokk­ ur tilvik þar sem flær valda usla á heimilum fólks, yfirleitt í rúmum og að nóttu til. „Flær lifa helst í grenj­ um dýra eða hreiðrum enda halda dýrin sig þar helst og heimsækja þann stað aftur og aftur. Rúmið er því rökréttur staður fyrir f lærnar ef þær vilja komast í tæri við okkur,“ segir Karl Skírnisson, sníkjudýra­ fræðingur hjá Háskóla Íslands. Að sögn Karls skiptast f lær í tvo flokka á Íslandi. Annars vegar spen­ dýraflær sem finnast helst á haga­ músum og brúnrottum og fugla­ f lær sem, eins og nafnið gefur til kynna, sækja helst í fugla. Alls eru fimm tegundir spendýraf lóa hér­ lendis og  fimm tegundir fuglaflóa. Algengust er svokölluð starafló eða hænsnaf ló en einnig dúnf ló sem flestir dúnbændur landsins þekkja af illu einu. Helst eru það flærnar sem sækja í fugla sem angra okkur mannfólkið „Ég hef aldrei greint spendýrafló á heimili en árlega greini ég talsvert af fuglaflóm. Ástæðan er líklega sú að nagdýrin fá ekki að vera í friði í nálægð við mannabústaði. Rott­ urnar eru að mestu lokaðar niðri í holræsum og mýs eru ekki beint velkomnar á heimilum fólks,“ segir Karl. Fuglar verpa hins vegar oft nærri mannabústöðum, sérst ak lega nýlegir landnemar eins og starrinn. Þessi nálægð getur orðið til þess að flærnar leggist á menn. Lífsferill fuglaflóa er á þá leið að flóin heldur til í hreiðri fuglsins og sýgur þar blóð úr stálpuðum fuglum og ungum. Flóin verpir eggjum í hreiður og örsmáar hvítar lirfur, eða eins konar maðkar, líta dagsins ljós. Þessar lirfur lifa á skít, í bókstaflegri merkingu, og að endingu púpast þær. Þegar fuglarnir yfirgefa hreiðr­ ið hafa púpurnar hægt um sig þar til einhver hreyfing kemst á hreiðrið að ári. Þá klekjast púpurnar út sem flær og sama hringrás hefst. „Ef engin afskipti eru höfð af hreiðrum þá gengur þessi hringrás svona. Flóin fer bara á f lakk ef hún kemst ekki lengur í blóðið í fuglinum,“ segir Karl. Nefnir hann sem dæmi að hreiður spörfugla eru oft lokuð af þegar þeirra verður vart við mannabústaði. „Þá skyndilega svelta flærnar og leita sér að öðrum valkostum. Flærnar eru mjög blóð­ þyrst ar og smakka á öllu sem þær komast í tæri við. Þá eiga þær til að fara inn á heimili fólks og valda þar yfirleitt usla,“ segir Karl. Þá er einnig mjög algengt að heim il is kettir komist í hreiður fugla og beri þannig flærnar inn á heimili fólks. Að sögn Karls er besta leiðin í baráttu við flær að fjarlægja hreið­ ur nálægt húsum eftir að fuglarnir hafa yfirgefið það. Flær lifa bara í nokkrar vikur og því ólíklegt að þær sem eru í fullu fjöri þetta vorið eða sumarið muni leita annað eftir að fuglarnir hverfa á braut. Það er kyn­ slóð næsta árs sem fólk þarf að hafa áhyggjur af. bjornth@frettabladid.is Fuglaflær farnar að valda usla á heimilum Nú er sá tími ársins runninn upp að flær geta gert vart við sig í híbýlum fólks. Að sögn sníkjudýrafræðings koma árlega upp nokkur slík tilvik hérlendis. Helst eru það fuglaflær sem herja á fólk og kunna þær best við sig í rúmum. Fuglaflóin, Ceratophyllus gallinae, er bráðhuggulegt dýr með mikinn stökkkraft. Flærnar eru mjög blóðþyrstar og smakka á öllu sem þær komast í tæri við. Karl Skirnisson, sníkjudýrafræð- ingur Á hverju vori er lón Árbæjarstíflu tæmt, en tilgangurinn með því er að tryggja fiskgengd í gegnum stífluna yfir sumarmánuðina. Rennsli um Elliðaárnar mun því aukast nokkuð á meðan lónið tæmist. Svæðið er hættulegt vegna vatnsstraumsins og þá sérstaklega á meðan lónið tæmist. MYND/ANTON BRINK K JARAMÁL Atkvæðagreiðsla um verkfall félagsmanna Ef lingar sem starfa hjá Kópavogsbæ, Sel­ tjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hvera­ gerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfusi hefst klukkan 13 í dag. Mun rafræn atkvæðagreiðsla standa fram á mánudag. Greidd verða atkvæði um tillögu samninganefndar Eflingar gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélaga um ótímabundið verkfall sem tæki gildi á hádegi þriðjudaginn 5. maí. Fyrri verkfallsaðgerðum félags­ manna Ef lingar hjá umræddum sveitarfélögum var frestað 25. mars síðastliðinn vegna COVID­19 far­ aldursins. Boðun þess verkfalls sem hófst 9. mars var samþykkt með 87 prósentum atkvæða. Kjarasamningur aðila rann út 31. mars 2019. Síðasti samningafundur hjá Ríkissáttasemjara í deilunni var haldinn 24. mars síðastliðinn. – sar Verkfall gæti hafist að nýju 5. maí hjá Eflingu SAMFÉLAG Fjölskylduhjálp Íslands mun úthluta matvælum til þeirra sem á þurfa að halda á morgun, föstudag og á laugardag. Ásgerður Jóna Flosadóttir, for­ maður Fjölskylduhjálpar, segir að einungis verði tekið við umsóknum frá íbúum í póstnúmerum 101­116 fyrst um sinn vegna takmarkaðs f jármagns. Fólk getur sótt um úthlutun á heimasíðu Fjölskyldu­ hjálpar. Ásgerður seg ir g r íðarlegan fjölda fólks vera í mikilli neyð og að margir séu komnir á ystu nöf. „Við höfum fengið fjöldann allan af tölvupóstum og skilaboðum frá fólki sem veit ekki sitt rjúkandi ráð, grætur jafnvel í símtölum til okkar,“ segir hún. „En fólk getur sótt um hjá okkur og svo sótt til okkar mat. Við munum fylgja öllum reglum og gæta allra varúðarráðstafana, hér verða tveir metrar á milli manna og engin snerting á milli fólks.“ Þeir sem hljóta matarúthlutun fá tölvupóst eða sms um það hvenær þeir geta nálgast sína úthlutun. „Þá verðum við búin að gera allt tilbúið fyrir viðkomandi sem þarf ekki að gera annað en að sækja,“ segir Ásgerður. – bdj Margir komnir í mikla neyð Ásgerður Jóna segir marga í neyð. Einungis er tekið við umsóknum frá fólki í póstnúmerum 101 til 116 vegna fjárskorts. 2 2 . A P R Í L 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.