Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.04.2020, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 22.04.2020, Qupperneq 8
Mótmælendur virða tveggja metra regluna Um 2.000 ísraelskir mótmælendur mættu á Rabin torgið í borginni Tel Avív til að mótmæla spillingu stjórnvalda. Mótmælendurnir notuðu farsímaljós til að vekja athygli á málstaðnum. Eins og sjá má á myndinni virtu f lestir tveggja metra regluna um samskiptafjarlægð. MYND/EPA BANDARÍKIN Donald Trump Banda- ríkjaforseti hyggst bjarga olíu- og gasframleiðslurisum þar í landi í kjölfar COVID-19 faraldursins. Í tísti í gær lofaði hann að ráðherrar orkumála og fjármála myndu setja saman aðgerðapakka til að tryggja fyrirtækjum iðnaðarins örugga framtíð. „Við munum aldrei bregðast hinum frábæra olíu- og gasiðnaði Bandaríkjanna,“ sagði Trump. H a n n t í s t i f r e k a r u m þjóðaröryggismál því fyrr um daginn sagðist hann ætla að loka landinu tímabundið fyrir innflytj- endum. „Í ljósi árásar þessa ósýni- lega óvinar og einnig vegna skyldu okkar að vernda störf okkar frá- bæru íbúa,“ sagði hann í tístinu áður en hann lofaði að skrifa undir forsetatilskipun þessa efnis. Verð á bandarískri hráolíu hrundi á mánudag og varð neikvætt í fyrsta sinn í sögunni. COVID-19 faraldurinn hefur orðið til þess að eftirspurn eftir olíu hefur nær þurrkast upp á sama tíma og olíu- tankar víða í Bandaríkjunum eru óðum að fyllast. Markaðir tóku við sér í gær en verðið var þá enn þá sögulega lágt, einungis 12 dollarar á hverja tunnu. Í byrjun árs var verðið nær 60 dollurum. – así Vill tryggja olíuiðnaði örugga framtíð Donald Trump, forseti Bandaríkjanna RÚSSLAND COVID-19 faraldurinn breiðist hraðast um Rússland þessa dagana miðað við uppgefnar tölur um smit. Í gær komu upp 5.642 tilfelli í landinu en tæplega  53 þúsund tilfelli eru greind í heildina og rúmlega 450 staðfest andlát. Marga grunar þó að útbreiðslan sé mun meiri og gagnrýni á Vladimir Pútín, forseta landsins, eykst. Rússland hefur ekki verið mikið í faraldursdeiglunni fram að þessu vegna fárra tilfella. Fyrstu til fell in komu þó upp snemma í faraldrinum, í lok janúar. Lang- f lest tilfellin hafa komið upp í höfuðborginni Moskvu og nágrenni hennar, eða rúmlega 36 þúsund. Aðeins 2 þúsund tilfelli hafa kom- ið upp í Sankti Pétursborg, næsts- tærstu borginni, en rúmlega  500 tilfelli hafa komið upp í hinu mjög fámenna Komi héraði í norðurhlutanum. „Það er að verða nokkuð ljóst að rússnesk yfirvöld vanmátu hættuna af COVID-19. Viðbrögðin voru of sein og þess vegna sjáum við nú mik- inn fjölda nýrra tilfella,“ segir And- rius Tursa, sérfræðingur um málefni Austur-Evrópu, í samtali við CNBC. „Raunveruleg útbreiðsla víðs vegar um Rússland gæti verið umtalsvert hærri en tölurnar segja til um, því að efasemdir eru uppi um áreiðanleika prófana og rússnesk yfirvöld eiga langa sögu yfirhylmingar á stórum atvikum.“ Nærtækast er vitaskuld yfirhylmingin á kjarnorkuslysinu í Chernobyl árið 1986. Eins og víðs vegar um heim hafa harðar takmarkanir og útgöngu- bann verið sett á í Rússlandi. Pútín sjálfur hefur þó reynt að halda sig til hlés og látið ríkisstjóra í einstökum héröðum um að ákveða og boða aðgerðir, sem eru síst líklegar til að af la vinsælda. Stjórnmálaskýrendur segja að þó að þessi aðferð forsetans virki að einhverju leyti, þá glati hann samt þeirri stöðu að sýnast sterkur leiðtogi á krísutímum. Í Rússlandi óttast margir að heil- brigðiskerfið muni ekki ráða við faraldurinn, ef hann nær sömu hæð- um og gerðist á Spáni og Ítalíu, og er nú að gerast í Banda ríkjunum. Rúss- neska heil brigð is kerfið sé þegar mjög undir fjár magn að og helmingi færri spítalar nú en þegar Pútín tók við árið 2000. Birgðaskortur er mikill á rúss neskum spítölum og búnaður gamall og úreltur. Það var ekki fyrr en 15. apríl sem Pútín veitti héröðum aukafjármagn til að takast á við útbreiðsluna og í lok mars var hafist handa við að byggja 16 sérstaka bráðabirgðaspítala. Pútín sjálfur er hins vegar ekki aðeins gagnrýndur fyrir sein við- brögð við faraldrinum sjálfum held- ur einnig efnahagslegum af leið- ing um. Áður en faraldurinn skall á voru Rússar þegar í erfiðri stöðu vegna olíuverðstríðs við Sádi-Araba og tekjur ríkisins því minni. Opin- berlega hafa deiluaðilar nú slíðrað sverðin en bak við tjöldin beita þeir rýtingunum. Verðið á olíu er í frjálsu falli og rúblan hefur fallið um 30 prósent á þessu ári. kristinnhaukur@frettabladid.is Forsetinn heldur sig til hlés Rússland er það land þar sem COVID-19 faraldurinn er í mestum vexti. Vladimir Pútín forseti heldur sig til hlés og lætur héraðsstjóra um óvinsælar ákvarðanir en er þó harðlega gagnrýndur fyrir sein viðbrögð. Spítölum hefur fækkað mikið og þeir úrelst í 20 ára valdatíð Pútíns. MYND/EPA Efasemdir eru uppi um áreiðanleika prófana og rússnesk yfir- völd eiga langa sögu yfirhylmingar á stórum atvikum. Andrius Tursa, sérfræðingur um málefni Austur-Evrópu FRAKKLAND Netsölurisinn Amazon á nú í deilum við frönsku verkalýðs- hreyfinguna um starfsemi fyrir- tækisins á tímum COVID-19. Verka- lýðshreyfingin sakar Amazon um að gera ekki nóg til að vernda starfsfólk gegn kórónaveirunni. Í gær fór fram málf lutningur fyrir áfrýjunardómstóli í Versölum. Þar reyndi Amazon að fá hnekkt úrskurði lægra dómstigs frá síðustu viku sem takmarkar starfsemi fyrir- tækisins. Samkvæmt úrskurðinum má Amazon aðeins flytja matvörur og aðrar nauðsynjar. Af þeim sökum neyddist Ama- zon til að loka sex vöruhúsum í Frakklandi þar sem um tíu þúsund manns starfa. Einn lögmanna Ama- zon sagði fyrir dómstólnum í gær að fólk hefði líka þörf fyrir ýmsar tæknivörur, síma, vörur fyrir börn og líkamsræktartæki. Lögmaðurinn sagði markmið verkalýðshreyfingarinnar að loka á starfsemina myndi koma sér illa fyrir lítil fyrirtæki sem seldu vörur sínar hjá Amazon. Fyrirtækið gæti þurft að draga úr starfsemi í landinu. Lögmaður verkalýðsfélaganna segir starfsmenn reiðubúna til við- ræðna um öryggismál og bendir á að af koma Amazon undanfarið jafnist á við jólavertíð. Ekki sé við- eigandi að kvarta undan ósann- girni. Búist er við niðurstöðu í lok vikunnar. – sar Amazon í deilum í Frakklandi Netrisinn lokaði sex vöruhúsum. 2 2 . A P R Í L 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.