Fréttablaðið - 22.04.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 22.04.2020, Blaðsíða 16
Sigurborg Selma er hönn­uður eins og sjá má á fallegu heimilinu sem einkennist af ríkulegri birtu, fallegum list­ munum og opnu rými. „Ég bý með manninum mínum Gísla Halldóri Ingimundarsyni og sonum okkar þeim Kára og Benjamín.“ Ánægð í Hlíðunum Sigurborg hefur búið í Hlíðunum um árabil og segir fjölskyldunni líða vel á þeim slóðum. „Ég hef bú ið í Hlíðunum í 15 ár. Við erum mjög ánægð hérna í Hlíðunum.“ Þau fluttu þegar Benjamín litli var nýfæddur. „Við fluttum hingað sum arið 2018. Þá var Benjamín 10 daga gamall.“ Sigurborg segir að birtan og opið rýmið hafi heillað þau við eignina, en gluggarnir eru stórir og opið er á milli eldhúss og stofu. „Hvað hún er rosalega björt og rúmgóð. Gólfsíðir gluggarnir eru algjört æði og svo er mjög næs að vera með tvennar svalir.“ Þau hafa ekki staðið í miklum framkvæmdum þar sem íbúðin var tilbúin, að undanskildu gólfefni sem þau völdu. „Húsið var nýbyggt þegar við keyptum íbúðina. Hún var tilbúin en við völdum sjálf partekið sem er úr gegnheilli eik.“ Nýtt í bland við gamalt Eikarparketið er ljóst að lit sem gerir það að verkum að rýmið verð­ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Kertastjakarnir frá KER eru í miklu uppáhaldi. Vörurnar frá KER eru á Instagram.com/kerrvk.is. Herbergi Benjamíns er afar hlýlegt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Svartur Le Creuset pottur hvílir á eldavélinni. Eldhúsið fallega og kaffivélin kærkomna, en hún er í miklu uppáhaldi. ur enn bjartara og léttara. „Okkur líður vel að hafa allt svona ljóst og bjart inni hjá okkur, jafnvel í mesta skammdeginu er íbúðin einhvern veginn samt björt, líklega vegna þess að hún mjög opin og hátt til lofts,“ segir Sigurborg. Fjölskyldan unir sér vel heima eins og greina má á innilegu and­ rúms loftinu. „Ég er mikið fyrir að blanda saman gömlum munum og nýjum. Við erum öll mjög heima­ kær og höfum gaman af því að gera fínt í kringum okkur.“ Fallegir list­ og keramikmunir eru áberandi í íbúðinni en móð ­ ir Sigurborgar er einn fær asti leirkerasmiður landsins. „Uppá­ haldsverkið okkar feng um við í brúðkaupsgjöf og er eftir Ignacio Uriarte. Uppáhalds mun irn ir okkar eru svo frá KER Reykjavík. Móðir mín, Guðbjörg Káradóttir, hannar og handrennir keramik og postulín undir því merki og er nýbúin að opna net versl unina kerrvk.mys­ hopify.com“ Það stendur ekki á svörum þegar Sigurborg er spurð að því hver sé uppá haldsstaðurinn í íbúðinni. „Alrýmið. Það er frábært að geta verið að elda á meðan strákarnir eru að dunda sér í stofunni, en samt verið í sama rými. Við eyð­ um langmestum tíma saman í alrýminu.“ Þá nefnir hún nokkra hluti sem eru í miklu eftirlæti. „Uppá­ halds hluturinn minn er nýi blóma vasinn minn frá KER og Lavala kertastjakarnir frá KER. En svo verð ég líka að nefna nýju kaffivélina mína.“ Hvar færðu innblástur? „Úr tímaritum og af Insta gram.“ Það eru ekki fyrirhugaðar fram­ kvæmdir á heimilinu, enda búið að nostra við hvern krók og kima. „Við erum ofboðslega sátt við heimilið eins og það er.“ Ég er mikið fyrir að blanda saman gömlum munum og nýjum. Við erum öll mjög heimakær og höfum gaman af því að gera fínt í kringum okkur. Framhald af forsíðu ➛ Svarti Eames- fuglinn nýtur sín í bakgrunn- inum á píanóinu sem Kári leikur á. Blómavasinn er frá KER og blómin eru frá 4 árstíðir. Hægt er að skoða vörurnar frá KER bæði á Instagram og á kerrvk.is. MYND/ SIGURBORG SELMA 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . A P R Í L 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.