Fréttablaðið - 22.04.2020, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 22.04.2020, Blaðsíða 27
Maður vill reyndar alltaf hafa fleiri klukkustundir í sólar- hringnum en það er erfitt nema að fara að stunda það að fljúga á milli tímabelta. B irt m eð fyrirvara um m ynd- og textabrengl Þetta flytur sig ekki sjálft! Sixt langtímaleiga einfaldar reksturinn ÞjónustuskoðanirTryggingar og gjöld Hefðbundið viðhaldDekk og dekkjaskipti Kynntu þér kosti langtímaleigu á sixtlangtímaleiga.is eða hafðu samband við viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222 eða á vidskiptastjori@sixt.is. (Nýir atvinnubílar á langtímaleigu koma hreyfingu á hlutina) Innifalið í langtímaleigu: Verð frá: 63.900 kr. á mán án vsk. Verð með vsk. frá: 79.236 kr. á mánuði. Pantaðu bílinn á sixtlangtimaleiga.is. Guðrún Rós Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hugbú naða r f y r ir­tækisins Main Man­a ger, segir að á fyrsta ársf jórð ung i haf i COVID­19 ekki haft nei kvæð áhrif á reksturinn. Hún vonar að áhrifin verði sem minnst. Hver eru þín helstu áhugamál? Ég elska vatn í öllu formi. Fer í sjó­ sund á sumrin en sundlaugarnar á veturna. Síðustu tvö ár hef ég siglt á kajak og allra nýjasta áhugamálið er gönguskíði. Er að byrja í því sporti en hef hingað til verið á svigskíðum. Þannig að annað hvort er ég ofan í vatni eða ofan á vatni í föstu eða fljótandi formi. Mér þykir líka alltaf gott að lesa góða bók. Nærðu að halda jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs? Hjá MainManager er boðið upp á sveigjanlegan vinnutíma og fjar­ vinnu sem auðveldar að sameina vinnu og fjölskyldulíf. Stundum getur þetta verið strembið en á heild ina litið gengur þetta bara ljómandi vel. Við hjónin erum heldur ekki lengur með ung börn en þau eru komin á unglingsaldur. Maður vill reyndar alltaf hafa fleiri klukkustundir í sólarhringnum en það er erfitt nema að fara að stunda það að fljúga á milli tímabelta. Hvernig er morgunrútínan þín? Hún er ekki f lókin. Skelli mér í sturtu, þarf stundum að ýta við krökkunum en að mestu sjá þau um sig sjálf núorðið. Fæ mér alltaf góðan morgunmat, morgunkorn og tilheyrandi. Ekki má gleyma lýsinu sem maðurinn minn kallar hjátrú Íslendinga. Er síðan komin í vinnuna upp úr klukkan 8.30. Hverjar verða helstu áherslurnar í rekstrinum á næstu misserum? MainManager hugbúnaðurinn heldur utan um viðhald og rekstur mannvirkja hérlendis og erlendis. Við leggjum nú alla áherslu á að ljúka við nýju MainManagerFM lausnina okkar sem mun umbylta því hvernig þrívíddarlíkön (BIM), 2D teikningar og GIS­kort eru notuð í rekstri. Hugbúnaðarþróun lýkur aldrei. Aukin áhersla verður á gervigreind og IoT­skynjara í okkar hugbúnaði. Markmið okkar er að nýta þessa tækni og hjálpa þannig fyrirtækjum að ná umhverfismarkmiðum sínum sem hefur bæði jákvæð áhrif á rekst­ ur inn og umhverfið. Þetta eru geysi­ lega spennandi tímar hjá okkur og við sjáum fram á mörg tækifæri . Hvaða tækifæri sjáið þið fram undan í rekstri MainManager? Við erum með öfluga viðskipta­ vini bæði innanlands og erlendis. Okkar aðalmarkaður erlendis hefur verið Norðurlöndin og Ísland þar á meðal. Við erum nýbúin að ljúka við innleiðingu í Danmörku hjá Árós­ um og erum í miðri innleiðingu hjá Ǻlesund í Noregi. Við sjáum áfram haldandi tækifæri á þessum mörkuðum og ný tækifæri í verk­ efni í Singapúr þar sem við erum í spenn andi verkefni í samstarfi við sam starfs aðila í Englandi og Kajima í Japan. Þannig að við sjáum fram á spennandi tíma á núverandi og nýjum mörkuðum. Hefur COVID -19 haft áhrif á rekstur eða áætlanir fyrirtækisins? COVID­19 hefur á fyrsta fjórðungi ársins rekstrarlega séð ekki haft neikvæð áhrif og vonum við að þau verði sem minnst. Við erum heppin með að allir starfsmenn okkar geta unnið heim­ an frá og margir af okkar viðskipta­ vinum einnig. Við erum vön að vinna með fjarfundarbúnað innan Main Manager en núna hefur notk­ un fjarfunda með viðskiptavinum auk ist og það gengur bara ljómandi vel. Við verðum samt að vera við­ búin því að vari ástandið lengi geti það haft áhrif á reksturinn. Ný tækifæri skapast í Singapúr Svipmynd Guðrún Rós Jónsdóttir „Ég elska vatn í öllu formi,” segir Guðrún Rós Jónsdóttir, framkvæmdastjóri MainManager. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Nám: M.Sc.-gráða í viðskipta- og markaðsfræði frá Viðskipta- háskóla Árósa, með áherslu á viðskipti milli fyrirtækja (B2B-við- skipti). B.Sc.-gráða í rekstrarhag- fræði frá Háskólanum á Akureyri. Störf: Framkvæmdastjóri Spakur Finance sf. Fjölskylduhagir: Í sambandi með Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, móðir Viktors (21 árs) og Freyju (18 ára). 11M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . A P R Í L 2 0 2 0 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.