Fréttablaðið - 22.04.2020, Blaðsíða 37
ÞAR ER AÐ FINNA
ALLT FRÁ ROKKTÓN-
LEIKUM OG RITHÖFUNDA-
SPJALLI TIL UMFJÖLLUNAR UM
ÁHRIF VEIRUNNAR Á ANDRÚMS-
LOFTIÐ.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
22. APRÍL 2020
Hvað? Kúltúr klukkan 13
Hvenær? 13.00
Hvar? Vefútsending frá Salnum
á stundin.is og Facebook-síðum
Stundarinnar og Menningarhúsanna
í Kópavogi
Félagarnir í Hot Eskimos.
Menningarhúsin í Kópavogi eru m e ð ó h e f ð -bundna dagskrá sem standa mun til 1. maí en frá
4. maí verða Menningarhúsin opin
með takmörkuðu aðgengi. Menn-
ingarhúsin í Kópavogi eru: Salur-
inn, Gerðarsafn, Bókasafnið, Nátt-
úrufræðistofa og Héraðsskjalasafn.
Soffía Karlsdóttir er forstöðumaður
menningarmála Kópavogsbæjar.
„Við erum full tilhlökkunar að
opna menningarhúsin aftur 4. maí
og taka á móti okkar góðu gestum.
Að sjálfsögðu með þeim fyrirvörum
sem almannavarnir hafa sett okkur,“
segir Soffía. „Hér fer fram gríðarlega
mikil menningarstar fsemi en
við stöndum að jafnaði fyrir um
1.100 viðburðum á ári og f lestir
þeirra eru ókeypis. Húsin eru opin
nánast alla daga ársins þannig að
þetta hafa verið skrítnir en um
leið áhugaverðir tímar fyrir okkur.
Starfsfólk menningarhúsanna er
skapandi og frjótt fólk og það var
ekki inni í myndinni að leggja árar
í bát þegar samkomubannið gekk
í gildi, heldur gerðum við það sem
við gerum best, að hugsa út fyrir
rammann, meta tækifærin sem
sam komubannið bauð upp á, og
mæta þeim áskorunum sem við
stóðum frammi fyrir.
Til að bregðast við því að lista-
menn sem við höfðum gert sam-
komulag við, sem og aðrir lista-
menn, eru að verða af miklum
tekjum vegna samkomubannsins,
ákváðum við að skapa þeim nýjan
vettvang, enda eru þeir okkar helsta
auðlind. Við lögðumst öll á eitt og
úr varð viðburðaröð Menningar-
húsanna Kúltúr klukkan 13 sem
send er út frá Menningarhúsunum
alla mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga. Við renndum algjör-
lega blint í sjóinn, höfðum aldrei
gert neitt viðlíka áður og útkoman
fór vægast sagt fram úr björtustu
vonum.
Eftir ellefu þætti tókum við stöð-
una og vorum með áhorfstölur sem
sýndu að þættirnir hafa fengið 165
þúsund áhorf. Þannig hafa stakir
þættir fengið allt frá fjögur þúsund
áhorfum upp í 57 þúsund áhorf. Sem
þýðir að meðaltalsáhorf hefur verið
um 15.000. Til samanburðar má geta
þess að heildargestafjöldi Menning-
arhúsanna er um 220 þúsund á ári.
Þetta er nýr veruleiki sem við stönd-
um frammi fyrir og kallar vissulega
á endurmat og býður upp á nýjar
áskoranir fyrir okkur við að miðla
listum og menningu á fjölbreyttan
hátt. Þessi nýja miðlun gefur okkur
tækifæri til að rýna í áhorfsmæling-
ar og bregðast við þeim.“
Brennidepill samtímans
Allir sem koma fram í Kúltúr
klukkan 13 fá greitt fyrir vinnu sína.
Fyrirhugaðir eru 18 þættir, sá síðasti
föstudaginn 1. maí. „Viðfangsefni
þeirra endurspegla kjarnastarf-
semi húsanna og málefni sem eru
í brennidepli samtímans. Þar er að
finna allt frá rokktónleikum og rit-
höfundaspjalli til umfjöllunar um
áhrif veirunnar á andrúmsloftið,“
segir Soffía. Viðburðum er streymt
á Facebook-síðum Menningar-
húsanna og á vef Stundarinnar.
Spurð hvort samkomubannið
hafi haft mikil áhrif á starfsemi
húsanna segir Soffía: „Það hefur haft
ólík áhrif á starfsemi þeirra. Þann-
ig hefur Gerðarsafn þurft að fresta
sýningaropnunum og Salurinn
hefur þurft að færa til tónleika og í
sumum tilfellum fella þá niður, með
talsverðu tekjutapi.
Þeir sem starfa innan skapandi
greina bregðast ávallt við mótlæti og
andstreymi með því að finna nýjan
farveg fyrir sköpunargleði sína.
Sumt gerist í hita leiksins, rétt eins
og við hér í Kópavogi erum að bregð-
ast við og fleiri menningarstofnanir,
en kannski er besta dæmið hið stór-
kostlega tónleikastreymi Helga
Björns sem meirihluti landsmanna
fylgist nú með hvert laugardags-
kvöld. Langtímaáhrifin birtast svo
síðar í því hvernig og hvort lista-
menn og menningarstofnanir vinna
með þessar miðlunarleiðir í framtíð-
inni. Það verður spennandi að sjá.“
Óhefðbundið snið á dagskránni
Soffía segir að Barnamenningar-
hátíð og 17. júní hátíðarhöldin hafi
verið endurhugsuð. „Barnamenn-
ingarhátíð breytist í karnivalhátíð
Menningarhúsanna í september og
dagskrá þjóðhátíðardagsins, sem
um árabil hefur farið fram á Rúts-
túni, verður með óhefðbundnu
sniði.
Menningarhúsin skipuleggja
fjölbreytta dagskrá þennan dag
og á teikniborðinu erum við með
nokkrar sviðsmyndir fyrir hátíðar-
höldin á sautjándanum svo að allir
bæjarbúar fái hans notið með þeim
skilyrðum sem yfirvöld setja okkur
og eiga enn eftir að koma í ljós.“
Nýr farvegur fyrir
sköpunargleði
Menningarhúsin í Kópavogi eru með
öfluga dagskrá á tímum samkomubanns.
Húsin verða opnuð 4. maí. Soffía Karls-
dóttir er forstöðumaður menningarmála.
Þetta hafa verið skrítnir en um leið áhugaverðir tímar fyrir okkur, segir Soffía. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Stillanlegt
og þægilegt
Þráðlaus fjarstýring
með 2 minnisstillingum
VERÐDÆMI: 2 x 90 x 200 cm stillanlegt C&J Silver rúm
með Nature’s Rest Luxury heilsudýnum: Fullt verð: 337.800 kr.
Aðeins 283.140 kr.
C&J SILVER
stillanlegt rúm
C&J Silver er með sterkum stálbotni og
kraftmiklum en hljóðlátum mótor.
Rúminu fylgir þráðlaus fjarstýring með
tveimur minnum og ljósi.
Botn rúmsins dregst að vegg þannig að þú ert í eðlilegri
fjarlægð frá náttborði og lampa. Sérstakur takki á
fjarstýringunni kemur rúminu í upphaflega stöðu.
15%
AFSLÁTTUR
af C&J Silver og
20% af Rest Luxury
dýnum
HEIMA ER BEST
TILBOÐ
Breyttur afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 12–18
Laugardaga kl. 12–18
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
á
do
rm
a.i
s
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
KLIKKAÐU Á VÖRU
OG ÞÚ FERÐ BEINT
INN Í VEFVERSLUN
DORMA.IS
HEIMA ER BEST
tilboðin
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
RÚM 2–13 | Mjúkvara og d
únn 14–17 | Stólar 18–19 | S
ófar 20–29 | Hillur, borð o
g skápar 30–33 | Affari og
smávara 34-42
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 2 2 . A P R Í L 2 0 2 0