Bændablaðið - 15.12.2016, Qupperneq 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Um þessar mundir er kertaframleiðsla í
hámarki hjá Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi
og leggjast allir á eitt um að anna eftir-
spurn, en kertin eru landsþekkt fyrir gæði
og langan brennslutíma. PBI er einn af
vinnustöðum Akureyrarbæjar og þar starfa
tæplega 60 manns með skerta starfsgetu auk
leiðbeinenda og starfsfólks.
Jón M. Jónsson kertagerðamaður yfir kerta-
framleiðslunni, segir að alls séu framleidd um
25 þúsund útikerti hjá PBI auk handdýfðra
innikerta, m.a. um 80 þúsund gæða veislukerti
að ótöldum svonefndum kirkjukertum, kert-
um sem sérhönnuð eru til notkunar í kirkjum
landsins.
Í útikertin eru notaðir vaxafgangar og kerti
sem ekki eru söluhæf, svonefnt úrgangsvax.
„Við notum um 20 tonn af vaxi í útikertin á
hverju ári og í veislu- og hátíðarkerti fara um
10 tonn,“ segir hann.
Afleit staða í þessum málaflokki
Landsmenn eru ekki ýkja duglegir að skila
inn kertaafgöngum, slíkt er þó í boði víða,
m.a. á öllum grenndarstöðvum á Akureyri,
hjá Endurvinnslunni við Furuvelli og að
Réttarhvammi. Jón segir að einungis um það bil
6,5 til 7 tonnum sé skilað inn á hverju ári, sem
er afskaplega lítið magn miðað við það sem
fer til urðunar. Akureyringar og nærsveitamenn
skila árlega um það bil 1,8 tonnum, en um 4
tonn af afgangsvaxi kemur af höfuðborgar-
svæðinu, þar sem þessi úrgangur er þó ekki
flokkaður sérstaklega líkt og norðan heiða.
„Því miður er staðan í þessum málaflokki afleit,
við urðum allt of mikið, eða um 150 tonn á ári,
þetta er unnin hörð olía sem er mjög lengi að
eyðast í náttúrunni,eða um það bil 80 ár,“ segir
Jón og vill fyrir alla muni að landsmenn taki sig
saman í andlitinu og geri verulega bragarbót á.
Ekki nægilega vakandi
Hann bendir á að olíubíll hafi oltið fyrir
skömmu í Skagafirði með þeim afleiðingum
að nokkur tonn af olíu runnu út í jarðveginn.
„Það fór allt á hliðina og menn hrópuðu upp
yfir sig; stórslys og mengun. Heilbrigðiseftirlit
var kallað á vettvang en það heyrist hvorki
hósti né stuna þegar við urðum um 150 tonn af
kertavaxi á hverju ári, sem er ekkert annað en
hrein olía. Magnið verður svo gríðarlegt þegar
horft er yfir lengri tíma,“ segir Jón.
Hann telur að almennt sé hvorki almenn-
ingur né stjórnvöld nægilega vakandi fyrir
því að kertavax er olía, rétt eins og t.d. matar-
eða dísilolía, sem innihaldi heilmikið magn
af parafíni sem þykknar í kulda og veldur
vandræðum.
„Ég vona svo sannarlega að landsmenn
taki á þessum málum og því fyrr því betra.
Það er heldur ekki úr vegi að fyrirtæki sem
flytja inn kerti hafi okkur í huga t.d. með þau
kerti sem verða fyrir skemmdum og þarf að
farga. Það er upplagt að benda á að við tökum
á móti slíkum sendingum og getum sparað
fyrirtækjum urðunargjöld á móti. Við teljum
okkur ekki í samkeppni við þessi fyrirtæki
og því ætti samstarf af slíku tagi að vera
hagstætt fyrir alla,“ segir Jón.
Almenningur getur einnig komið við hjá
PBI að Furuvöllum 1 á Akureyri, en þar er
tekið á móti kertastubbum og vaxafgöngum
til endurnýtingar. Jafnframt er tekið á
móti slitnum rúmfötum, handklæðum og
bolum, en efnin eru nýtt til framleiðslu á
tuskuböggum. /MÞÞ
Um 25 þúsund útikerti framleidd hjá PBI á Akureyri
Líf og starf MÆLT AF
MUNNI FRAM
S íðasti vísnaþáttur var allur helgaður vísum Sigurðar Þórarinssonar jarð-fræðings.Ögn af efni stóð þó útaf sem
viðeigandi er að gera hér skil. − Haust hvert
voru farnar skemmtiferðir inn í Jökulheima.
Í einni slíkri hafði Sigurður ungan ítalskan
jarðfræðing með í för. Sá var sjarmur mikill
og meyjum öllum því mjög hugleikinn. Árni
Stefánsson bifvélavirki var meðal ferða-
manna, og öfundaðist ákaflega þá athygli
sem stúlkur sýndu Ítalanum áfengisdauðum.
Sigurður orti þá:
Okkar kvenna art er slík;
Árni veit hvað hann syngur,
að betur þeim ítalskt líkar lík
en lifandi Íslendingur.
Jökulheimaferðir samanstóðu jafnan af
báðum kynjum. Í húsreglum Jökulheima
var, að tiltal mætti veita og jafnvel
fjársektir, yrði vergirni vart í ferðum
Jöklarannsóknarfélagsins. Slíkt athæfi
var nefnt „hugrenningasyndir“. Magnús
Jóhannsson, útvarpsvirki og kvik-
myndagerðarmaður, var í einni slíkri
Jökulheimaferð, og þótti dómara siðgæðis
einsýnt að Magnús hefði gerst brotlegur við
húsreglur, og var sektaður um hundraðkall.
Af því tilefni orti Sigurður:
Magnús heitir maður snjall,
mjög að svönnum kyndir.
Hefur drýgt fyrir hundraðkall
hugrenningasyndir.
Meðan landsmenn súpa „síðustu dreggj-
ar þessa árs“ þá situr sá ágæti hagyrðing-
ur, Ingólfur Ómar Ármannsson, suður í
Reykjavík, og barmar sér nokkuð:
Fátækt er mér fjandi dýr,
flest vill gæðin skerða.
Fjárhagurinn fremur rýr
og flaskan tóm að verða.
En þar sem hátíð fer í hönd með öllu því
umstangi sem fylgir þessum árstíma, þá
hægist hugur skáldsins og jafnvel örlar á
„hugrenningasyndum“:
Hátíð nálgast helg og skær,
hefst þá frí í skólum.
Fengitíminn færist nær
fylgir bústang jólum.
Lesendur hafa um langt bil verið lausir við
„andlegar afurðir“ Einars Kolbeinssonar,
bónda í Bólstaðarhlíð. Sama verður ekki
sagt um símann minn. Við Einar höfum í
haust sótt sjóveiðar á báti mínum sem Balli
heitir. Mestanpart til svartfuglsveiða. Þessar
drápsferðir hafa veitt Einari mikla fró:
Ekki skortir í mig dug,
anda flíka skæðum.
Vakandi með veiðihug
og villimennsku í æðum.
Ef að Balli færi á flot
svo fáist gleði meiri,
keypti ég hundrað haglaskot
hér á Akureyri.
Meira að segja reisti Einar til Þýskalands í
haust til svölunar drápseðli sínu. Sími minn
fékk að fylgjast með:
Kominn er í heljar ham
og hendist milli landa,
enda er ég í Amsterdam
eins og sakir standa.
Framandi mér ferðin er
og fjarri verkum brýnum.
Halda mun til Hannover,
held ég að slátra svínum.
Ekki sat Einar með öllu heima á nýliðinni
rjúpnavertíð. Í samtali okkar sagðist hann
hafa rekist á 17 fugla. Í næsta ljóðformi,
sem álíka þekkt skáld og Einar hafa brúkað,
er fólgin viss talnaleikur:
Fimmtán upp til fjalla
flugu um í gær,
á morgun verða varla
vakandi aðrar tvær,
því núna höfði halla
hér í skjóli nær.
168
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Hjá PBI eru framleidd um 25 þúsund útikerti á ári. Hér er verið að ganga frá þeim og pakka. Myndir / MÞÞ
Stundum hendir fólk kertunum sínum beint í
ruslið, líkt og eigandi þessa kertis sem Jón M.
heldur hér á, búið að nota um það bil 5%. PBI
tekur á móti kertastubbum og vaxafgöngum
og endurnýtir.
Um þessar mundir er kertaframleiðsla í hámarki hjá Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi og leggjast allir
á eitt um að anna eftirspurn. Hér er Kristín Hreiðarsdóttir að líma miða á kertin.
Það eru mörg handtökin við kertagerðina.
Verið að ganga frá kertum fyrir álímingu og
pökkun.