Bændablaðið - 15.12.2016, Page 21
21Bændablaðið | Þriðjudagur 22. mars 2016
Það er víða pottur brotinn í
framleiðslu matvæla í heimin-
um. Greinilega er full þörf á að
neytendur fylgist vel með hvernig
framleiðslan fer fram.
Ill meðferð dýra, óhófleg lyfja-
notkun sem og ómæld notkun eit-
urefna eru allt óafsakanlegir þættir.
Þá greindi breskur fjölmiðill frá
því fyrir nokkru að þrælahald og
ill meðferð væri á starfsfólki við
framleiðslu kjúklinga í Asíu fyrir
Evrópumarkað.
Taíland er eitt af stærstu útflutn-
ingslöndum heims á kjúklinga-
kjöti. Um 41% af útflutningnum
fer til Evrópu, þar sem kjúklingn-
um er dreift vítt og breitt þvert á
landamæri Evrópusambandslanda
og pakkað í neytendaumbúðir.
Þrálátur orðrómur hefur verið uppi
um að kjúklingur sem fluttur hefur
verið til Íslands og seldur hér sem
dönsk vara sé að hluta taílenskur
kjúklingur. Engar sönnur hefur þó
tekist að leggja á það.
Í breska dagblaðinu The
Guardian er umfjöllun um taílensku
kjúklingaframleiðsluna. Þar segir að
nú hrikti í þeirri framleiðslu vegna
ásakana um illa meðferð á fuglum,
falsaða pappíra og illa meðferð á
illa launuðu starfsfólki. Það vinni
jafnvel á 22 tíma vöktum og þurfi
að láta sig hafa það að sofa á gólfinu
innan um þúsundir alifugla.
Nefnt er dæmi af kjúklingabúinu
Thammakaset Farm 2 sem framleiði
kjúkling fyrir Betagro, sem er einn
af fimm stærstu kjúklingaútflytj-
endum ásamt Charoen Pokphand
Foods (CP Foods), Cargill, GFPT
og Leamthong. Saman standi þessi
fyrirtæki fyrir um 70–75% af öllum
kjúklingaútflutningi Taílands.
Segir í frétt The Guardian að
erfitt sé að meta nákvæmlega hversu
mikið af taílenskum kjúklingi endi á
markaði í Bretlandi. Hins vegar sýni
opinberar skýrslur að 40% af öllum
unnum kjúklingi sem fluttur er til
Bretlands komi beint frá Taílandi.
Hlutfallið sé þó mjög líklega mun
hærra þar sem mikið sé flutt inn af
tilbúnum kjúklingamáltíðum, sem
og gæludýrafóðri úr kjúklinga-
kjöti sem fullunnið er í öðrum
Evrópusambandslöndum. Uppruni
framleiðslunnar er því sagður frá
ESB-löndum, eins og reyndar er
líka sagt um danska kjúklinginn
sem hér hefur fengist í verslunum.
Í frétt Guardian er rætt við fimmt-
ugan starfsmann Thammakaset
Farm 2, Myint að nafni. Hann seg-
ist hafa unnið á kjúklingabúinu í
fjögur og hálft ár og allan tímann
á 22 tíma vöktum. Þar hafi hann
og samstarfsmenn hans sofið
á gólfinu innan um 28 þúsund
fugla. Ef fuglarnir hafi veikst hafi
starfsmönnum verið kennt um.
Þá hafi þeirra laun, sem voru
langt undir lágmarkslaunum í
Taílandi, verið haldið af vinnu-
veitanda. Ef þeir hafi viljað
hætta hafi það ekki verið hægt
þar sem vegabréfin höfðu verið
tekin af þeim. Einu sinni í viku
hafi þeim verið leyft að fara
í matvöruverslun í fylgd eft-
irlitsmanna. Það hafi verið
þeirra eina tækifæri til að sjá eitt-
hvað af veröldinni utan búsins.
„Það var farið með okkur eins
og þræla,“ sagði Nayoto, yngri
samstarfsmaður Myint, eftir að
hann komst í athvarfið NGO.
Þar var hann ásamt 14 öðrum
starfsmönnum frá Mynamar sem
höfðu flúið og biðu eftir að fá ein-
hverjar úrbætur á sínum málum.
Þar er það Migrant Workers Rights
Network (MWRN) sem fer með
þeirra mál. Segjast starfsmennirnir
hafa verið hlunnfarnir um 11.000
dollara hver um sig.
Samkvæmt frétt ABS News
um sama mál segir að 1,4 millj-
ónir erlendra verkamanna starfi
í Taílandi. Þeir séu aðallega frá
Myanmar og Kambódíu. Þar fyrir
utan er áætlað að 4 milljónir manna
séu í svartri vinnu í Taílandi.
Það er þó ekki bara slæmur
aðbúnaður og meðferð starfs-
manna í kjúklingabúum sem til
umræðu er. Um árabil hefur að
sögn ABC verið rætt um óþverra-
skap gagnvart starfsmönnum
í fiskirækt og sjávarútvegi þar
í landi. Er þar talað um starfs-
menn sem hafa verið fórnarlömb
mansals. Allt er þetta þó gert undir
því „göfuga“ yfirskini að verið sé
að framleiða ódýrari matvæli fyrir
íbúa Vesturlanda, Á Íslandi heit-
ir það að bera hag neytenda fyrir
brjósti. /HKr.
Breska dagblaðið The Guardian og ABC News í Ástralíu:
Segja þrælahald iðkað við framleiðslu
á kjúklingi í Asíu fyrir Evrópumarkað
Varahlutir í flestar tegundir dráttarvéla
New Holland - Fiat - Ford - Case - Steyr - Zetor - Fendt
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Eigum fyrirliggjandi síur í flestar gerðir þessara véla
og mikið úrval varahluta. Einnig sérpantanir.