Bændablaðið - 15.12.2016, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Í Svartdal í Þelamörk í Noregi
stofnaði frumkvöðullinn Bjørg
Minnesjord Solheim, litlu spuna-
verksmiðuna sína, Telespinn, fyrir
átta árum. Sjálf átti hún þá og á
enn mohair-geitur og langaði til
að geta fullunnið ullina á hlaðinu
hjá sér.
Enginn aðili í Norður-Evrópu gat
unnið úr mohair-þráðunum svo úr
varð að Bjørg fann kanadíska fram-
leiðendur, Belfast Mini Mills, sem
höfðu vélarnar sem hún þurfti til að
geta unnið úr ullinni.
Í dag er Telespinn hlutafélag þar
sem hluthafar eru að mestu mohair-
bændur og aðrir sem eru uppteknir
af menningarlandslagi. Nú eru þrír
starfsmenn sem hafa atvinnu af
spunaverksmiðjunni.
„Þetta byrjaði eingöngu með
geitaull en síðan fór fólk að hringja
með alls kyns fyrirspurnir, sauðfjár-
bændur og alpakka-bændur urðu
fljótt áhugasamir um starfsemina.
Nú er það þannig að bændur víðs
vegar í Noregi eru í viðskiptum
við okkur og það kom í raun fljótt
í ljós að það er sannarlega grund-
völlur fyrir því starfi sem við erum
að gera,“ útskýrir Bjørg sem segir
jafnframt að fleiri litlar spunaverk-
smiðjur hafi verið settar upp í Noregi
eftir að hún byrjaði með Telespinn.
Flétta saman við
menningarlandslagið
Fram til haustsins 2011 var vélbún-
aður og spunastarfsemin staðsett í
geitafjósinu hjá Bjørg en árið 2012
var opnuð ný og nútímaleg spuna-
verksmiðja á bænum.
„Þetta varð bylting fyrir okkur
að komast í nýtt húsnæði. Hér áður
fyrr, áður en ég stofnaði Telespinn,
þurfti ég að senda ullina mína til
Danmerkur sem þaðan var send til
Suður-Afríku í hreinsun svo þegar
garnið kom til baka til mín var það
ekki beinlínis umhverfisvænt. Þess
vegna snýst þetta mikið til um hjá
mér að vinna þráðinn eins og við
hugsum um menningarlandslagið
hér í Svartdal, með umhverfisvernd
að leiðarljósi. Með því að opna verk-
smiðjuna í nýju húsnæði gátum við
aukið framleiðsluna og opnað eigin
garnbúð í sama húsnæði og geiturnar
fengu til baka fjósið sitt að fullu!“
segir Bjørg og hlær við en hún flutti
á sveitabæinn í Svartdal árið 2002
frá Osló.
„Þetta var ansi harður skóli til að
byrja með en ég fékk einungis einn
dag í kennslustund á tækin í Kanada
áður en ákvörðunin var tekin um að
kaupa þau en síðan dvöldu aðilar frá
verksmiðjunni hér í eina viku til að
kenna mér enn frekar. Nú spinnum
við allt sem hægt er að spinna, til
dæmis angóru-, moskus- og hunda-
hársþræði.“
Ullarþræðir og kvennasagan
Sjálf er Bjørg með 26 mohair-geitur
á bænum hjá sér og klippir þær
tvisvar sinnum á ári. Hráefnið sem úr
því kemur getur verið mismunandi,
allt frá tvö og upp í sex kíló af ull
á hverja geit.
„Ég myndi segja að þessi starf-
semi eigi einkar vel við úti á landi
því rafmagnskostnaðurinn er ekki
mikill við framleiðsluna. Hér í
Noregi hefur verið mikil umræða
undanfarin ár um norska ull og með-
höndlun á henni. Öll norsk ull hefur
verið send í gegnum England og er
ekki eins mjúk og alpakka og merino
en er að verða vinsælli aftur. Litið
var á ull gamla norska stofnsins,
norsk spelsau, nánast sem úrgang hér
áður fyrr, en það er eitt af því sem við
höfum mikla ánægju af að vinna með
hér á bænum, það er, þessir gömlu
stofnar, sem verður að viðhalda og
Bjørg Minnesjord Solheim stofnaði spunaverksmiðjuna Telespinn árið 2008 sem hefur vaxið jafnt og þétt frá opnun. Myndir / Erla Hjördís Gunnarsdóttir
Þegar blaðamann Bændablaðsins bar að garði komu viðskiptavinir til Telespinn með ull af alpakka-fé og höfðu
keyrt langa leið til spunaverksmiðjunnar. Spunnið er alla virka daga í verksmiðjunni á bilinu 3-5 þúsund kíló af alls
kyns ull árlega.
Sýnishorn innan úr garnversluninni í spunaverksmiðjunni þar sem litaúrvalið
er skemmtilega fjölbreytt.
Erla Hjördís Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Sýnishorn innan úr verksmiðjunni en tækjabúnaðurinn kemur frá Kanada.
Hér bíður lituð ull í pokum eftir að komast í spunavélarnar.
frá Osló í sveitina fyrir hartnær 15
árum þar sem starf geitabóndans
Skemmtilegt er frá því að segja að
Bjørg hefur spunnið fyrir nokkra
íslenska bændur.
Ullin er af ýmsum gerðum sem
spunnin er hjá Telespinn, hér má sjá
girnilega húfu og sokka prjónaða úr
hundahári.