Bændablaðið - 15.12.2016, Page 44

Bændablaðið - 15.12.2016, Page 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016 Að Felli við Finnafjörð er rekið sauðfjárbú með rúmlega 400 ám. Þar eru líka nokkrar geitur og gerðar tilraunir með framleiðslu á fetaosti og hafin uppbygging í ferðaþjónustu. Ábúendur að Felli eru hjónin Reimar Sigurjónsson og Dagrún Þórisdóttir. Þau eiga fjórar dætur, Unni Vilborgu og Helgu Björk sem búa í foreldrahúsum en Aníta Dröfn býr á Þórshöfn og Stefanía Margrét er í framhaldsskóla. Reimar var talsvert í fjölmiðl- um í haust eftir að hann lenti í hrakförum og festist á klettasyllu í Gunnólfsvíkurfjalli þegar hann var að sækja eftirlegukind. Honum var bjargað af syllunni eftir þrettán klukkustundir en að hans sögn tók eltingaleikurinn við kindina sextán tíma. Gott land fyrir sauðfé Á Felli eru 430 vetrarfóðraðar kindur, fjórtán geitur, sex gæsir, fimm endur, átta hestar og þrír hundar. „Búskapurinn gengur vel sem slíkur en afkoman af honum er ekki beint til að hrópa húrra fyrir. Hér er mikið land og gott fyrir sauðfé enda jörðin tæpir 4000 hektarar að stærð. Afurðaverð fyrir lambakjöt hefur verið lágt og það lækkaði enn meira síðastliðið haust og við finnum verulega fyrir því. Það sem bjargaði okkur var að féð kom vænt að fjalli.“ Auk þess að reka búið að Felli starfar Reimar sem meindýraeyð- ir og vinnur í törnum við löndun. Dagrún er í 20% starfi hjá hreppn- um auk þess sem hún er að prófa sig áfram með að sauma púða sem eru að hluta úr gærum af lömbum sem drápust í sauðburðinum síðastliðið vor. Reimar fláði lömbin og síðan eru skinnin sútuð og ótrúlega mjúk viðkomu. Reimar segir að þau séu með geitur bæði til gamans og í alvöru. „Okkur finnst þær skemmtilegar skepnur og svo býr Dagrún til feta- ost úr mjólkinni úr þeim. Osturinn er sem stendur einungis til heima- brúks en okkur langar til að fjölga geitunum upp í þrjátíu og hver veit nema við reynum að markaðssetja fetaostinn einhvern tíma í framtíð- inni. Endurnar og gæsirnar eru aftur á móti bara til gamans.“ Ferhyrnt forustufé Í fjárhúsunum að Felli er meðal annars að finna forustufé, ferhyrnd- ar ær og eina sexhyrnda. Reimar segist vera að blanda saman fer- hyrndum hrútum og forystufé og ætlunin sé að ná fram ferhyrndu forystufé. „Ástæðan fyrir þessu er sú að hér á bæ er ferhyrnda féð rólegra en annað fé og ég kann vel við það þess vegna.“ Í góðu árferði eins og í ár lætur Reimar um 180 ær ganga úti í fjarðarbotni Finnafjarðar stóran hluta ársins. „Ég færi ánum þrjár heyrúllur á þriggja til fjögurra daga fresti en þess á milli eru þær í fjörubeit og éta þang og þara. Mín reynsla er sú og nánast óbrigðult að frjósemin er meiri í útigöngufénu en því sem er á húsi.“ Byggja upp ferðaþjónustu Hjónin á Felli eru samhliða hefð- bundnum búskap að byggja upp ferðaþjónustu og hafa þegar reist tvo gistiskála. Annar þeirra var í útleigu síðastliðið sumar og leigan gekk ágætlega, að sögn Reimars. Hitt húsið er á lokametrunum og verður komið í leigu næsta sumar. „Við höfum fullan hug á að markaðssetja Finnafjörð sem áfangastað fyrir ferðamenn en fjöldi þeirra sem sækja hingað er að aukast jafnt og þétt. Það er að segja þeir sem láta lélegar vega- samgöngur ekki aftra sér. Hér eru líka rekahlunnindi sem við nýtum aðallega til að kynda íbúðarhúsið með eins og er. Ég klýf stóra boli í staura en vantar sög til að saga borðvið.“ Ekki hrifinn af umskipunarhöfn Að sögn Reimars er fábreytt atvinnulíf ein helsta ástæða þess að fólki fjölgar ekki í Langanesbyggð. Hann bindur vonir við að aukinn ferðamannastraumur geti bætt úr því að hluta en segir um leið að sú grein sé fallvölt og því ekki hægt að stóla eingöngu á hana. „Sjálfur er ég ekki hrifinn af því að hér verði byggð risastór toll- frjáls umskipunarhöfn sem leggur undir sig hundruð hektara hér í firðinum. Náttúran hér er allt of dýrmæt og viðkvæm til þess. Hér fyrir utan eru til dæmis mikilvæg hrygningarmið fyrir þorsk og þau væru í hættu ef skip strandaði og af hlytist mengunarslys. Ég vona því að hugmyndin sé bara draum- órar og að það verði aldrei neitt af þessum framkvæmdum. Við höfðum talsverðar áhyggjur af þessu á tímabili en erum rólegri í dag og ætlum því að halda áfram að byggja upp búið og ferðaþjónustu tengda því og vera hér áfram.“ /VH Dýralæknirinn á svæði 6: Þrír geithafrar geltir Silvia Windmann dýralæknir leit við að Felli í Finnafirði þegar blaðamaður Bændablaðsins var þar í heimsókn. Erindi hennar var að gelda þrjá geithafra. Starfssvæði Silviu er Vopna- fjarðar hreppur, Langanesbyggð, Svalbarðs hreppur og Raufarhöfn, eða þjónustu svæði sex eins og það er kallað. Erindi Silviu að Felli var að gelda þrjá geithafra. Silvía er frá Þýskalandi en búin að búa á Íslandi í fjórtán ár. „Ég kom upphaflega til Íslands í starfs- nám fyrir sautján árum og kynntist núverandi manninum mínum. Að starfsnáminu loknu sneri ég aftur til Þýskalands til að ljúka náminu og svo aftur til Íslands að því loknu.“ Silvia fór sér að engu óðs- lega kringum geithafrana áður en geldingin fór fram. Fyrst voru þeir svæfðir og eftir að þeir höfðu lognast út af lagði hún þá á hliðina. Geldingartólið er stór og mikil töng sem brugðið er við rót pungsins og hert að. Ekki var neitt blóð að sjá við geldinguna en blaðamaður Bændablaðsins lét sér nægja að horfa á eina og hraðaði sér svo burt því ekki var laust við að hann væri töluvert smeykur við geldingatöngina. /VH Myndir / VH Fell við Finnafjörð: Langar að fjölga geitunum og ferðamönnum Myndir / VH

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.