Bændablaðið - 15.12.2016, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Að Felli við Finnafjörð er rekið
sauðfjárbú með rúmlega 400 ám.
Þar eru líka nokkrar geitur og
gerðar tilraunir með framleiðslu
á fetaosti og hafin uppbygging í
ferðaþjónustu.
Ábúendur að Felli eru hjónin
Reimar Sigurjónsson og Dagrún
Þórisdóttir. Þau eiga fjórar dætur,
Unni Vilborgu og Helgu Björk sem
búa í foreldrahúsum en Aníta Dröfn
býr á Þórshöfn og Stefanía Margrét
er í framhaldsskóla.
Reimar var talsvert í fjölmiðl-
um í haust eftir að hann lenti í
hrakförum og festist á klettasyllu
í Gunnólfsvíkurfjalli þegar hann
var að sækja eftirlegukind. Honum
var bjargað af syllunni eftir þrettán
klukkustundir en að hans sögn tók
eltingaleikurinn við kindina sextán
tíma.
Gott land fyrir sauðfé
Á Felli eru 430 vetrarfóðraðar
kindur, fjórtán geitur, sex gæsir,
fimm endur, átta hestar og þrír
hundar.
„Búskapurinn gengur vel sem
slíkur en afkoman af honum er ekki
beint til að hrópa húrra fyrir. Hér
er mikið land og gott fyrir sauðfé
enda jörðin tæpir 4000 hektarar að
stærð. Afurðaverð fyrir lambakjöt
hefur verið lágt og það lækkaði
enn meira síðastliðið haust og við
finnum verulega fyrir því. Það sem
bjargaði okkur var að féð kom vænt
að fjalli.“
Auk þess að reka búið að Felli
starfar Reimar sem meindýraeyð-
ir og vinnur í törnum við löndun.
Dagrún er í 20% starfi hjá hreppn-
um auk þess sem hún er að prófa sig
áfram með að sauma púða sem eru
að hluta úr gærum af lömbum sem
drápust í sauðburðinum síðastliðið
vor. Reimar fláði lömbin og síðan
eru skinnin sútuð og ótrúlega mjúk
viðkomu.
Reimar segir að þau séu með
geitur bæði til gamans og í alvöru.
„Okkur finnst þær skemmtilegar
skepnur og svo býr Dagrún til feta-
ost úr mjólkinni úr þeim. Osturinn
er sem stendur einungis til heima-
brúks en okkur langar til að fjölga
geitunum upp í þrjátíu og hver veit
nema við reynum að markaðssetja
fetaostinn einhvern tíma í framtíð-
inni. Endurnar og gæsirnar eru aftur
á móti bara til gamans.“
Ferhyrnt forustufé
Í fjárhúsunum að Felli er meðal
annars að finna forustufé, ferhyrnd-
ar ær og eina sexhyrnda. Reimar
segist vera að blanda saman fer-
hyrndum hrútum og forystufé og
ætlunin sé að ná fram ferhyrndu
forystufé. „Ástæðan fyrir þessu er
sú að hér á bæ er ferhyrnda féð
rólegra en annað fé og ég kann vel
við það þess vegna.“
Í góðu árferði eins og í ár lætur
Reimar um 180 ær ganga úti í
fjarðarbotni Finnafjarðar stóran
hluta ársins. „Ég færi ánum þrjár
heyrúllur á þriggja til fjögurra
daga fresti en þess á milli eru þær
í fjörubeit og éta þang og þara. Mín
reynsla er sú og nánast óbrigðult að
frjósemin er meiri í útigöngufénu
en því sem er á húsi.“
Byggja upp ferðaþjónustu
Hjónin á Felli eru samhliða hefð-
bundnum búskap að byggja upp
ferðaþjónustu og hafa þegar reist
tvo gistiskála. Annar þeirra var í
útleigu síðastliðið sumar og leigan
gekk ágætlega, að sögn Reimars.
Hitt húsið er á lokametrunum og
verður komið í leigu næsta sumar.
„Við höfum fullan hug á að
markaðssetja Finnafjörð sem
áfangastað fyrir ferðamenn en
fjöldi þeirra sem sækja hingað er
að aukast jafnt og þétt. Það er að
segja þeir sem láta lélegar vega-
samgöngur ekki aftra sér.
Hér eru líka rekahlunnindi sem
við nýtum aðallega til að kynda
íbúðarhúsið með eins og er. Ég klýf
stóra boli í staura en vantar sög til
að saga borðvið.“
Ekki hrifinn af umskipunarhöfn
Að sögn Reimars er fábreytt
atvinnulíf ein helsta ástæða þess að
fólki fjölgar ekki í Langanesbyggð.
Hann bindur vonir við að aukinn
ferðamannastraumur geti bætt úr
því að hluta en segir um leið að sú
grein sé fallvölt og því ekki hægt
að stóla eingöngu á hana.
„Sjálfur er ég ekki hrifinn af því
að hér verði byggð risastór toll-
frjáls umskipunarhöfn sem leggur
undir sig hundruð hektara hér í
firðinum. Náttúran hér er allt of
dýrmæt og viðkvæm til þess. Hér
fyrir utan eru til dæmis mikilvæg
hrygningarmið fyrir þorsk og þau
væru í hættu ef skip strandaði og
af hlytist mengunarslys. Ég vona
því að hugmyndin sé bara draum-
órar og að það verði aldrei neitt af
þessum framkvæmdum.
Við höfðum talsverðar áhyggjur
af þessu á tímabili en erum rólegri í
dag og ætlum því að halda áfram að
byggja upp búið og ferðaþjónustu
tengda því og vera hér áfram.“
/VH
Dýralæknirinn á svæði 6:
Þrír geithafrar geltir
Silvia Windmann dýralæknir
leit við að Felli í Finnafirði þegar
blaðamaður Bændablaðsins var
þar í heimsókn. Erindi hennar var
að gelda þrjá geithafra.
Starfssvæði Silviu er Vopna-
fjarðar hreppur, Langanesbyggð,
Svalbarðs hreppur og Raufarhöfn,
eða þjónustu svæði sex eins og það
er kallað. Erindi Silviu að Felli var
að gelda þrjá geithafra.
Silvía er frá Þýskalandi en búin
að búa á Íslandi í fjórtán ár. „Ég
kom upphaflega til Íslands í starfs-
nám fyrir sautján árum og kynntist
núverandi manninum mínum. Að
starfsnáminu loknu sneri ég aftur til
Þýskalands til að ljúka náminu og
svo aftur til Íslands að því loknu.“
Silvia fór sér að engu óðs-
lega kringum geithafrana áður
en geldingin fór fram. Fyrst voru
þeir svæfðir og eftir að þeir höfðu
lognast út af lagði hún þá á hliðina.
Geldingartólið er stór og mikil töng
sem brugðið er við rót pungsins
og hert að. Ekki var neitt blóð að
sjá við geldinguna en blaðamaður
Bændablaðsins lét sér nægja að horfa
á eina og hraðaði sér svo burt því ekki
var laust við að hann væri töluvert
smeykur við geldingatöngina. /VH
Myndir / VH
Fell við Finnafjörð:
Langar að fjölga geitunum og ferðamönnum
Myndir / VH