Bændablaðið - 15.12.2016, Page 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Sauðanes í Langanesbyggð:
Hestar, reki, sauðfé, silungur og æðarkollur
Ágúst Marinó Ágústsson er bóndi
á Sauðanesi í Langanesbyggð
ásamt sambýliskonu sinni,
Steinunni Önnu Halldórsdóttur,
ráðunauti hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins, og Katrínu,
dóttur hennar. Auk þeirra er
Ágúst Guðröðarson, faðir Ágústs,
búsettur að Sauðanesi.
Sauðanes er þekkt hlunnindajörð
sem er um 2.500 hektarar að stærð
og þar var eftirsótt prestssetur fyrr
á öldum.
„Ég er fæddur og uppalinn á
Sauðanesi og áar mínir hafa búið hér
frá því að móðurafi minn settist hér
að sem prestur. Við Steinunn tókum
við búinu af pabba fyrir fimm árum
og erum með um 800 vetrarfóðraðar
kindur og 50 hross. Auk þess tek ég
stundum til mín hesta frá öðrum til
tamninga.
Ágúst er hestamaður af lífi og sál
og með sérreiðkennararéttindi frá
Hólum í Hjaltadal. Hann hefur átt
þrjár merar sem hafa unnið til fyrstu
verðlauna á landsmótum. „Ein þeirra
heitir Sóllilja, er móvindótt og mikil
úrvals meri sem hefur slegið í gegn
á tveimur landsmótum.“
Talsverður reki
Talsverður reki er á Sauðanesi og
hann telst til hlunninda. „Ég nýti rek-
ann í staura bæði fyrir sjálfan mig og
svo sel ég þá líka. Bestu bolina saga
ég í borð sem annaðhvort eru nýtt til
húsbygginga eða sem grindarefni í
útihúsum. Viðurinn er líka notað-
ur til húshitunar og svo er ég með
sérsmíðaða vél sem tætir viðinn í
spæni sem við notum sem undirburð
fyrir hrossin. Tækið er eins og stór
þykktarhefill sem tætir niður boli
sem ekki nýtast í eitthvað annað.“
Ágúst segir mikið hafa dregið
úr reka undanfarin ár og að hann sé
mest að nota gamlar birgðir. Góður
helmingur af birgðunum grisjast burt
þegar valinn er viður til að saga í
borð og hann er notaður í staura,
brenni og spæni.“
Fornfrægt æðarvarp
Á Sauðanesi er fornfrægt æðarvarp
og segir Ágúst hreiðrin hafa verið
um 1700 í vor sem er 200 fleiri
en árið áður. Flest voru hreiðrin í
eyju í Sauðaneslóni sem er austur
af bænum Sauðanesi, eða um 900.
„Skammt frá Sauðaneslóni liggur
raflína eftir Sauðanesmölum sem
er dauðagildra fyrir æðarfuglinn
þar sem hún sker fluglínu fuglsins í
æti. Þrátt fyrir margítrekaðar beiðnir
hefur Rarik ekki fengist til að leggja
línuna þarna í jörð þrátt fyrir að
Sauðaneslón sé á náttúruminjaskrá.“
Ágúst segist safna dúninum eins
þurrum og hann getur og hristi mestu
óhreinindin úr honum en láti síðan
hreinsa hann fyrir sig. Í ár söfnuð-
ust um hundrað kíló af óhreinsuðum
dúni sem kom út sem 28 kíló eftir
hreinsun sem er met hjá þeim.
Hér er líka talsverð silungsveiði
í öllum vötnum og sum þeirra eru
leigð út til stangveiðimanna. /VH
Ágúst Marinó Ágústsson við bandsög sem notuð er til að saga borð úr rekavið. Myndir / VH
Rekaviðarbolur sem verið er að saga
í borð.
Borð úr rekavið.
Ágúst Marinó með spæni sem unnið er úr rekavið og notað sem undirburður
fyrir hesta.
Ábúendur á Syðra-Álandi í
Þistilfirði reka gistiheimilið
Stakkholt á Þórshöfn sem býður
gistingu fyrir 25 manns. Á næsta
ári stendur til að fjölga gistirým-
um.
Hjónin Karen Rut Konráðsdóttir
og Ólafur Birgir Vigfússon, sauð-
fjárbændur á Syðra-Álandi við
Þistilfjörð, eru með 500 kindur á
fóðrum og auk kindanna erum við
með tvo hesta og tvo hunda og einn
kött.
Þau reka einnig gistiheimilið
Lyngholt á Þórshöfn og hafa gert
það frá aldamótum.
Karen segir að gistiaðstaðan sé
rekin í þremur húsum í þorpinu sem
þau hafa keypt og gert upp og fjórða
og jafnvel fimmta húsið munu bæt-
ast við fljótlega.
Gistirýmum fjölgar
„Eins og er bjóðum við gistirými
fyrir tuttugu og fimm manns
á þremur stöðum. Aukningin í
fjölda ferðamanna sem heimsækja
Þórshöfn hefur verið jöfn og þétt
og við höfum fjölgað gistirýmum
í samræmi við það. Atvinnuástand
í sveitinni er líka gott þannig að hér
er stanslaus straumur fólks sem þarf
gistingu allan ársins hring.“
Margir ungir bændur í Þistilfirði
Karen segir óvenjulega mikið af
ungu fólki sem eru bændur og
nánast ungar fjölskyldur með börn
á hverjum bæ í Þistilfirði.
„Í mínum huga er nánast ekki
hægt að lifa á kindunum einum
saman og sauðfjárbúskapur nán-
ast dýrt hobbý eins og ástandið er
í dag. Ég stunda fulla vinnu með
gistiheimilisrekstrinum og þannig
gengur dæmið upp hjá okkur. Þrátt
fyrir það viljum við hvergi annars
staðar vera. Við höfum mikla trú á
framtíð sveitarfélagsins og viljum
leggja okkar af mörkum við upp-
byggingu þess og búa eitthvað til.
/VH
Gistiheimilið Lyngholt:
Sauðfjárbúskapur
er dýrt hobbý
Karen Rut Konráðsdóttir, sauðfjárbóndi og gistihússtýra. Mynd / VH