Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Helga R. Pálsdóttir og Helgi
Eggertsson reka myndarlega
gróðrarstöð og hrossarækt að
bænum Kjarri í Ölfusi. Þau segjast
vart muna aðra eins veðurblíðu og
ríkt hefur stóran hluta af þessu
ári.
„Við erum að framleiða hér
tré, skrautrunna, limgerðis- og
skjólbeltaplöntur. Trén sem við
erum að selja eru alveg upp í
þriggja til fjögurra metra há.
Hnausaplönturæktun er svolítið
okkar sérgrein í trjáræktinni,“ segir
Helga. Þar á hún við að trén eru
undirbúin í uppeldinu til flutnings
síðar og þá seld í hnaus sem er
íklæddur striga sem auðveldar mjög
allan flutning. Framleiðsluna sýna
þau á stóru útisvæði yfir sumarið.
Þar eru allar plönturnar vel merktar
samkvæmt ákveðnu merkingakerfi
sem garðplöntuframleiðendur hafa
látið útbúa fyrir sig. Framleiðsluna
selja þau síðan á staðnum beint til
viðskiptavina.
„Þetta hefur gengið ágætlega, en
vissulega er gífurlega mikil vinna í
kringum þetta. Þegar vel viðrar sýnir
fólk þessu þó meiri áhuga en ella.“
Helga R. Pálsdóttir er fædd
norður í Skagafirði en uppalin á
bænum Kröggólfsstöðum rétt fyrir
neðan Hveragerði.
„Mamma, Sigurbjörg Jóhannes-
dóttir, er ein af systrunum 7 frá
Merkigili í Skagafirði, en pabbi,
Páll Sigurðsson, var hestamaður og
kenndur bæði við Fornahvamm og
Varmahlíð.“
Helgi Eggertsson er aftur á móti
fæddur og uppalinn á Selfossi.
Faðir hans er Eggert Vigfússon
frá Selfossi og móðir Hulda
Vilhjálmsdóttir frá Laugabökkum
í Ölfusi.
Trjásalan aftur að ná sér á strik
eftir hrunið
Helga segir að efnahagshrunið
2008 hafi ekki haft svo mikil áhrif
á viðskiptin til að byrja með.
„Við vorum að selja nokkuð jafnt
og þétt fyrir verkefni sem höfðu
verið í gangi fyrir hrunið, en síðan
fór að draga úr þessu. Ég held að
þetta sé nú allt á uppleið og að koma
til baka núna.“
Helga segir að trjágróðurinn sem
fólk sé að kaupa sé af fjölmörgum
tegundum og í ýmsum stærðum.
Birkið er alltaf vinsælt, reynitegund-
ir, elri, greni og fura að ógleymdum
öllum skrautrunnunum.
„Við erum búin að búa hér í 35 ár.
Við tókum þá við búi af föðursystur
minni, Rögnu Sigurðardóttur, sem þá
var nýlátin. Hennar maður var Pétur
Guðmundsson, sem lést nokkrum
árum áður en við komum að þessu.
Þegar við tókum við var í sjálfu sér
engin ræktun í gangi. Ragna og Pétur
höfðu dregið saman seglin sökum
aldurs en skjólbelti voru til staðar.
Við gátum nýtt okkur skjólbeltin, en
mýrin hér fyrir ofan bæinn var bara
grasi vaxin.“
Óskaplega frjór jarðvegur í
mýrinni ofan við bæinn
–Nú eruð þið búin að rækta upp
myndarleg tré í þessari mýri, er
þetta ekki súr og vondur jarðvegur
til þess?
„Nei, þetta er eðaljarðvegur,
óskaplega frjór og góður. Þarna
vex allt sem sett er niður. Ég held
því fram að þessi jarðvegur bjargi
því að hægt sé að rækta hér þar sem
hvassviðri getur verið mjög mikið.“
Þegar við hófum hér búskap
vorið 1981 var Helgi að útskrifast
úr framhaldsdeildinni á Hvanneyri.
En ég úr MA. Í framhaldinu fór ég
í Garðyrkjuskólann, en Helgi starf-
aði í mörg ár hjá Búnaðarsambandi
Suðurlands sem ráðunautur á
ýmsum sviðum.“
Helgi átti hesthús á Selfossi
þegar þau kynntust. Þar voru þau
með sín hross til að byrja með. Eftir
að þau fluttu að Kjarri hafa þau
byggt upp nær allan húsakost sem
nú stendur á jörðinni, þar á meðal
hafa þau stækkað íbúðarhúsið, byggt
hesthús og veglega reiðskemmu og
lítið fjárhús fyrir 20 kindur. Reyndar
segist Helgi hafa verið rekinn út úr
hlöðunni með kindurnar af því að
einhverjum hafi fundist vera vond
lykt af þeim.
Eitt þriggja barna við nám í
hestamennsku
Þau hjón eiga þrjú börn, Pál, Rögnu
og Eggert, sem öll eru á þrítugsaldri.
Eggert er á öðru ári á hestabraut
við Háskólann á Hólum og er með
brennandi áhuga á hestamennsku.
Páll er aftur á móti að ljúka lækn-
isfræði og Ragna verkfræðinámi.
Helga segir að það hljóti eitthvað
að hafa klikkað hjá þeim í uppeldinu
þar sem ekkert barnanna hefur sýnt
sérstakan áhuga á garðyrkjunámi.
„Þau hafa samt öll tekið þátt í
þessu með okkur og byrjuðu að
vinna við þetta um leið og þau gátu
gengið. Svo þau þekkja okkar störf
mjög vel.“
Byrjuðu að byggja hlöðuna 1987
„Við byrjuðum á að byggja hér
hlöðu 1987 og síðan hesthús 1988
sem tekið var í notkun 1989. Nú
síðast bættum við viðbyggingu við
hlöðuna og reiðskemmunni sem við
tókum í notkun haustið 2013,“ segir
Helga.
Nú er búið að endurnýja í hest-
húsinu og hlöðuna sem þau byggðu
fyrst tóku þau í gegn á síðasta ári.
Hesthúsið rúmar nú 30 hross. Þau
eru nú með um 70 hross og að jafn-
aði fæðast 7–10 folöld á ári. Helgi
sér síðan um uppeldið á hrossunum
Öflug garðplöntusala og hrossarækt að Kjarri í Ölfusi:
Í skjóli trjánna undir vindbörðu
fjalli Ingólfs
Helgi Eggertsson og Helga R. Pálsdóttir á bænum Kjarri í Ölfusi í reiðskemmu sem þau létu reisa 2013. Auk hrossaræktar reka þau mjög myndarlega gróðrarstöð þar sem áherslan er á ræktun
trjáa, skrautrunna, limgerðis- og skjólbeltaplantna. Á innfelldu myndinni er hesthúsbygging og reiðskemman. Mynd / HKr. .
Helga R. Pálsdóttir með lauftré sem tilbúin eru til afhendingar. Helga við stórt birkitré.
Sölusvæðið í Kjarri. Mynd / HRP/HE