Bændablaðið - 15.12.2016, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
og tamningar með dyggri aðstoð
konu sinnar og barna.
Of mörg hross á markaðnum
Helgi segir að hans hlutverk á bænum
lúti mest að hestamennskunni. Hann
segir að þau rækti upp hesta og temji
til að selja. Afsetning á hrossum
mætti vera betri, en hann segir að
offramboð á markaði ráði þar mestu
um. Reyndar hafa hestamenn verið
að ræða um það árum saman að full
þörf væri á að grisja stofninn.
Á síðasta ári voru samkvæmt
tölum Matvælastofnunar 67.358
hross í landinu. Mögulega er um
einhverja vantalningu að ræða,
einkum í þéttbýli. Nákvæmari tölur
um hrossaeign landsmanna ættu að
liggja fyrir vorið 2017.
„Það tekur þó (mjög) langan tíma
frá því hætt er að halda merum þar
til draga fer úr fjöldanum sem kemur
inn á markað,“ segir Helgi. Hann
segir að þetta sé vissulega í áttina en
er ekki sérlega bjartsýnn á að menn
dragi nægilega úr framleiðslu.
Kúabúskapur nær horfinn úr
Ölfusinu en hestamennskan öflug
Helgi segir að miklar breytingar hafi
átt sér stað í landbúnaði í Ölfusinu
á liðnum áratugum. Um 1960 hafi
verið um 60 mjólkurinnleggjendur
í Ölfusinu, en nú sé einungis einn
eftir. Það er Pétur Guðmundsson í
Hvammi, sem var einmitt að vígja
nýja fjósbyggingu á dögunum.
Það eru hins vegar mörg hrossabú
í Ölfusinu þar sem stunduð er
fjölbreytt hestatengd starfsemi.
Hrossarækt, tamningar, hestaleigur
að ógleymdu hestaleikhúsinu í
Fákaseli. Ölfusið er vel í sveit sett
og njótum við nálægðarinnar við
höfuðborgina.
Reiðskemman var algjör bylting
Helgi er stoltur af reiðskemmunni
sem er 16x40 metra límtréshús, eða
640 fermetrar að grunnfleti. Það
er byggt af Límtré á Flúðum, eða
Límtré Vírnet ehf., eins og fyrirtæk-
ið heitir í dag. Þeir teiknuðu einnig
millibygginguna sem tengir skemm-
una við hlöðuna.
„Það var algjör bylting að fá
skemmuna. Þá er maður ekkert háður
veðrum með þjálfun. Þetta verður
allt mun þægilegra, eins og í þeirri
endalausu rigningartíð sem hér var
í haust. Auðvitað hefði maður getað
farið í galla og skarkað hér úti, en
skemman gerir manni kleift að vinna
þetta jafnt og þétt alla daga ársins.
Áður komu oft heilu vikurnar sem
ekkert var hægt að gera vegna veðurs
og þá þurfti að nota helgarnar þegar
rofaði til.“
Þar sem vindálag getur verið
mjög ofsafengið undir Ingólfsfjallinu
mætti ætla að hús eins og þessa
reiðskemmu þurfi að styrkja
sérstaklega. Sú varð þó ekki raunin
þar sem byggingarnar frá Límtré
eru gerðar til að þola mjög mikið
álag. Eigi að síður bað Helgi um
að vegghæðin yrði ekki meiri en
nauðsynlega þyrfti.
Helgi segir að þegar þau ákváðu
að byggja skemmuna 2013 hafi
staðið einstaklega vel á hjá Límtré
sem hófst þegar handa við verkið.
Þá var enn lægð í framkvæmdum í
þjóðfélaginu og ágætt aðgengi að
iðnaðarmönnum. Þetta er gjörbreytt
í þeirri uppsveiflu sem nú ríkir.
„Lenti bara í þessu“
Þó segja megi að hestamennskan
eigi nú huga Helga að verulegu
leyti, þá er hann ekki fæddur inn
í sveitastörf og ólst alls ekki upp
við hestamennsku eins og Helga
konan hans.
„Ætli ég hafi ekki verið um tíu
ára aldurinn þegar ég fór að sniglast
út í hesthús á Selfossi. Það var ekk-
ert af mínu fólki í hestamennsku.
Maður bara lenti í þessu eins og
sagt er, eiginlega fyrir einhverja
tilviljun,“ segir Helgi.
„Hjá okkur sem höfum þetta að
atvinnu, þá snýst þetta allt um hesta.
Það er vinnan, það er hobbýið og
allt. Menn hugsa eiginlega ekki um
neitt annað.“
–Nú starfaðir þú lengi hjá
Búnaðarsambandi Suðurlands
(BSSL), hvert var þitt hlutverk þar?
„Ég var þar í ráðgjöf í loðdýra-
rækt og hrossarækt og svolítið
í jarðræktinni líka. Ætli ég hafi
ekki verið í sjö ár þar í fullu starfi.
Svo var ég í nokkur ár í viðbót
að sinna loðdýraræktinni. Þá var
hestamennskan farin að taka svo
mikinn tíma að ég mátti ekki vera
að því að sinna starfinu lengur hjá
Búnaðarsambandinu.“
–Er bjart fram undan í hesta-
mennsku á Íslandi?
„Já, ég held að þetta eigi eftir
að verða áfram öflugt áhugamál og
atvinna fyrir marga,“ segir Helgi.
Hann telur að útflutningur á hross-
um sé að aukast, en hann hafi
verið nokkuð stöðugur undanfar-
in ár. Jafnvel þótt bæði Danir og
Svíar hafi verið að koma meira inn
í söluna með sín íslensku hross.
Innanlandsmarkaðurinn er líka að
rétta úr kútnum.
Sumarexem veldur enn vanda
hjá íslenskum hrossum erlendis
Það eru dýrustu keppnishrossin
sem hafa verið að seljast vel. Aftur
á móti hefur salan á þessum venju-
legu reiðhrossum minnkað mikið
um langan tíma. Það er einkum út
af sumarexeminu. Venjulegt fólk
sem stundar hestamennsku erlendis
í sínum tómstundum, hefur bara
ekki aðstöðu til að passa eins vel
upp á þá eins og atvinnu- og keppn-
isfólkið. Það pakkar hrossum bara
inn og vefur þá inn í ábreiður á
þeim tíma þegar flugan er skæð-
ust.“
–Hvað með hesta undan íslensk-
um hrossum erlendis eins og í
Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi,
eru þeir eins útsettir fyrir sumarex-
emi og hross sem héðan eru flutt?
„Það er lægra hlutfall af þeim
sem fær sumarexem. Það er búið
að vera að reyna að finna bóluefni
gegn sumarexemi. Það er bara
spurning hvenær það kemur.“
Hann segir að menn dreymi líka
um að finna mögulega lækningu
fyrir hross sem hafi þegar smitast
af exemi. Staðan er þannig í dag
að ef hross fær exem, þá losnar
það ekkert við það nema vera þá
flutt á svæði sem er laust við áreiti
flugunnar sem veldur því. Helgi
segir að þessi áhætta fyrir exemi
sé þekkt í öllum hrossakynjum, en
mismikið þó. /HKr.
Sumarexem er ofnæmi í hrossum með framleiðslu
á IgE mótefnum sem orsakast af próteinum úr
bitkirtlum smámýs (Culicoides spp.).
Ofnæmið er vandamál í íslenskum hestum sem
fluttir eru út en smámý lifir ekki á Íslandi að því er
fram kemur á vefsíðu Háskóla Íslands. Ekki virðast
vera nein rök fyrir því að flugan hafi ekki náð fótfestu
hér. Ekki er útilokað að hún berist hingað líkt og lúsmý
sem olli mörgu fólki miklum óþægindum á sunnan- og
vestanverðu landinu á síðastliðnu sumri.
Á Keldum er unnið að þróun bólusetninga gegn
sumarexemi. Niðurstöður tilraunabólusetninganna
birtust nýverið í nýjasta tölublaði Vet Immunol
Immunopathol. Rannsóknaverkefnið er doktorsver-
kefni Sigríðar Jónsdóttur sem hún vinnur undir leið-
sögn Sigurbjargar Þorsteinsdóttur ónæmisfræðings
og Vilhjálms Svanssonar, dýralæknis á Tilraunastöð
Háskóla Íslands að Keldum, auk þess sem samvinna er
við svissneskan rannsóknahóp. Samanburðartilraunir
á tólf hestum gáfu markverðar jákvæðar niðurstöður.
Sprautun í eitla með smáum skömmtum af hrein-
um ofnæmisvökum í alum/MPLA örvar kröftugt IgG
mótefnasvar og boðefnasnið sem líklegt er til að
verja hestana gegn ofnæmi. Þetta er því að mati vís-
indamanna vænleg nálgun í áframhaldandi þróun á
bóluefni og „afnæmingu“ gegn sumarexemi.
Unnið að þróun mótefnis við biti smámýs
Bærinn Kjarr er staðsettur undir Ingólfsfjalli skammt vestan við Selfoss, þar
Mynd / HRP/HE
Mynd / HRP/HE
Mynd / HKr.
Weidemann smávélar og skotbómur
á stórlega lækkuðu verði.
VER
ÐLÆ
KKU
N
VER
ÐLÆ
KKU
N
VER
ÐLÆ
KKU
N
nar hefur Vegna styrkingar krónun
að fá sér sjaldan verið hagstæðara
kotbómur. Weidemann smávélar og s
ÚRVA
L VÉL
A Á L
AGER