Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Vélaframleiðslufyrirtækið
Clayton og Shuttleworth var
stofnað árið 1841. Stofnendurnir
voru erfingi bátasmiðju og eig-
andi málmbræðslu í Lincol-skíri
í Bretlandi. Endalok fyrirtækis-
ins voru sem Rauða stjarnan í
Ungverjalandi.
Markmið fyrirtækisins í upp-
hafi var að smíða gufuvélar og
landbúnaðartæki.
Fyrstu gufu- og þreskivél-
ar Clayton og Shuttleworth litu
dagsins ljós 1849. Vélarnar reynd-
ust vel og á skömmum tíma var
fyrirtækið leiðandi á sínu sviði
á Bretlandseyjum. Á fyrstu
tveimur árum seldi fyrirtæk-
ið meira en 200 gufuvélar
og 2400 á fyrsta áratugn-
um. Árið 1870 voru starfs-
menn fyrirtækisins 1200 og
árið 1890 hafði Clayton og
Shuttleworth framleitt og selt
26.000 gufuvélar og 24.000
þreskivélar.
Útflutningur Clayton og
Shuttleworth var einnig tals-
verður á þessum árum og fyrir-
tækið með útibú víða í mið- og
austanverðri Evrópu og rak verk-
smiðju í Ungverjalandi. Auk þess
sem talsvert var flutt af þeim til
Rússlands.
Fyrsti traktorinn
Í byrjum annars áratugs síðustu
alda hóf Clayton og Shuttleworth
framleiðslu á dráttarvélum. Fyrsti
traktorinn var settur á markað
1911 og var stór og þunglamaleg
með fjögurra strokka olíuvél og
sjö hestöfl. Dráttarvélin var yfir-
byggð og á þremur járnhjólum.
Fyrirtækið gekk vel og 1914 voru
starfsmenn þess 2100.
Fjórum árum seinna, 1916,
sendi fyrirtækið frá sér aðra
fjögurra strokka dráttarvél sem
gekk fyrir steinolíu. Sú vél var 40
hestöfl og í framleiðslu til 1929.
Um svipað leyti var einnig
í framleiðslu hjá Clayton og
Shuttleworth 100 hestafla belta-
traktor.
Framleiðsla á flugvélum
Árið 1916 víkkaði Clayton
og Shuttleworth út fram-
leiðslu sína og hóf smíði á
flugvélahlutun og snemma
í heimsstyrjöldinni fyrri hóf
það framleiðslu á flugvél-
um fyrir breska flugherinn.
Næstu þrjú árin smíðaði fyr-
irtækið ríflega 500 flugvélar
fyrir herinn. Fyrstu vélarnar
voru þrívængjur sem köll-
uðust Sopwith Triplane og tví-
vængjan Sopwith Camel fylgdi
í kjölfarið. Stærsta flugvélin frá
Clayton og Shuttleworth var
sprengjuflugvél sem bar heitið
Handley Page 0/400.
Frægasta flugvélin sem
Clayton og Shuttleworth fram-
leiddi var af gerðinni Sopwith
Camel en flugmaður einnar þeirra,
Roy Brown, skaut niður Rauða
baróninn.
Gjaldþrota í kreppunni
Kreppan á þriðja áratug tutt-
ugustu aldar kom illa við mörg
stöndug fyrirtæki og var Clayton
og Shuttleworth eitt af þeim.
Fyrirtækið var fjárvana og tók
Marshall, Sons & Co. yfir rekstur
þess í Bretlandi.
Rauða stjarnan
Verksmiðjan í Ungverjalandi
var yfirtekin af vélaframleið-
andanum Hofherr-Schrantz
og úr varð Hofherr-Schrantz-
Clayton-Shuttleworth Hungarian
Machine Factory. Meðan á hersetu
Sovétríkjanna í Ungverjalandi stóð
var verksmiðjan þjóðnýtt og fékk
heitið Vörös Csillag Traktorgyár
eða Dráttarvélaverksmiðjan
Rauða stjarnan. Frá 1973 var
Rauða stjarnan hluti af ungverska
bifreiðaframleiðandanum Rába
fyrirtæki var lagt niður árið 2010.
/VH
Clayton og Shuttleworth
og Rauða stjarnan
Utan úr heimi
Barbara Abdeni Massaad er
líbönsk hugsjónakona, formaður
Slow Food-deildarinnar í heima-
landi sínu og höfundur bókarinnar
Súpa fyrir Sýrland, sem gefin var
út fyrir rúmu ári. Tilgangur bóka-
útgáfunnar er að leggja hjálpar-
starfi Sameinuðu þjóðanna lið í því
að sjá stríðshrjáðu flóttafólki frá
Sýrlandi fyrir matarnauðsynjum.
Massaad, sem er ljósmyndari,
sjónvarpskona og matreiðslubóka-
höfundur með meiru, kynnti verkefni
sitt á Slow Food-hátíðinni í Tórínó í
lok september síðastliðnum.
Hún býr í Beqaa-dalnum í
Líbanon þar sem um hálf milljón
flóttafólks hafðist við í flóttamanna-
búðum, þegar hún fór að láta sig
varða um ástand þess fyrir rúmu ári
síðan. „Ég vissi af þessum flótta-
mannabúðum og hugsaði oft til
fólksins þar og um aðbúnaðinn hjá
þeim – og hugsanirnar létu mig ekki
í friði. Ég fór því að venja komur
mínar í búðirnar í hverri viku sem eru
í um 45 mínútna fjarlægð frá húsinu
mínu. Ég vissi í raun ekki hvernig
ég gæti hjálpað í fyrstu. Þar sem
ég er ljósmyndari var ég alltaf með
myndavélina með mér og safnaði
myndefni um leið og ég talaði við
fólkið. Ég er líka matarbókahöfund-
ur því varð mér smám saman ljóst
hvernig ég gat lagt mitt lóð á vogar-
skálarnar til hjálpar. Við vinkona mín
byrjuðum bara á að búa til súpu á
Slow Food-markaðnum okkar og
fara með í flóttamannabúðirnar. Svo
fæddist hugmynd sem mér fannst
stórsniðug; að nota myndirnar sem
ég hafði tekið og búa til súpuupp-
skriftabók, því súpa er frábær matur
og nærir bæði líkama og sál.
Þar sem ég er formaður
Slow Food- hreyfingarinnar
í Líbanon á ég
marga vini um
allan heim og
gott tengslanet.
Ég nýtti mér
það til að fá
þekkt nöfn til
liðs við mig
– og leggja
til uppskrift-
ir fyrir bók-
ina. En ég
vildi líka fá
u p p s k r i f t -
ir frá þeim
sem standa
mér næst;
fjölskyldu,
nágrönnum
og vinum.
Ég stofnaði því Facebook-síðu
og bað allt þetta fólk um að leggja
til uppskriftir. Svo fórum við í strangt
matsferli og mátum þær 200 upp-
skriftir sem bárust,“ sagði Barbara
um aðdragandann að útgáfu bókar-
innar.
Samhygðin mælikvarðinn á
siðmenninguna
Carlo Petrini,
stofnandi og for-
seti Slow Food-
hreyfingarinnar,
ritar formála
að henni. Þar
segir hann
meðal annars:
„ M æ l i k v a r ð i
á siðmenningu
fólks er meðal
annars hversu
viljugt það er að
sýna fólki sam-
hygð sem er í
neyð. Ef þetta á
við um staðbund-
in samfélög gildir
þetta enn frekar á
alþjóðlegum vett-
vangi. Á okkar tímum hefur aldrei
verið meira aðkallandi fyrir okkur
að hafa þetta í huga en nú, þegar við
höfum allt of lengi þurft að horfa upp
á hinar yfirþyrmandi hörmungar í
Sýrlandi. […] Hið fallega við þetta verkefni
[Súpa fyrir Sýrland] er matarþemað,
en matur er alltaf gagnlegt tæki til
að tengja fólk saman og byggja brýr
með. Það kemur enda ekki á óvart að
eitt að því fyrsta sem ráðist er gegn
og eyðilagt, þegar stríð brýst út, er
matvælaframleiðsla og landbúnaður.
Kerfisbundið hefur verið ráðist að
bændum í Sýrlandi og ræktarlönd
eyðilögð – sjálfsmyndin rifin í sund-
ur og búseta í dreifbýli útilokuð um
langan tíma.“ [Lausleg þýðing blm.]
Áttatíu súpuuppskriftir
Nærri 80 manns leggja til uppskriftir
í bókina; allflestir nafnkunnir mat-
reiðslumenn og matreiðslubókahöf-
undar.
Þeir sem vilja leggja verkefninu
lið – og eignast í leiðinni úrval súpu-
uppskrifta úr smiðju meistarakokka –
geta keypt bókina á vefnum í gegnum
slóðina soupforsyria.com, þar sem
frekari upplýsingar um verkefnið er
að finna. /smh
Bókaútgáfa til hjálpar flóttafólki frá Sýrlandi:
Súpa fyrir Sýrland
Barbara Abdeni Massaad rakti forsögu bókaútgáfunnar á viðburði á Slow
Food-hátíðinni sem haldin var í Tórínó í haust. Myndir / smh
Opna úr bókinni. Mark Bittman er kunnur fyrir skrif sín um mat; bæði bókaskrif
og fyrir fjölmiðla – meðal annars New York Times. Hann leggur hér til upp-
skrift að kjötsúpu; hrísgrjónasúpu með nauta- eða svínakjöti.
Dóra Svavarsdóttir (t.v.), eldaði ásamt Þóri Bergssyni fyrir Íslands hönd í
Terra Madre eldhúsinu á Slow Food-hátíðinni í Tórínó fyrir tveimur árum. Þá
deildu þau eldhúsi með Líbanon og syni Massaad, en afrakstur af sölunni
sínum til hjálpar í eldhúsinu.
Á Soup for Syria-viðburðinum í
og tómatsúpa var þar seld í þágu
málefnisins.