Bændablaðið - 15.12.2016, Page 59
59Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Fjárlagafrumvarp Alþingis vegna
ársins 2017 liggur nú fyrir. Í yfirliti
um lagabreytingar sem fylgja því
er lagt til að lög um búnaðargjald
verði felld úr gildi frá og með 1.
janúar 2017.
Engin ástæða er til að halda
annað en að
þetta nái fram
að ganga.
Nýir tímar
taka við í
tekjuöflun í
félagskerf i
bænda, þar
sem byggt
er á félaga-
frelsi og aukinni markaðstengingu.
Búnaðargjald er skattur á búvöru-
framleiðendur og var heildarvelta
þess um 510 milljónir króna vegna
ársins 2015, þar af var hlutur
Bændasamtakanna um 133 m.kr.
Auk þess runnu fjármunir af því
til búnaðarsambandanna, búgreina-
félaganna, Bjargráðasjóðs og til
Ráðgjafarþjónustu landbúnaðar-
ins. Það má því öllum vera ljóst að
þessi breyting varðar grunnstoðir í
félagskerfi og stoðþjónustu land-
búnaðarins.
Nýjar leiðir við fjármögnun
félagskerfis bænda
Unnið hefur verið að því um nokkurt
skeið að finna og móta nýjar leiðir
til að fjármagna félagskerfi bænda.
Aðildarfélög BÍ eru mislangt komin
í sinni útfærslu, ýmist er um að ræða
veltutengingu eða nefskatt, allt eftir
því hvað hentar viðkomandi félagi.
Það má segja að búnaðarsamböndin
hafi ákveðið forskot umfram önnur
félög því það er hefð fyrir því að
þau innheimti félagsgjöld hjá sínum
félagsmönnum til að kosta félagslega
starfsemi.
Markmiðið að allir bændur verði
félagsmenn í BÍ
Þegar farið var að útfæra heimild í
samþykktum Bændasamtakanna á
innheimtu veltutengds gjalds komu
í ljós vankantar sem erfitt var að
sjá fyrir. Helstu gallar eru þeir að
þegar búnaðargjaldið fellur niður,
fellur einnig niður lagastoð fyrir
landbúnaðarframtalinu og þar
með sú sundurliðun tekna. Þær
upplýsingar sem fengust til að
byggja veltutenginguna á væru
því mjög ónákvæmar og kölluðu
á mikið eftirlit og utanumhald.
Upplýsingar úr framtölum eru auk
þess mjög gamlar og þá væri verið
að vinna með tveggja ára gömul
gögn. Þegar ljóst var að um alvöru
hindrun var að ræða skipaði stjórn
Bændasamtakanna starfshóp til að
vinna að málinu. Í starfshópnum
störfuðu auk undirritaðrar stjórnar-
mennirnir Einar Ófeigur Björnsson
og Eiríkur Blöndal. Við höfðum
ákveðin gildi að leiðarljósi í starf-
inu, sem voru að félagsgjöldin ættu
að vera einföld, skilvirk, sanngjörn,
tryggja þátttöku og vera gegnsæ.
Einnig vildum við ná fram ákveðn-
um ferskleika og komast út úr
umræðunni um búnaðargjaldið sem
oft og tíðum hefur verið neikvæð.
Það væri ekki gott upplegg inn í
nýja tíma að halda í „gamalt“ kerfi,
heldur væri lag að endurskipuleggja
fyrirkomulagið á jákvæðum nótum.
Starfshópurinn skoðaði nokkrar
leiðir sem gætu hentað við innheimtu
á félagsgjöldum. Niðurstaða þeirrar
vinnu var sú að leggja til fast gjald á
hvert bú. Félagsgjaldið verði 42.000
kr. á ári og því fylgi full aðild fyrir
tvo einstaklinga. Vilji fleiri sem
standa að búinu fá full réttindi þarf
að greiða aukagjald. Gert er ráð
fyrir lægra gjaldi fyrir lítil bú. Með
þessu sanngjarna gjaldi er markmið-
ið að allir starfandi bændur verði
félagsmenn í Bændasamtökunum og
njóti félagslegra réttinda og þeirr-
ar þjónustu sem er þar í boði. En
skilyrði er enn sem fyrr að félagar
verða að vera í minnsta kosti einu
aðildarfélagi BÍ til að geta verið
fullgildir félagsmenn. Stjórn
Bændasamtakanna gerði þessar
tillögur að sínum sem nú hafa bæði
verið kynntar á formannafundi sam-
takanna og samþykktar með breyting-
um á samþykktum á aukabúnaðar-
þingi sem haldið var í lok nóvember.
Kynningarfundir í janúar
Ástæða er til að minna hér sérstak-
lega á fundarferð Bændasamtakanna
um landið í byrjun janúar. Þar verð-
ur farið ítarlega yfir þessi mál með
félagsmönnum. Á fundunum gefst
kjörið tækifæri fyrir alla að koma
skoðunum sínum á framfæri og
spyrja út í þau atriði sem eru óljós.
Þar verður einnig dregið fram hver
ávinningur bænda er að því að
halda úti þeirri fjölþættu starfsemi
sem fellur undir Bændasamtökin
og sú staðreynd að þau starfa fyrir
ykkur öll. Bændasamtökin eru
regnhlífarsamtök sem vinna að því
að gæta heildarhagsmuna íslenskra
bænda. Slagkraftur fjöldans er
nauðsynlegur í hagsmunabaráttunni
til að árangur náist. Þess vegna er
nauðsynlegt að standa saman að
baki öflugum bændasamtökum.
Guðbjörg Jónsdóttir,
verkefnastjóri hjá BÍ
gj@bondi.is
Lífland óskar viðskiptavinum og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs!
www.gistihusid.is / www.lakehotel.is - S: 471-1114 - hotel@gistihusid.is
ÞÖKKUM ÁNÆGJULEG VIÐSKIPTI
Á ÁRINU 2016
ÓSKUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR
Á faglegum nótum
Félagsgjöld BÍ verða einföld, skilvirk og sanngjörn
Guðbjörg Jónsdóttir.
Fjársveltið leiðir til hruns
Markaðsstofa Norðurlands gagn-
rýnir harðlega frumvarp til fjár-
laga sem nú liggur fyrir Alþingi.
Í því frumvarpi er ekki gert ráð
fyrir að fjármagna nýsamþykkta
samgönguáætlun og vantar þar
mikið upp á.
Markaðsstofan hefur sent frá
sér yfirlýsingu þar sem hún furðar
sig á þessu misræmi sem gengur
þvert gegn yfirlýsingum flestra
stjórnmálamanna fyrir nýafstaðnar
kosningar um nauðsyn þess að setja
meira fjármagn í uppbyggingu inn-
viða. „Fyrir ferðaþjónustu á Íslandi
er viðhald og uppbygging vegakerf-
isins og annarra samgöngumann-
virkja einn mikilvægasti þátturinn
til þess að atvinnugreinin nái að
vaxa og dafna öllum landsmönn-
um til heilla. Áframhaldandi
fjársvelti til samgöngumála mun
leiða til hruns í samgöngukerf-
inu innan skamms tíma sem mun
koma hart niður á ferðaþjónustu,
öðrum atvinnugreinum og íbúum
landsins,“ segir í yfirlýsingu
Markaðsstofu Norðurlands.
Fram kemur einnig að það sé
með öllu óviðunandi að enn eina
ferðina eigi að fresta framkvæmd-
um sem margoft sé búið að setja á
samgönguáætlun en detta alltaf út
vegna þess að áætlunin er ekki fjár-
mögnuð til fulls. Dettifossvegur nr
862 er þar efstur á blaði. Ákvörðun
um að draga til baka fyrri ákvörðun
um fjármögnun á Dettifossvegi
væri áfall fyrir ferðaþjónustuaðila
í Þingeyjarsýslum og Norðurland
í heild sinni. Þessi vegur liggur
að aflmesta fossi Evrópu sem er
eitt stærsta aðdráttarafl fyrir ferða-
menn á Norðurlandi.
Vegurinn er að hluta til gam-
all, niðurgrafinn moldarvegur sem
getur alls ekki annað þeirri eftir-
spurn sem nú þegar er til staðar á
þessu vinsæla ferðamannasvæði.
Óviðunandi ástand vegarins er
ekki einungis hamlandi á núver-
andi umferð, heldur dregur einnig
verulega úr möguleikum ferða-
þjónustunnar að vaxa sem skyldi
á þessu svæði. Það sama á við um
fleiri vegi að öðrum vinsælum
náttúruperlum á Norðurlandi s.s.
Vatnsnesveg að Hvítserk.
Markaðsstofan skorar á Alþingi
að gera nauðsynlegar breytingar á
fjárlagafrumvarpi til þess að tryggja
fulla fjármögnun á samgönguáætl-
un sem er nýbúið að samþykkja á
Alþingi. /MÞÞ
Matvælastofnun sendi frá sér
tilkynningu á miðvikudaginn síð-
astliðinn þar sem fram kemur að
starfsemi Brúneggja ehf. að Teigi
og Silfurhöll hafi verið takmörkuð
þannig að allur flutningur varp-
hæna í framleiðsluhúsin hafi verið
bannaður, þar til loftgæði eru orðin
betri.
Í tilkynningu Matvælastofnunar
segir ennfremur: „Mælingar stofnunar-
innar á ammóníaki hafa sýnt viðvar-
andi gildi yfir leyfilegu hámarki í hús-
unum og þar með að úrbætur eru ekki
fullnægjandi. Ammóníak (NH3) er ert-
andi lofttegund sem berst úr fugladriti
í andrúmsloftið í framleiðsluhúsum
alifugla. Ef fugladrit er ekki fjarlægt
og/eða loftræsting er ófullnægjandi
eykst styrkur ammoníaks, sem getur
valdið fuglunum vanlíðan.
Mælingar Matvælastofnunar
á ammóníaki í framleiðsluhúsum
Brúneggja að Teigi og Silfurhöll í
Mosfellsbæ í október og nóvember sl.
sýndu gildi töluvert yfir skilgreindum
hámarksgildum í reglugerð um velferð
alifugla. Í kjölfar þvingunaraðgerða til
fækkunar fugla hjá Brúneggjum í lok
árs 2015 var fyrirtækinu veittur frestur
til 1. mars 2016 til að bæta loftgæð-
in í húsunum. Hús voru hreinsuð og
nýir fuglar settir inn í sumar í réttum
fjölda undir eftirliti Matvælastofnunar.
Þrátt fyrir það mældust gildi of há um
haustið og jókst styrkur ammóníaks
milli mælinga. Þar með varð ljóst að
þrátt fyrir fækkun fugla og úrbæt-
ur á húsnæði náðist ekki að tryggja
viðunandi loftgæði. Úrbætur eru því
ófullnægjandi.
Samhliða takmörkun á starfsemi
hefur Matvælastofnun lagt dagsektir
á Brúnegg ehf. þar til bætt hefur verið
úr loftgæðum á Teigi og Silfurhöll og
tryggt að magn ammóníaks fari ekki
yfir skilgreind hámarksgildi meðan á
varptíma stendur. Útistandandi dag-
sektir falla niður ef umráðamaður dýra
hefur að mati Matvælastofnunar bætt
á fullnægjandi hátt úr aðstæðum og
aðbúnaði dýra, innan fimm virkra daga
frá ákvörðun um dagsektir, sbr. reglu-
gerð um beitingu og hámark dagsekta
í opinberu eftirliti með velferð dýra.“
/smh
Brúnegg fá ekki að setja inn
nýjar varphænur