Bændablaðið - 15.12.2016, Síða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Myndbönd af öllum sýndum hrossum á Landsmóti
hestamanna komin á heimasíður WorldFengs
Á faglegum nótum
Myndbönd af öllum sýndum
hrossum frá Landsmóti hesta-
manna 2016 og 2014 er hægt að
sjá á heimasíðu WorldFengs –
upprunaættbók íslenska hestsins
– www.worldfengur.com
Þar hefur verið opnaður enn
einn glugginn að hestaheiminum
og í gegnum þennan glugga getur
áhugafólk um íslenska hestinn horft
á myndbönd af öllum þeim hrossum
sem komu fram á Landsmóti 2016
sem og frá Landsmótinu 2014.
Þessa skemmtilegu viðbót
er að finna í valstikunni vinstra
megin á upphafssíðu WorldFengs
eftir að notandi hefur slegið inn
notendanafn sitt og lykilorð. Þá
sést rauðum stórum stöfum „LM
MYNDBÖND“ og þar undir er að
finna Landsmót 2014 og Landsmót
2016.
Ef klikkað er á annaðhvort
Landsmótið þá birtist eftirfarandi
mynd:
Þá er hægt að velja um mynd-
bönd frá annars vegar kynbótasýn-
ingum og hins vegar úr íþrótta- og
gæðingakeppninni. Þarna er hægt að
leita eftir ákveðnum aldursflokkum,
eftir keppnisgrein, eftir nafni hests,
eftir nafni knapa, fyrri eða seinni
skeiðspretti. Valmöguleikarnir eru
því ótal margir sem gefur notand-
anum möguleika á nákvæmri leit.
Gaman er að segja frá því að þeirri
nýjung hefur nú verið bætt við sem
býður notendum WorldFengs upp á
það að opna myndband af viðkom-
andi hrossi í flipanum „Dómur“.
Með því móti er hægt að hafa
einkunnir úr kynbótasýningunni
fyrir framan sig á skjánum og horfa
á myndbandið af sýningunni um
leið.
Í framtíðinni verður þarna
að finna ómetanlegan gagna-
banka af myndböndum hrossa frá
Landsmótum hestamanna. Þarna
er því komið frábært verkfæri fyrir
alla áhugamenn um íslenska hestinn
um allan heim.
Samstarfsverkefni LH, LM & BÍ
Verkefni þetta er samstarfsverk-
efni á milli Landssambands hesta-
mannafélaga, Landsmóts ehf. og
Bændasamtaka Íslands. Verkefnið
hófst árið 2015 þegar myndbönd af
öllum hrossum sem komu fram á
Landsmótinu 2014 voru sett inn á
WorldFeng.
Vinna við að klippa myndbönd
af Landsmótinu sem haldið var á
Hólum nú í sumar er mjög langt
komin og stefnt er að því að búið
verði að koma öllum myndböndum
inn á WorldFeng á þessu ári. Þegar
þeirri vinnu lýkur verður hafist
handa við að koma inn myndefni
af öllum hrossum frá Landsmótinu
í Reykjavík árið 2012.
Jólagjöf hestamannsins
Í tilefni jóla var
ákveðið að bjóða
fólki að kaupa „LM
myndbanda“ gjafa-
bréf. Þannig verður
hægt að gefa áskrif-
endum WorldFengs
(bundið við áskrif-
endur) árs áskrift að „LM mynd-
böndum“. Gjafabréf yrði þá útbúið
á nafn og notandanafn sem mætti
skella í jólapakkann. Myndi þá LM
myndbandaaðgangurinn opnast að
kvöldi aðgangadags jóla sjálfkrafa í
WorldFeng. Áskriftin kostar í heilt ár
4.900 kr. eða um 400 kr. á mánuði.
Til að kaupa gjafabréf er
best að hafa beint samband við
Bændasamtök Íslands í síma 563-
0300 eða með tölvupósti, tolvu-
deild@bondi.is.
Einnig er hægt að hafa
samband við Landssamband
Hestamannafélaga í síma 514-4030
eða lh@lhhestar.is. Hægt verður að
kaupa þessi gjafabréf til og með
22. desember.
Valmynd – Myndbönd frá Landsmóti
Milljarður frá Barká og Þórarinn Eymundsson á Landsmóti hestamanna á
Hólum í Hjaltadal 2016. Mynd / Pétur Ingi
Jólagjöf hestamannsins – aðgangur að myndböndum af öllum sýndum
hrossum á Landsmóti.
Skýr frá Skálakoti og Jakob Svavar Sigurðsson á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal 2016. Mynd / Pétur Ingi
Icetrack ehf. Sími 773 4334
netfang: mtdekk@mtdekk.is / www.mtdekk.is
MICKEY THOMPSON
jeppadekkin hafa sannað sig á Íslandi
M/T merkið er þekkt um allan heim sem hágæða jeppadekk og felgur.
Stærðir 32” - 54”
J E P PA D E K K
BAJA CLAW MTZDEEGAN
Landssamtök skógareigenda sendir skógarbændum
og samstarfsaðilum um land allt óskir um
gleðilegjól og farsæld á nýju ári.
Þökkum ánægjulegt samstarf og góðar stundir
á árinu sem er að líða.
Megi árið 2017 vera gjöfult og gefandi skógræktarár.
Stjórn Landssamtaka skógareigenda.
Jólakveðja