Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 67
67Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Örfá atriði um nautgripa-
rækt í Hollandi
Nokkur skemmtileg atriði
koma fram um nautgriparækt í
Holllandi í grein eftir tvo danska
landbúnaðarstúdenta sem þangað
fóru í námsferð.
Það sem vakti mesta athygli
þeirra í ræktunarstarfinu var ofur-
áhersla þeirra á endingu kúnna.
Þrátt fyrir að meðalendingartími
holllensku kúnna sé verulega lengri
en gerist í Danmörku þá leggja
Holllendingarnir megináherslu á
að geta aukið endingu kúnna enn
umtalsvert. Ein meginástæða þessa
er sú að í holllenskum landbúnaði
hefur verið lagður á fosfórskattur.
Í sambandi við það skiptir verulegu
máli að geta dregið úr umfangi á
uppeldi gripa sökum þess hve fosfór-
þörfin er mikil í uppvexti ungviðis.
Önnur auðskilin rök þeirra voru að
benda á að það eru fullorðnu kýrnar
sem skapa tekjurnar, kvígurnar eru
aðeins útgjaldaliður á meðan þær
eru í uppeldi. Einnig leggja þeir
áherslu á að hagkvæmara væri að
gefa fullorðnu kúnni eitt eða tvö
auka tækifæri til að festa fang en
farga henni og taka inn kvígu í stað-
inn fyrir fullorðnu kúna.
Ræktunarmarkmiðin hjá kúa-
bændum í Holllandi eru skýr.
Hagkvæmar kýr með tilliti til fóð-
urnotkunar og endingar (ævifram-
leiðsla). Kýrnar eiga að vera hraustar
og vandamálalausar. Þau nefna að
þeir reikna fjöldann allan af undir-
einkunnum fyrir einstaka eiginleika
líkt og gert er hér. Í sambandi við
viðhald kúastofnsins hafi fátt gefist
betur heldur en listar í skýrsluhaldinu
þar sem fyrir hvert bú er listaðar
undireinkunnar allra kúa sem til-
heyra besta fjórðungi kúnna á búinu
og á móti tilsvarandi fyrir lakasta
fjórðunginn. Þannig sjái hvert bú á
svipstundu hvaða eiginleikar skipti
mestu máli á viðkomandi búi og
hverjir hafa lítil eða engin áhrif og
má því horfa framhjá í valinu.
Fyrir tæpum tveim áratugum
var hér á landi mikil umræða um
mögulegan innflutning á nýju
mjólkurkúakyni. Eitt af vopnum
þeirra sem börðust gegn innflutningi
þá var ákveðin sérstaða í gerð vissra
mjólkurpróteina sem hafði komið
fram í nýlegum rannsóknum á vegum
Norræna genbankans á þeim tíma.
Eitthvað reyndi ég að malda í móinn
um að þetta væru fremur haldlítil
rök vegna þess að kallaði markaður
eftir slíkum breytingum mundu þær
gerast í kúakynjum út um heim vegna
þess að hér væri aðeins um einfaldar
erfðir að ræða. Þetta hefur þegar
gerst að einhverju marki á svæðum á
Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Bretlandi.
Núna í mjólkurverðskreppunni sjá
Holllendingar þetta sem eitt af
mögulegum markaðssóknarfærum.
Umræðan er ekki alveg á sömu
nótum og hér var. Í ljós er komið
að fólk með laktósaóþol þolir mjólk
með víkjandi arfgerð af beta kaseini.
Til viðbótar halda ýmsir fram að
slík mjólk sé að ýmsu öðru leyti
hollari. Þarna sjá Hollendingarnir
sóknarfæri á markaði og stefna að
því að breyta kúnum á þennan veg
á tveim kynslóðum að mestu.
Hvað hafa stríðsmenn íslensku
kýrinnar gert síðustu tvo áratugi.
Ég held setið með hendur í vösum.
Þessar arfgerðir hafa ekki síðan
þá mér vitanlega verið greindar
hér á landi. Ég held að ekki þyrfti
meira en að tveir eða þrír af bestu
nautsfeðrunum á þessu tímabili hafi
óvart verið með óheppilega arfgerð
til að mælast mundi að íslenska
kýrin mögulega stæði orðið mjög
illa í slíkum samanburði væri hann
gerður nú. Ég verð að játa að það
hvarflar að mér að raunverulegur
áhugi hafi ekki verið mjög sterkur í
málflutningi allra forðum daga.
/Jón Viðar Jónmundsson
Hollenskir kúabændur:
Verða að fækka um
100 þúsund gripi
Hollenskir kúabændur horfa nú
fram á afleiðingar af regluverki
ESB til að stemma stigu við of
miklu fosfatmagni í jarðvegi.
Verða þeir því að fækka kúm um
100 þúsund gripi.
Samkvæmt frétt Deuch News.
nl frá 11. desember sl. verður
hollenskum bændum gert að fækka
kúm sínum um 100.000 gripi á
næsta ári til að mæta markmiðum
Evrópusambandsins. Er það til
að draga úr fosfati í jarðvegi sem
kemur úr kúamykju sem dreift er
á tún. Er miðað við 8% minnkun.
Frá því mjólkurkvóti var lagður
af í CAP landbúnaðarkerfi ESB í
byrjun síðasta árs, þá hefur kúm
fjölgað í Hollandi um 1,6 milljónir
gripa. Þessar kýr framleiða um 12,5
milljarða lítra af mjólk. Mykjan frá
þessum kúm inniheldur mikið af
fosfati sem ekki þykir á bætandi í
jarðveg sem talinn er ofmettaður af
fosfati fyrir.
Þótt Holland sé ekki stórt, eða
um 41.543 ferkílómetrar (Íslands
103.125 m2), þá eru þar eigi að
síður 18.000 kúabú sem teljast
fjölskyldubú. Þar af eru 150 býli
með fleiri en 300 kýr.
Nú hafa stjórnvöld ákveðið að
upplýsa bændur um fosfat-rétt sinn
sem miðast við þann fjölda gripa
sem þeir höfðu í júlí 2015.
Verður þessi réttur fram-
seljanlegur. Bændum, sem eru
innan leyfilegra marka, verður
gert kleift að fækka hjá sér kúm
og selja þann fosfatkvóta til býla
sem eru yfir mörkum leyfilegrar
fosfat „mengunar“. /HKr.
búvísindafólks á Norðurlöndum og
í Eystrasaltslöndunum og Agromek
en þessi ráðstefna var nú haldin öðru
sinni, en fyrsta skiptið var árið 2014
þ.e. síðast þegar Agromek var haldin.
Þema þessarar ráðstefnu var að horfa
til framtíðar og tæknivæðingar við
akuryrkju.
Það kann að koma mörgum á
óvart hve tæknin er í raun komin
langt á þessu sviði en á ráðstefnunni
kom m.a. fram að þegar eru komnir
á markað litlir róbótar sem geta ekið
um tún og fjarlægt illgresi án þess
að nota eiturefni. Þetta er afar mik-
ilvægt í lífrænni ræktun en róbótar
þessir þekkja illgresið frá ræktun-
arplöntunum með tölvumyndavél og
svo drepa þeir viðkomandi plöntu
með því að sprauta gufu að rótar-
kerfi plöntunnar með þar til gerðu
spjóti. Þegar þessu verki er lokið,
ekur róbótinn af stað á ný og leit-
ar að næstu plöntu! Einnig mátti
sjá lýsingaróbóta fyrir gróðurhús,
en slíkir róbótar aka um með ljós
að næturlagi og lýsa á plönturnar
frá hlið. Þá geta áburðardreifarar
nú orðið stjórnað áburðargjöfinni
algjörlega sjálfvirkt og skiptir eig-
inlega ekki máli lengur hvort ekið sé
jafnt og þétt eftir túninu eða nánast
af handahófi. Tölvukerfi dreifarans
sér einfaldlega um að skammta út á
þá bletti sem þurfa áburð og sé farið
yfir sama svæðið tvisvar lokast á
dreifinguna.
Danskur róbóti fékk Agromek-
verðlaun
Á einungis tveimur árum hefur
orðið að kalla mætti stökkbreyting
á sviði sjálfvirknivæðingar í land-
búnaði og er sérstaklega eftirtekt-
arvert að stórfyrirtæki eins og John
Deere og Bosch virðast nú leggja
mikla áherslu á róbótavæðingu. En
það eru einnig ótal önnur fyrirtæki
á þessum markaði og reyna að hasla
sér þar völl. Eitt þeirra er danskt og
heitir AgroIntelligence og það vann
einmitt Agromekverðlaun í ár fyrir
uppfinningu sína sem kallast einfald-
lega Robotti.
Það er sjálfkeyrandi vél fyrir akur-
yrkju en vél þessi ekur sjálfkrafa eftir
röðum, t.d. þar sem eru kartöflur, kál
eða rófur, og getur vélin m.a. verið
útbúin herfi eða tindum og getur því
tekist á við illgresi með þeim hætti.
Á sýningunni mátti að vanda sjá
ótal áhugaverð tæki og tól og má hér
sjá örlítið brot þeirra af meðfylgjandi
myndum. Næsta Agromek sýning
verður haldin í Herning frá 27. til 30.
nóvember 2018.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
Sviðsstjóri hjá SEGES P/S
Danmörku
„
Mynd / Agromek.dk
Mynd / SS