Bændablaðið - 15.12.2016, Qupperneq 77
77Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Sigurður Sigurðarson
dýralæknir hefur
gefið út enn eina bók-
ina í flokki bóka sem
hann kallar „Sigurðar
sögur dýralæknis“. Nú
er um að ræða „komm-
únistarautt“ kver í
kiljuformi sem geymir
gamansögur af prest-
um, stjórnmálamönn-
um, læknum, sjúkling-
um og skepnum.
Sigurður er annálað-
ur sagnamaður og hefur
áður gefið út bæði íhalds-
blátt og framsóknargrænt
kver og það næsta verður
þá að sjálfsögðu
gult. Hann kemur
víða við í nýjustu
bókinni. Er þar að
finna bráðsmelln-
ar stuttar sögur um
menn og dýr sem
eiga erindi inn á
hvert heimili. Hér
er ein stutt saga úr
bókinni:
Flugur
Prestur einn
í Ameríku
var sjúklega
hræddur við
eiturflugur. Eitt sinn undir messu
sér hann hvar eiturfluga kemur á
gluggann í kirkjunni, hnitar hringa
og steypir sér ofan í predikunar-
stólinn. Hún fer undir hempuna og
skríður upp.
Prestur reynir að halda þræðin-
um, skjálfandi af spennu meðan hann
miðar á fluguna og smellir með lóf-
anum á lærið, en missir marks. Um
leið stingur flugan og er strax komin
yfir á hitt lærið, enda er þetta skoskur
prestur í pilsi.
Prestur miðar á ný og smellir. Nú
hitti hann.
Söfnuðurinn verður var við þessa
undarlegu hegðun prestsins, hopp
og lærasmelli og hann kemst ekki
hjá því að útskýra þetta. Hann segir:
„Látið ykkur ekki bregða, mínir
elskanlegu. Þótt guðsorð sé í munni
mér, er djöfullinn í buxunum.“
Þessi pistill var skrifaður að mestu
fyrir tveim árum og er birtur nú í
þriðja sinn að mestu orðréttur frá
jólablaði Bændablaðsins síðustu
tvö ár sem áminning um ýmislegt
sem huga þarf að fyrir jólin.
Fátt gleður augað meira en sú hefð
Íslendinga að skreyta úti í sínu næsta
nágrenni hús, vélar og fleira með fal-
legum litskrúðugum ljósum í desem-
ber. Kunningi minn er einn af þessum
sem skreyta meira en aðrir og vekur
alltaf athygli. Þegar hann byrjaði
að skreyta svona mikið gerði hann
mörg mistök, setti of margar ljósa-
seríur á of lítið rafmagn, ekki allir
tenglar og fjöltengi voru vatnsheld
og í rigningu sló allt út. Fjöltengi
og framlengingarsnúrur þurfa að
þola álagið og íslenskt veðurfar
sem þeim er ætlað, annars er hætta
á íkveikju og útslætti á rafmagni.
Margar framlengingarsnúrur eru
ekki ætlaðar fyrir mikið rafmagn og
geta hitnað mikið við álag. Að kaupa
ódýr fjöltengi og framlengingarsnúr-
ur getur verið kostnaðarsamt, en ein
algengasta orsök bruna sem verður
út af rafmagni er af því að of mikið
er tekið af rafmagni af einum stað.
Slökkvitæki, reykskynjarar og
eldvarnarteppi er skyldueign
Kertanotkun eykst hjá flestum um jól
og áramót, en að mörgu er að hyggja
þegar kerti eru annars vegar. Dæmi
eru um kertaskreytingar sem hafa
fuðrað upp og valdið miklum elds-
voða, heimilisdýr rekið sig í kerti og
kveikt í, vindgustur í gardínum yfir
kerti og gardínan fuðraði upp, svona
má eflaust lengi upp telja.
Mörgum eldsvoða hafa reyk-
skynjarar bjargað, en í þeim þarf að
skipta um rafhlöðu einu sinni á ári.
Ágætis regla er að hafa ákveðinn dag
til að skipta um rafhlöðuna og mæli
ég með að nota Þorláksmessu sem
„reykskynjararafhlöðudaginn“.
Slökkvitæki eiga að vera til á
öllum heimilum og ef hæðir eru
margar í íbúðarhúsi ætti að vera eitt
slökkvitæki á hverri hæð, þau þarf að
yfirfæra reglulega (sjá merkingar á
tækjunum). Eldvarnarteppi á að vera
staðsett nálægt eldavélinni á hverju
heimili.
Njótum jólanna í kærleik og
verum vinir
Jól og áramót er sá tími ársins er ætt-
ingjar og vinir hittast og er flestum
mjög kær og töluvert er um ferðalög
á milli landshluta. Það getur verið
gaman að ferðast og sjá landið í
skammdeginu í allt öðru ljósi en á
hefðbundnum „ferðalagamánuðum“
en á þessum hátíðisdögum leynist
líka hætta.
Síðustu ár hefur mátt lesa greinar
í fjölmiðlum um óhöpp, kvíða og
stress sem tengist jólaundirbúningi
vegna þess að það er svo mikið sem
þarf að gera fyrir jólin. Það eru bæði
börn og fullorðið fólk sem líður illa
og kvíðir fyrir jólunum af ýmsum
ástæðum.
Sýnum kærleika um jólin, verum
góð hvert við annað, ferðumst með
æðruleysi og jákvæðni í umferðinni,
elskum nágrannann eins og við elsk-
um okkur sjálf.
Ég vil þakka þeim sem hafa gefið
sér tíma til að lesa þessa stuttu pistla
síðustu ár og vona að þeir hafi komið
einhverjum að gagni. Gleðileg jól og
farsælt komandi ár.
Árlegur desemberpistill nánast óbreyttur:
Góð vísa er aldrei of oft kveðin
liklegur@internet.is
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Hjörtur L. Jónsson
KROSSGÁTA Bændablaðsins
SETIS DÁ SKJÓTUR ODDI DEYÐA AFSPURN GRIND
ÁSTEFNU-MÓT S T A F U N D U R
GGÁLUR Æ R U R Á FLÍKÓNÆÐI E R M I
ÆTÆRA T A Á R S E T S
I N D R A
FÁLM
MARÐAR-
DÝR P A T
HESTUR
TAPA
TVEIR EINS M I S S A KLÆÐIUTAN S J A L STARFS-GREIN
TVÍHLJÓÐILJÓMANDI
TGLITRAPRUFA
FRAM-
BURÐUR
HNUGGINN
A F R Á S AUGNHÁR
TROMMA
AKSTURS-
ÍÞRÓTT P Á K A ÓSÆTTI SOG FFRÁ-RENNSLI
P O R T
SKÍÐA-
ÍÞRÓTT
KVK NAFN B R U N
ÁÆTLUNAR-
BÍLL
TÍMABILS R Ú T AHLIÐ
Ó L PENINGARGERVIEFNI A U R A R SLAGSMÁLTUSKA Á F L O GFÆDDI
T I N
HOLU-
FISKUR
YFIRGAF N Á L
NÝFALLIN
SNJÓR
SAMTALS D R I F T LYKTARMÁLMUR
E
IÐKA
HEIMA-
MAÐUR Æ F A
ÓBUNDINN
RUGLA L A U S UTANHÚSSHYGGJAST Ú T I
K Í L Ó FUGLUPPTÖK F Ý L L RÁSAUM Æ Ð REYKJA LMÆLI-EINING
A B O R R I BAKTALKRINGUM L A S T HLJÓMFRÁ Ó MFISKUR
R
I
Ú
I
N
MÁLHELTI
NÚMER
TÓNVERKS
S
Ó
T
P
A
U
M
S
DYSJAR
ÁMÆLA
G
Á
R
L
A
A
F
S
A
A
R
LETUR-
TÁKN
TVEIR
51
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900
www.yamaha.is
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
TRAKTOR
SEM LÉTTIR ÞÉR STÖRFIN
GRZZLY 700 EPS FJÓRHJÓL MEÐ TRAKTORSSKRÁNINGU
Ný útgáfa með dráttarspili, LED ljósum og 26“ dekkjum.
Aukin burðargeta og lækkaður þyngdarpunktur gerir gott
hjól enn betra. Verð frá kr. 1.121.000,- án vsk.
Bjóðum einnig vandaðar fjórhjólakerrur
í öllum stærðum.
Verð frá kr. 121.000,- án vsk.
VERKSTÆÐISÞJÓNUSTA!
Tímapantanir í síma 540 4900
Hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 540 4900 til að
kynna þér lánamöguleika.
Pétursey í sólaruppkomu í desember.
Vissara er að fara að öllu með gát við
uppsetningu á jólaljósunum.
MENNING&LISTIR
Sigurðar sögur dýralæknis
Sigurður Sigurðarson. Mynd / HKr.