Bændablaðið - 16.05.2019, Page 1
30–31
9. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 16. maí ▯ Blað nr. 538 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Skagfirðingar hafa verulegar áhyggjur
af uppgangi villiminks í náttúrunni
– Dýrin orðin stærri en áður var, hundar ráða ekki við þau og refurinn ekki heldur
„Það er alveg full ástæða til að
hafa verulegar áhyggjur, það
hafa mikil umskipti orðið til
hins verra,“ segir Jón Númason
á Þrasastöðum í Fljótum og
minkaveiðimaður í Skagafirði.
Landbúnaðarnefnd Sveitar-
félagsins Skagafjarðar hefur
áhyggjur af uppgangi minks innan
sveitarfélagsins og hvetur hún menn
til að halda vöku sinni. Drög að
áætlun um minka- og refaveiði fyrir
árið 2019 voru lögð fram á síðasta
fundi nefndarinnar. Samþykkt var
að greiða 20 þúsund krónur fyrir
grendýr vegna refaveiða ráðinna
veiðimanna og 7 þúsund krónur
fyrir hlaupadýr og vetrarveiði.
Verðlaun til annarra fyrir unninn
ref verða 7 þúsund krónur. Ráðnir
minkaveiðimenn fá 7.200 krónur
fyrir unnið dýr og verðlaun til
annarra verða 1.800 krónur.
52 dýr veidd í Fljótum í fyrra
Jón sá áður um veiðar í um það bil
helmingi Skagafjarðar en hefur nú
eingöngu Fljótin á sinni könnu.
Á liðnu ári veiddi hann 52 dýr
í Fljótum og segir að mink úti í
náttúrunni fjölgi ár frá ári. Ekki sé
lengur hægt að skella skuldinni á dýr
sem sleppi úr búrum á minkabúum
því þeim hafi fækkað gríðarlega
á liðnum árum og sé til að mynda
einungis eitt slíkt eftir í Skagafirði.
Búrdýrin þekkist líka úr hópnum,
þau eru gæfari en hin.
„Fyrst og fremst má rekja
uppgang minks í íslenskri náttúru
til þess að veiðum er ekki sinnt sem
skyldi. Það má svo eflaust rekja til
þess að launin eru ekki ýkja góð,
þau eru byggð þannig upp að greitt
er fyrir veidd dýr, en oft er staðan
sú að maður er á ferðinni heilan dag
við leitir og finnur ekki neitt, veiðir
ekkert dýr og fær þá engin laun. Það
verður svo til þess að áhugi á veiðum
dalar, minkurinn fær frið og honum
fjölgar,“ segir Jón.
Dýrin um kílói þyngri en áður
Jón segir að dýrin hafi stækkað og
séu að jafnaði um einu kílói þyngri
en þau voru áður. Nefnir hann
að í fyrra hafi hann náð tveimur
karldýrum sem voru yfir 4 kíló að
þyngd. Vígtennur dýranna eru um
3 sentímetrar.
„Þetta eru allt önnur dýr en maður
sá hér á árum áður, stærri og öflugri,
og hundarnir ná ekki lengur að drepa
þessa stóru minka. Ég tek líka eftir
að tófan er að gefa eftir, hún drepur
þá ekki heldur lengur,“ segir hann.
Minkur sem áður fyrr hélt sig við
vötn og ár hefur víkkað búsvæði
sitt og er í töluverðum mæli upp til
fjalla. Þar er hann í samkeppni við
refinn um rjúpuna.
Í yfir 1.000 metra hæð
Segir Jón að minka megi finna á
ótrúlegustu stöðum, einn hafi hann
séð í yfir 1.000 metra hæð, þannig
að þeir víla ekki fyrir sér að fara hátt
upp til fjalla í ætisleit.
„Minkarnir eru nú orðið alveg
óhræddir við tófuna sem áður fyrr
hélt þeim svolítið í skefjum en þannig
er það ekki lengur. Eftir því sem
minkarnir stækka þurfa þeir meira
að éta og leita í auknum mæli upp
til fjallanna.“ Þá segir Jón minkinn
þannig skepnu að hann drepi sér
til skemmtunar, iðulega hafi hann
fundið dauða fugla sem virðast hafa
drepist eðlilegum dauðdaga en þegar
betur er að gáð finnist á þeim för eftir
vígtennur minksins á haus þeirra.
„Hann virðist stundum drepa að
gamni sínu, en stundum drekkur
hann líka blóðið úr fuglunum.“
Minkar sáust í Svarfaðardal
eftir sjö ára hlé
Jón segir að gefa þurfi í þegar að
minkaveiðum kemur, en sveitarfélög
þurfi að koma á samstarfi sem ekki
er fyrir hendi nú. Sums staðar sé
veiðum ágætlega sinnt en annars
staðar ekki, minkurinn ferðist
hins vegar á milli og virði ekki
sveitarfélagamörk. Þannig hefur í
vetur sést til 11 minka í Svarfaðardal,
en dalurinn var laus við mink eftir
mikið átak sem þar var gert fyrir um
áratug. Enginn minkur sást þar í sjö
ár fyrr en honum skýtur upp kollinum
á ný nú í vetur. Telur Jón líklegast
að þeir minkar sem eru á þvælingi
í Svarfaðardal komi úr Skagafirði
og ferðist yfir Heljardalsheiði á því
ferðalagi. Það sýni að sveitarfélög
verði að stilla saman strengi sína.
/MÞÞ
Jón Númason í leit að mink á fjallsbrún fyrir ofan Þrasastaði í Fljótum.
Myndir / HKr.
Húsdýragarðurinn í Laugardal
átti 25 ára afmæli á síðasta
ári og segir Þorleifur Máni
Þorkelsson, verkefnastjóri hjá
Húsdýragarðinum, alltaf mjög
mikla aðsókn að garðinum. Hún
aukist svo enn þegar hlýnar tekur
og sól sést á lofti.
„Það er búið að vera mikið að
gera í apríl og það sem af er maí og
mun meiri aðsókn en á sama tíma í
fyrra. Enda var veðrið þá afskaplega
leiðinlegt. Í fyrra rigndi alla daga
í maí svo strax 2. maí nú í ár var
mánuðurinn orðinn þurrari en allur
maí í fyrra.
Hingað koma nokkur þúsund
manns um helgar og um leið og það
skín sól þá fyllist hér allt.“
Þorleifur segir að skólar í
Reykjavík og nágrenni nýti sér mjög
að koma í garðinn yfir veturinn og
á vorin.
„Hér er skipulagt fræðslustarf í
gangi allt árið og sér í lagi á veturna
meðan skólarnir eru í gangi. Við
erum að taka inn í þetta starf um
tíu þúsund krakka á hverjum vetri.“
Um 15 manns starfa við garðinn
allt árið en starfsmannafjöldinn
eykst mjög yfir sumarið og getur
þá farið í 80 manns. /HKr.
Dýr í borg
28–29
sauðaostaá milli ára
2