Bændablaðið - 16.05.2019, Side 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201928
Sauðfjárbændur í Baskahéruðum
Spánar hafa sumir sérhæft sig í
mjólkurframleiðslu og ostagerð.
Þannig er því varið á Gomiztegi
búinu í Arantzazu héraði suðaustur
af gömlu hafnarborginni Bilbao.
Þetta svæði í Cantabria fjöllunum
er mjög svo gróðursælt og skógi
vaxið nánast upp á fjallatoppa.
Tíðindanni Bændablaðsins gafst
kostur á að heimsækja þetta svæði í
lok apríl, en það er m.a. frægt fyrir
sauðfjárrækt og basknesku smalana.
Þeir nota hunda af mikilli list við að
smala fénu.
Smalar af þessum slóðum
eru þekktir víða um heim, enda
frumkvöðlar á þessu sviði.
Cantabria fjöll (Cordillera
Cantábrica), eru eitt helsta
fjallasvæði Spánar. Það teygir sig
frá Pyreneafjöllunum og um 300
km leið meðfram norðurströnd
Íberíuskagans sem liggur að
Cantabria hafi, sem er suðurhluti
Biscayflóa. Þá nær það að Galician
Massif (Macizo Galaico) fjöllunum
í Gallisíu í vestri.
Baskneskur smalaskóli
Á Gomiztegi búinu í Baserria
hefur verið rekinn skóli fyrir smala
(Gomiztegi Artzain Eskola), en þeim
hefur farið ört fækkandi á síðari
árum. Árið 1997 horfðu bændur á
svæðinu fram á mikinn samdrátt í
búskap og fækkun sauðfjár og vildu
setja af stað átak til að endurreisa
aldagamla frægð basknesku
smalanna. Sem innlegg í mótun
búskapar á 21. öldinni var ákveðið
að setja á fót skóla fyrir smala í
Baskalandi. Með aðstoð Francisku-
munks, sem réð yfir eignum
Gomiztegi búsins, og í samvinnu
við stjórn Baskalands tókst að setja
skólann á fót. Hefur þetta átak
orðið fyrirmynd á öðrum svæðum
á Spáni í viðleitni við að endurreisa
gömul gildi. Hafa svipaðar leiðir
verið farnar í Andalúsíu, Asturias,
Katalóníu og Extremadura.
Gomiztegi verkefnið byggir á
faglegri þjálfun sérfræðinga sem
leggja áherslu á virðingu fyrir
dýrunum og í nánu samspili við
náttúruna. Þá er líka lögð áhersla á
að tvinna saman gamlar hefðir við
nútíma aðstæður. Námið sem þar
er boðið upp á snýst samt ekki bara
um smalamennsku og sauðfjárrækt.
Hefur eflt samfélagið verulega
Þessi starfsemi hefur skilað
verulegum árangri og þar hafa
270 nemendur stundað nám á
21 árs ferli skólans. Þar af hafa
180 sauðfjárbændur, eða 65%,
haldið áfram að nýta þá félags- og
efnahagslegu þekkingu sem þeir
öðluðust til að halda áfram búskap
og við að sinna ræktun og umhirðu
lands á svæðinu.
Um 21% nemanna hafa verið
konur sem hafa afsannað þær
sögusagnir að við sé að eiga
einstaklega karllægt samfélag.
Flestir nemendurnir, eða 74%, hafa
verið undir þrítugsaldri. Þá hefur
meirihluti nemendanna, eða 55%,
verið tengdur búskap og með sterk
tengsl við sauðfjárrækt. Þá hafa 24
nemendanna frá upphafi komið frá
öðrum löndum.
Einstök þjóð sem reynir að halda
í sitt tungumál
Baskar eru mjög þjóðræknir og
hafa verið að reyna að endurvekja
kennslu á basknesku sem er
einstakt tungumál á heimsvísu og
er ekki skylt neinu öðru tungumáli
í Evrópu svo vitað sé. Það er nú
kennt í skólum í Baskalandi og
eru það helst Baskar í dreifbýlinu
sem tala hana dagsdaglega. Þetta
tungumál var bannað í stjórnartíð
Francos, einræðisherra Spánar, ekki
síst vegna þeirrar mótstöðu sem
Baskar veittu fasistastjórn hans í
borgarastríðinu á fjórða áratug
síðustu aldar. Var sú andstaða
brotin á bak aftur harðri hendi og
grimmilegum fjöldamorðum með
aðstoð þýskra nasista.
Byggja upp sérstöðu í ostagerð
Baskneskir sauðfjárbændur byggja
á aldagömlum hefðum, en þeir
eiga nú mjög undir högg að sækja.
Ein af þeim leiðum sem þeir hafa
gripið til sér til bjargar er að búa
til sérstöðu í matvælagerð líkt og
gert er með ostaframleiðslu bænda
á Gomiztegi búinu og víngerð á
sumum svæðum.
Í dölum og uppi í fjöllunum á
þessu svæði getur snjóað talsvert
á vetrum. Af þeim sökum verða
bændur að hafa fé í húsum þrjá til
fjóra mánuði á ári, ekki ósvipað og
á Íslandi. Fjárhúsið á Gomiztegi
búinu er mjög veglegt. Á bænum er
mjólkurhús, vönduð ostavinnsla og
sérstakur ostaklefi þar sem osturinn
er látinn þroskast. Þar sem osturinn
er unninn úr ógerilsneyddri mjólk,
þá má ekki neyta hans fyrr en hann
hefur þroskast í að minnsta kosti
tvo mánuði. Vinsælasti osturinn á
búinu var 6 mánaða gamall.
Framleiða margar
gerðir af ostum
Batis Otaegi, bóndinn á
Gomiztegi búinu, segir að þeir
hafi reynt ýmislegt við þróun
í sinni ostagerð. Þeir hafi m.a.
búið til mildreyktan sauðaost
sem er afbragðs góður. Þá fari
þeir með hluta af framleiðslunni
og láti hana þroskast í helli þar
í nágrenninu. Umhverfisþættir í
hellinum gera það að verkum að
bragðið af ostinum verður mjög
ólíkt því sem þekkist af öðrum
ostum á búinu.
Sauðféð er langrófufé af Latxa
kyni og ef ætlunin er að setja lömb
á til áframeldis, þá er dindillinn
klipptur af. Er það gert til að
forðast sýkingar eftir að kindurnar
vaxa upp.
Eftir burð eru lömbin færð
BÚSKAPUR &SÉRSTÆÐ MENNING
Baskaland er fjalllent en afar gróðursælt og náttúrufegurð mikil. Á innfelldu myndinni er þjóðfáni Baska. Myndir / HKr.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Í Baskalandi framleiða bændur
afbragðsgóða sauðaosta
– Blikur eru samt á lofti því strangar friðunarreglugerðir ESB eru sagðar vera að útrýma aldagamalli bændamenningu svæðisins
Gomiztegi-sauðfjárbúið í Arantzazu-héraði í Baskalandi. Smalaskólinn
Gomiztegi Artzain Eskola er til húsa í hvítu byggingunni, sem er jafnframt
heimili bóndans. Fyrir neðan er fjárhús og ostagerð.
Baskneskur smali með sýnikennslu í smalamennsku með hundi.
Bílddælingurinn og fararstjórinn Jón Sigurður Eyjólfsson, sem býr og
starfar sem kennari á Spáni, er hér til vinstri ásamt Batis Otaegi, bónda á
Gomiztegi-búinu.Sauðféð er langrófufé af Latxa-kyni
af sér dágóða mjólk.