Bændablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201946
Nú stendur yfir átakið Hjólað í
vinnuna, dagana 8. til 28. maí,
sem Íþrótta- og ólympíusamband
Íslands hefur staðið fyrir síðan
2003. Fyrsta árið stóð þessi
keppnisleikur í 5 daga og voru
liðin það ár 71 og hjóluðu
samtals 16 hringi kringum landið.
Metfjöldi keppendaliða var árið
2011, þegar 694 lið tóku þátt
og hjóluðu samtals 620 hringi í
kringum landið á 15 dögum. Árið
2010 tók undirritaður þátt með
því að prófa þrjú ný hjól og bar
saman við eitt gamalt, árgerð
1939. Nýju hjólin voru fengin hjá
reiðhjólaversluninni Erninum, en
gamla hjólið er mitt.
Skemmst er frá því að segja að
ég var ekki í neinu formi til að hjóla
og átti í stökustu vandræðum með
að klára hverja ferð fyrir sig. Í ár
eru dagarnir í keppnisátakinu 20
talsins og hafa aldrei verið svona
margir. Ekki stendur til hjá mér
að taka þátt í ár enda er ástandið
á mínum skrokk síst betra í dag,
níu árum eftir að ég prófaði síðast
reiðhjól, að hjóla undir eigin afli
tel ég mig ekki máttugan, en nú er
komið mikið af rafmagnshjólum sem
hjálpa orkulitlum mönnum eins og
mér og gæti ég vel hugsað mér að
prófa svona „reiðhjól“.
Starfsmenn Orkuveitunnar
duglegir að hjóla
Næsta hús við vinnustað minn er hús
Orkuveitunnar, mikið af farartækjum
Orkuveitunnar eru vistvæn,
rafmagnsbílar, metanbílar og
vetnisbílar. Starfsfólk Orkuveitunnar
eru margir og mikill hluti þeirra
koma allt árið í öllum veðrum um
mislangan veg til vinnu hjólandi.
Hjólin þeirra eru líka mismunandi,
allt frá mótorhjólum niður í
hefðbundin reiðhjól.
Mjög margir starfsmenn
Orkuveitunnar eru á rafmagnshjólum
og þessi rafmagnshjól þeirra
eru ekkert venjuleg og fannst
mér full ástæða að taka nokkra
þeirra tali og kynna mér betur
hjólamenningu þeirra. Í sameiningu
hafa starfsmennirnir hjálpast að við
innflutning á hjólunum sem flest
koma frá Kína.
Vel hugsað um hjólandi
starfsmenn Orkuveitunnar
Þeim starfsmönnum Orkuveitunnar,
sem ekki eiga reiðhjól eða
rafmagnshjól, býðst lán hjá
Orkuveitunni sem er allt að
150.000 og kallast „Samgöngulán“.
Endurgreiðsla lánsins er þannig að
dregin eru 7.000 kr. mánaðarlega af
launum þeirra, en ef starfsmaðurinn
mætir alltaf á hjólinu til vinnu og
stimplar sig inn í læsta hjólageymslu
starfsmanna, fær starfsmaðurinn
bónus á launin sín sem kallast
„Samgöngustyrkur“ og er að upphæð
7.000 mánaðarlega. Þetta gerir það
að í raun fær starfsmaðurinn 7.000
króna launauppbót mánaðarlega til
að borga af láninu 7.000 krónur.
Sniðugt lán sem mætti vera hjá fleiri
lánastofnunum.
Aðstaða fyrir hjólin er mjög
góð hjá Orkuveitunni, lokuð
geymsla fyrir verðmæt hjólin,
viðgerðaraðstaða og þvottaaðstaða
eru við hlið hjólageymslunnar og
allir geta hlaðið rafmagnshjólin sín
meðan þeir vinna.
Golfhjól á um 300.000
Halldór V. Geirsson á „rafmagns-
vespu“ sem lítur út eins og
ofvaxið hlaupahjól með sæti.
Hann býr í vesturbæ Kópavogs og
hjólar á rafmagnsvespunni sinni
daglega til vinnu. Halldór, sem
flestir kalla „Dós“, segist vera
fljótari eftir reiðhjólastígunum á
rafmagnsvespunni í vinnuna úr
vesturbæ Kópavogs heldur en á bíl.
Hjólreiðastígakerfið og göngu-
stígar á minni leið til og frá vinnu eru
mjög hentug, bein og fín tiltölulega
fljótfarin leið. Hún er um 10 km hvor
leið, sem tekur um 10 mín. að fara á
hjólinu, en sé farin sama leið á bíl
tekur það um fimm mínútum lengri
tíma á mesta annatíma. Halldór
notar þetta sama hjól sem „golfbíl“,
eða öllu heldur golfhjól. Er festing
fyrir golfpokann á vinstri hliðinni.
Þegar er stoppað virkar botninn á
golfpokanum í raun sem standari
á hjólinu. Golfvöllurinn skemmist
heldur ekkert af standaranum fyrir
vikið.
Belgmikil dekk með
mikla fjöðrun
Þórður Jakobsson og Hörður
Eyþórsson nota hjól sem kölluð eru
„Fat-bike“ reiðhjól með venjulegum
fótstigum og rafmagnsmótor
sem hjálpar, en dekkin eru mjög
belgmikil.
Hörður hjólaði í allan vetur til og
frá vinnu ef ekki var hálka þar sem
eð hann á ekki nagladekk.
Þórður notaði hjólið í öllum
veðrum í allan vetur enda á vel
negldum dekkjum, með góð ljós á
hjólinu. Hann var líka áberandi vel
klæddur í sýnileikafatnaði og var
hreint aðdáunarvert að sjá eljuna
í honum í öllu þessu dæmigerða
misjafna íslenska veðri. Persónulega
fannst mér Þórður bera af í
sýnileika af hjólandi starfsmönnum
Orkuveitunnar sem hjóluðu framhjá
mínum vinnustað á leið í og úr
vinnu.
Mér bauðst að prófa svona „Fat-
bike“ eins og Þórður og Hörður
eiga. Það kom mér á óvart hversu
krafturinn í rafmagnsmótornum var
mikill og einnig hvað það virtist
lítið mál að fara upp á kantsteina
og holur án þess að finna mikið fyrir
því. Eftir þessa litlu prufu væri ég
alveg til í að eiga eitt svona hjól til
að leika mér á.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Halldór V. Geirsson á hjólinu góða, nýbúinn að klára 18 holur. Myndir / HLJ
Hjólið sem mér var boðið að prófa og ég kýs að kalla „Fat-bike“.
Alla daga er hjólageymslan hjá Orkuveitunni svona full. Alls staðar eru hjól á öllum lausum rýmum í bílageymslunni.
Hjólageymslan hjá Orkuveitunni. Lengst til hægri er viðgerðaraðstaðan og til vinstri full og læst hjólageymslan.