Bændablaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. september 2019 33
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðar-
dekk skipta gæði, ending og áreiðanleiki
höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur
og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur — hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 590 5280 og kynntu þér kosti
Maxam dekkjanna.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Hagkvæm
dekk fyrir
alvöru kröfur
Smalahundafélag Íslands:
Metþátttaka á landsmóti á Langanesi
Landsmót Smalahundafélags
Íslands var haldið á Hallgils stöðum
á Langanesi helgina 24.–25. ágúst.
Þetta mót fer í sögubækurnar þar
sem metþátttaka var á mótinu, eða
25 hundar. Eins og venjulega var
keppt í þremur flokkum, A-flokki,
B-flokki og Unghundaflokki. Níu
hundar kepptu í unghundaflokki,
þrír í B-flokki og 13 hundar í
A-flokki.
Mótið tókst með miklum ágætum.
Austurlandsdeild Smala hunda
félagsins hélt um það af miklum
myndarskap. Veðrið setti þó reyndar
mark sitt leiðinlega mikið á þessa
daga en kalt var í veðri og vætusamt
fyrri daginn og hvasst þann seinni.
Engu að síður voru allir sáttir að
móti loknu.
Dómgæsla var í höndum Gunnars
Einarssonar frá Daðastöðum
og Sverris Möllers frá Ytra
Lóni en þeir hlupu í skarðið þar
sem Englendingurinn Edward
Thornally forfallaðist á bókstaf lega
síðustu stundu. Austurlandsdeild
Smalahundafélagsins vill koma á
framfæri kærum þökkum til Gunnars
og Sverris. Gunnar var einnig gerður
að heiðursfélaga í Smalahundafélagi
Íslands á meðan á móti stóð en
óhætt er að segja að framlag hans
til smalahundagreinarinnar á Íslandi
sé mikið og án hans ósennilegt að
greinin væri á þeim stað sem hún er
í dag. Úrslit voru eftirfarandi:
Unghundaflokkur:
1. Maríus Snær Halldórsson og
Fríða frá Hallgilsstöðum 1.
2. Svanur Guðmundsson og
Skessa frá Dalsminni.
3. Krzystof Krawczyk og Loki frá
Hallgilsstöðum 1.
B-flokkur.
1. Krzystof Krawczyk og Tígull
frá Hallgilsstöðum 1.
2. Björn Jóhann Steinarsson og
Skriða frá Skriðu.
3. Sigurður J. Hermannsson og
Táta frá Skriðu.
A-flokkur.
1. Aðalsteinn Aðalsteinsson og
Burndale Biff frá Bretlandi.
2. Jens Þór Sigurðsson og
Groesfaen Nap frá Bretlandi.
3. Maríus Snær Halldórsson og
Elsa frá Hallgilsstöðum 1. /ajh
Sigurvegarar í A-flokki, talið frá vinstri: Jens Þór Sigurðsson og Groesfaen Nap frá Bretlandi, sem lentu í öðru sæti.
Aðalsteinn Aðalsteinsson og Burndale Biff frá Bretlandi sem hrepptu fyrsta sætið og Maríus Snær Halldórsson og
Elsa frá Hallgilsstöðum 1 urðu í þriðja sæti. Myndir / Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson
Þessir hlutu heiðursverðlaun mótsins, Aðalsteinn Aðalsteinsson, formaður
Smalahundafélags Íslands, og dómari mótsins, Gunnar Einarsson frá
Daðastöðum.
Íslandsmeistarinn Aðalsteinn Aðalsteinsson.