Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 2

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 2
Frá ritstjóra Fimmta ár Fréttabréfsins er upp runnið. Ekki er það ætlan ritstjóra að dæma um hversu til hefur tekizt, en með þessu tölublaði nú fyllir Fréttabréfið frá upphafi 564 síður. En magn og gæði fara ekki alltaf saman og því segir þessi tala harla lítið um efnisgæði. Hins vegar mun því vart neitað að margan fróðleiksmola má finna á blaðsíðum þessum m.a. um öll félög bandalagsins, en í þessu tölublaði eru einmitt kynnt þau tvö félög, er síðast gengu í bandalagið. Geymd þessa fróðleiks á einum vísum stað er til góðs upp á framtíðina. Það er líka rétt nú enn einu sinni að ítreka að Fréttabréfið fer ókeypis út til allra félagsmanna í aðildarfélögum okkar, svo og á nokkra valda staði, þar sem ástæða þykir til að Fréttabréfið liggi frammi. Fréttabréfið fer nú til á tólfta þúsund aðila, þannig að útbreiðsla þess er allmikil. En einnig það segir fátt um efnisgæði. Ymsir sakna meiri og ítarlegri faglegrar umfjöllunar, aðrir segja að ekki sé nógu mikið um það fjallað, hversu erjað er úti á akrinum. Hvoru tveggja er ugglaust alveg rétt, en þar á ritstjóri einn alla ábyrgð. Hins vegar finnst honum hann oft vera fjarska einn um alla efnisöflun, því afar fáir eru þeir, sem af sjálfsdáðum leggja honum lið hér utan veggja. En góðar undantekningar sanna slæma reglu. Enn skal því sú áskorun ítrekuð hér að menn liggi ekki á góðu efni, sem kærkomið væri að koma á framfæri við þessa rúmlega ellefu þúsund lesendur. Nokkuð hefur verið að því fundið, aðenn skuli fyrirbæriðheita Fréttabréf, því alla vega sé það löngu vaxið upp úr því heiti. Ritstjóra þykir býsna vænt um þessa umræðu alla, því öll gagnrýni er góð, ef hún er af velvild fram borin og sýnir þá það eitt að ekki er öllum alveg sama. Það er nokkur huggun, þegar erfiðleikar við efnisöflun eru úr hófi fram. Lesendum sínum árnar Fréttabréfið nú árs og friðar og sú von býr að baki að betur megi gera nú þegar djarfar fyrir fimm ára afmælinu. En til þess þarf vissulega aðstoð sem allra flestra að Fréttabréfið megi vera allt í senn: öflugur málsvari, ötull fræðari og örlítill gleðigjafi. EFNISYFIRLIT Frá ritstióra 2 Re.rrrmíil hupans 28 Velferð á varanlegum grunni , 3 FEPEDA „1 29 Af Félagi nýrnasjúkra 4 Aðalfundur FOSH 31 Blindravinafélag Islands 60 ára 5 Eitt Hrafnsins hugarflug 32 Rætt við forystu MS-félagsins 6 Mannréttindabrot á öryrkjum 33 Hlerað í hornum „7-11-13-27 Tíðindi frá Geðhjálp 33 Hvernig varð Kirkja heyrnarlausra til? . 8 Ur lögum um fatlaða Bandaríkjamenn 34 Þrífótur á hækjur 9 Þjóðmálakönnun Þroskahjálpar 35 Af stjórnarvettvangi 10 Lokayl irlýsing 36 Frá Sambandi verndaðra vinnustaða .... 12 Ættfræði 37 Sambýli fyrir blinda og sjónskerta 14 Avarp flutt við afhendingu jólatrés 38 Nokkur orð um Almannaheill 15 Aðeins eitt líf... 38 Yfirlýsing Almannaheilla 17 Samstöðuhátíð Ö.B.I. á aðventu 39 Umsjónarfélag einhverfra 18 Heilabilun —fræðslurit Ö.í. og F.A.A.S 39 Lottó á Islandi 5 ára 20 Fjárlög 1992 40 Lottó-molar frá liðinni tíð 21 Hugleiðingar sjúklings 42 Grensásdeild 22 Hvíslað að vindinum 41 Gengið um Grensásdeild 24 I brennidepli 42 Hjálmar Vilhjálmsson 28 Af Mobility International 44 fvéttabréf ÖRYRKJABANDALAGS ÍSLANDS 1. TÖLUBLAÐ 1 5. ÁRGANGUR 1992 ! í 4 3 0.13 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Helgi Seljan Setning, útlit og umbrot: Guðmundur Einarsson Prentun: Prentsmiðjan Gutenberg h.f. Ljósmynd á forsíðu: Björn G. Eiríksson Ljósmyndir aðrar: Hafliði Hjartarson, Sigurður Jónsson og ýmsir.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.