Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 3

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 3
Jóhann Pétur Sveinsson form. Sjálfsbjargar: Velferð á varanlegum grunni Allt frá því á miðju síðasta ári hafa miklar hræringar átt sér stað í því velferðarkerfi sem við þekkjum og höfum verið stolt af. Stjórnvöld hafa sagt að velferðar- kerfið sé að hruni komið, það verði að taka í taumana, spara og skera niður. Stjórnvöld hafa einnig sagt að þeir sem hafi tekjur yfir ákveðnu marki þurfi ekki á framlögum úr almannatryggingakerfi okkar að halda og að sjálfsagt sé og nauðsyn- legt til að ná fram sparnaði að láta almenning, og reyndar einnig örorku- og ellilífeyrisþega í sumum tilfellum, taka þátt í kostnaði við þau lyf sem fólk þarf á að halda. Þá hafa stjómvöld aukið kostnaðarþátttöku almennings, örorku- og ellilífeyris- þega í formi aukinnar gjaldtöku við ýmiss konar læknisþjónustu. Það er að vísu rétt að þak það sem er á þeirri læknisþjónustu sem öryrkjar og el I i- lífeyrisþegar greiða fyrir er óbreytt, kr. 3.000, en skiljanlega eru það fleiri örorku- og ellilífeyrisþegar sem fara upp í þetta þak en áður var. Með öðrum orðum, þjónustugjöld eru lausnarorðið. Stjórnvöld hafa statt og stöðugt haldið því fram að þau vildu tryggja hag lágtekju elli- og örorku- lífeyrisþegans í þessum aðgerðum. Um þessi atriði er meira að segja sérstaklega fjallað í stefnu og starfs- áætlun ríkisstjórnarinnar. Ekki efast ég um að viljinn er góður og að stjómvöld sjái ekki aðra færa leið út úr þeim vanda sem við blasir í þjóðar- búskapnum. A hinn bóginn hefur mér fundist ganga nokkuð erfiðlega hjá okkar ágætu landsfeðrum að standa við þessi stefnumið sín. Eins og aðgerðir þeirra hafa horft við mér og nokkuð mörgum öðrum að ég tel, hefur verið farið að af meira kappi en forsjá. Auðvitað vitum við að þeir eru ekki í öfundsverðri stöðu, en samt held ég að það hljóti að vera vænlegra til árangurs að reyna að fá fólkið með sér eða a.m.k að skilja aðgerðirnar áður en þeim er skellt á. Það er mín skoðun að það sé ekki vænlegt til árangurs að skella einhverjum aðgerðum á og ætla síðan eftir á að sníða af verstu vankantana og þá gjaman ekki nema að undan- gengnum háværum mótmælum þeirra er hagsmuna eiga að gæta. Svo mjög hefur fólki ofboðið aðgerðir stjórnvalda að menn sáu ástæðu til að blása í herlúðra og mynda nýja íjöldahreyfingu undir nafninu „Almannaheill“ til að standa vörð um velferðarkerfið. Það hlýtur eitthvað að hafa mistekist í að framfylgja eða kynna fyrrnefnda stefnu ríkisstjórnarinnar sem ber heitið „Velferð á varanlegum grunni“ fyrst að almenningur sér sig knúinn að snúast til varnar á þann hátt er raun ber vitni. Aður en lengra er haldið er þó rétt að geta þess sem gott er og hef- ur ef til vill fallið í skuggann í hita umræðunnar. I þeim darraðardansi niðurskurðarins sem við höfum horft upp á, hefur félagsmálaráðherra og ríkisstjóminni tekist að verja málefni fatlaðra sem slfk. Þar hefur ríkis- stjórninni tekist að framfylgja stefnu sinni og ber að fagna því og þakka. I heilbrigðismálum hefur eins og að framan hefur verið reifað ekki tekist eins vel til. Samtök fatlaðra hafa skiljanlega verið áberandi í þeirri umræðu sem átt hefur sér stað því að félagsmenn þeirra eiga jafnvel enn meiri hagsmuna að gæta hér en aðrir. Alveg burtséð frá því hvaða leiðir menn telja vænlegar til árang- urs verður ekki annað séð en að samtök fatlaðra og ríkisstjórnin séu sammála um að verja þurfi hag þeirra „sem erfiðast eiga“ eins og það er orðað í stefnu og starfsáætlun ríkis- stjórnarinnar. Þrátt fyrir að ýmislegt hafi fengist leiðrétt í aðgerðum stjórnvalda þarf meira til. Umfram allt þurfa stjórnvöld að hafa samráð við samtök þeirra er þau sjálf segjast vilja vemda, samtök fatlaðra. Þetta samráð þarf að eiga sér stað áður en aðgerðum er skellt á, án þess er vonlítið að það náist sátt um þær. Jóhann Pétur Sveinsson. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.