Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 5
langvinna nýmabilun fá sína meðferð. Meðferðin felst annars vegar í blóðskilun (hjemodialysis) og hins vegar í kviðskilun (peritoneal dialy- sis). í blóðskilun er blóði sjúklings rennt um svokallaða skilju (filter) þar sem úrgangsefnin berast úr blóðinu gegn- um örþunna himnu yfir í svokallaðan skilvökva en með honum berast þau burt. í kviðskilun er skilvökva rennt inn í kviðarhol sjúklings. Þá smjúga úrgangsefni úr blóðinu gegnum lífhimnuna yfir í skilvökvann sem endumýjaður er á nokkurra tíma fresti. Eitt afbrigði slíkrar skilunar, svonefnt CAPD, annast sjúklingarnir oftast sjálfir en einnig eru til vélar (cyclers) sem sjá um kviðskilun t.d. næturlangt. Bæði skilunarformin hafa kosti og galla. Blóðskilun stendur gjaman í 3—4 klukkustundir í senn, þrisvar í viku. Hún hentar bezt fólki um miðbik ævinnar og er kjörin fyrir bráðar skilanir. Hún veldur snöggum sveifl- um í líkamanum sem sumir sjúklingar þola illa. Lélegar æðar valda oft erfiðleikum við öflun blóðs ti 1 skilunar. Kviðskilun (CAPD) er stöðugt í gangi og veldur litlum sveiflum. Hún hentar vel bömum, öldruðum, sykur- sjúkum og fólki sem vegna búsetu vill eða getur ekki mætt til blóðskilunar. (Á Landspítala er eina deild landsins). Meginókostur kviðskilunar er sýk- ingarhættan en lífhimnubólgur eru alltíðar. BlóðskilunhófstáLandspítala 15. ágúst 1968 og voru tveir sjúklingar meðhöndlaðir með einni skilunarvél. í dag eru 20 sjúklingar í blóðskilun. Þegar kviðskilun var tekin upp 1985 létti mjög á blóðskilun og hefur á stundumnærhelmingurskilunarsjúkl- inga verið í þeirri meðferð. I dag eru á að giska 10 sjúklingar í kviðskilun. Flestir skilunarsjúklingar bíða nýrnaígræðslu, ýmist úr lifandi ættingjum eða úr nýlátnum gjöfum. Fyrst var grætt nýra í íslending árið 1970 og starfar það enn. Alls hafa verið ígrædd 60 nýru, þar af u.þ.b. 20 úr lifandi gjöfum. Nú eru starfandi 40 ným. Félag nýmasjúkra gerðist aðili að norrænu samstarfi strax í upphafi. NN S — Nyresyges Nordiske Sam- arbejdesudvalg — á íslensku Sam- FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS Fyrsta stjórn félagsins. starfsnefnd norrænnanýrnafélaga. Að jafnaði hittist þessi nefnd einu sinni á ári og hefur félagið ávallt sent tvo fulltrúa. Það er æskilegt og mjög fróðlegt fyrir lítið félag á Islandi að eiga samvinnu við þessi stóm norrænu félög og njótum við ávallt góðs af. Það var okkur því mikil ánægja að eiga stóran þátt í að mynduð hafa verið samtök ungs fólks með langvinna nýmasjúkdóma í framhaldi af heim- sókn fjögurra norrænna umgmenna til íslands í boði félagsins fyrir nokkrum árum. Á síðasta fundi NNS var svo ákveðið að við tækjum að okkur að halda næsta fund, sem verður væntan- Iega haldinn í byrjun október á þessu ári. Það var svo í október á sl. ári sem Félag nýrnasjúkra fékk aðild að Öryrkjabandalagi Islands og væntum við mikils af þeirri aðild í framtíðinni. Dagfríður Halldórsdóttir form. Félags nýmasjúkra. Blindravinafélag íslands 60 ára Hinn 24. jan. sl. varð Blindravinafélag íslands 60 ára, en það er einmitt elzta aðildarfélag Öryrkjabandalags íslands. Um leið er það elzta starfandi styrktarfélag fatlaðra á landi hér. Það var hinn framsýni frumkvöðull Þórsteinn Bjamason, sem beitti sér fyrir stofnun félagsins 1932, en hann hafði lært körfugerð í Danmörku og kynnst um leið blindu fólki í þeirri iðju. Þórsteinn var formaður Blindravinafélagsins um 53ja ára skeið. Fréttabréfið hefur áður greint frá hinu merka starfi félagsins í glöggri grein Helgu Eysteinsdóttur. Minnamááýmsarminnisstæðarvörðurávegferðfélagsins.Blindraskóli var stofnaður 1933 og hann var rekinn í 44 ár af félaginu eða þar til ríkíð tók við rekstrinum. Það beitti sér fyrir viðamikilli fræðslu um augnsjúkdóma. Félagið rak blindraheimili um árabil. Þá má sízt af öllu gleyma þeirra ágæta vinnustað, Blindraiðn sem veitti mörgum blindum ómetanlega vinnu og veitir enn. Nú um skeið hefur félagið aðallega beitt sér að því að styrkja aldraða blinda og sjónskerta. Félagið er til húsa að Ingólfsstræti 16 og rekur þar vinnustofu og verzlun. Öryrkjabandalag íslands árnar sínu elzta félagi alls hins bezta á merkisafmælinu og þakkar frábært starf í þágu blindra á undangengnum áratugum. H.S.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.