Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 6

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 6
Rætt við foiystu MS-félagsins að dylst engum sem sækir heim hið ágæta heimili MS-félagsins í Álandinu, að þar er orðið býsnaþröngt um þá þýðingarmiklu starfsemi og fjölþættu um leið, sem þar fer fram. Hjartarúmið er hins vegar nóg, þó húsrýmið sé takmarkað og því hefur forysta MS-félagsins lengi stefnt að því að stækka við sig, svo eðlileg þró- un geti átt sér stað í þessu mikilvæga starfi. Það er mikill fjöldi fólks sem MS-heimilið sækir heim og m.a. er um að ræða fólk utan af landsbyggð- inni, sem kemur þangað í þjálfun og andlega uppbyggingu. Ómetanlegt þeim, sem þangað sækja um lengri eða skemmri tíma — það er einróma andsvar þeirra, sem um eru spurðir. En barátta MS-félagsins fyrir stærra og betra húsnæði hefur verið undarlega erfið og margir þröskuldar verið á þeirri leið, þar sem um of hefur verið gengið á milli Heródesar og Pílatusar og svörin verið ámóta og á öldum áður. Nú er það augljóst öllum, sem um fjalla og viðurkennt um leið almennt, að MS-heimilið er hvoru tveggja í senn mikilvæg endurhæfingarstöð, þar sem fjölbreytt og dýrmæt þjálfun fer fram, svo og ekki síður verðmætt félagslegt athvarf til afþreyingar og iðju af ýmsu tagi. Það ætti því að vera kappsmál bæði yfirvöldum heilbrigðis- og félagsmála að hlúa sem bezt að starfsemi MS-félagsins, þó vissulega sé velferð okkar í hættu og hart að henni sótt nú um stundir. Margir sem ég hefi rætt við og notið hafa góðrar aðhlynningar og þjálfunar á MS- heimilinu hafa tekið svo sterkt til orða að vistin þar sé eitt traustasta lífs- akkerið í oft örðugri baráttu við harðan og óvæginn sjúkdóm. Það er enda augljóst mál að manni finnst að þá starfsemi sem MS-félagið rekur beri að efla og þróa sem allra bezt ekki sízt í Ijósi þess að einmitt með því starfi er í verulegum mæli unnt að draga úr innlögnum á sjúkra- hús — innlögnum sem kosta margfalt á við dvölina á MS-heimilinu. Ég held að MS-fólk geti með stolti kallað miðstöð sína heimili, því þar ríkir sá andi sem beztan og hlýjastan má finna á góðu heimili, þar sem hugað er að öllu og hugsað um allt af alúð og umhyggju. Það er ekki sama hver á heldur, né hvert hugarfar er að baki starfsemi sem þessari. Fullyrða má að það geri oftast gæfumuninn, því gulli dýrri er góð hugsun. Gyða J. Ólafsdóttir. Eg hitti á dögunum forystukonur MS-félagsins, þær Gyðu Ólafs- dóttur og Oddnýju Lárusdóttur, for- mann og varaformann, en Oddný er um leið framkvæmdastjóri heimilisins og Gyða eiginlegur framkvæmdastjóri félagsins. Ég forvitnast f.h. lesenda Frétta- bréfsins um áform þeirra og spyr um aðstöðuna eins og hún er í dag og þörfina í raun. Svör þeirra Gyðu og Oddnýjar fara hér á eftir: Ég spyr þœr stöllur fyrst um aðdragandann að ásókn í aukið húsnœði? Það er alllöngu orðið ljóst að hér í Álandinu er orðið alltof þröngt um okkur. Rétt er að það komi fram að borgin á húsnæðið að öðru leyti en því sem við bættum við það á sínum tíma. Fyrstu viðbrögð okkar voru þau að leita að húsnæði í nágrenninu með öllum tiltækum ráðum en án árangurs. Smám saman varð okkur ljóst að það yrði að ráðast í að byggja. Og hin ágætasta lóð kom svo upp í hendurnar á okkur. svo að segja, hér í Foss- voginum og það er Hússjóður Ö.B.Í. sem mun leggja okkur hana til, þegar þar að kemur. Við höfum þegar lagt drög að skipulagi framtíðarhússins, en förum Oddný F. Lárusdóttir. ekki að láta teikna fyrr en við fáum skýrar undirtektir við erindi okkar. En áður en við komum að þeirri undrasögu spyr ég um hversu þœr vilji sjá nýja húsnœðið? Við erum nú svo hógværar að ætla rétt að tvöfalda við okkur rými, en eins og þú sérð í dag eru þrengslin óskapleg. Við ætlum auðvitað að færa út sjúkraþjálfunina, því hana þarf sérstaklega að hugsa um og þreföldun rýmis þar væri æskileg. Við þurfum að tvöfalda hvíldarplássin, sem er ómetanlegur þáttur hér. Föndur- aðstaðan þarf hiklaust mun meira rými. Aðstaða starfsfólks erhérengin, en auðvitað þarf hún að vera til staðar. Við erum búnar að ráðafélagsráðgjafa í hlutastarf og þykjumst vita að vaxandi þörf sé þar sem víðar og þar þarf aðstöðu. Svo mætti áfram telja, en auðvitað verðum við líka að huga að starfsaðstöðu fyrir sjálft félagið. Hér er lítið skrifstofuherbergi, sem

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.