Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 7

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 7
Úr Viðeyjarferð MS-félagsins sumarið 1991. hýsir allt sem starfinu hér og félaginu viðkemur. Hver maður getur séð að þrengslin hérstandastarfseminni fyrir þrifum og aukning er ómöguleg við þessar aðstæður. En fyrst hugað var að þessu fyrst ífullri alvöru fyrir a.m.k. þremur árum. Afhverju er málið ekki lengra komið? Ja, sú ganga er nú öll hin undar- legasta—frá Heródesi til Pílatusar og til baka — margar ferðir. Við höfum leitað til réttra aðila, ekki vantar það. Sérstaklega til borgarstjóra og heil- brigðisráðherra, en hvor hefur á hinn vísað. Okkur hefði þótt eðlilegast að borgin sem á þetta húsnæði, hefði skipt, verið þannig með helming og ríkið með viðbótina eða hinn helm- inginn og við höfum svo sem aldrei heyrt neinar mótbárur við því. Verið vel tekið, en ekkert verið gert í framhaldinu. Sótt um fjármagn til borgarinnar, til fjárlaganefndar, til heilbrigðisráðuneytis og til Fram- kvæmdasjóðs fatlaðra. Og útkoman í fjármunum til framkvæmda er enn O, þó allir séu jákvæðir og viðurkenni þörfina. Nú bindum við vonir við byrjunarframlag úr Framkvæmda- sjóði, því það auðveldaði okkur atlöguna að hinum, því þá er viðurkenningin fengin. Síðast fengum við neitun sakir þess að ekki þótti nógu fullkomið starfsleyfi til aukinnar starfsemi frá ráðuneytinu, en nú er það tryggilega fengið. Við höfum líka ævinlega sagt öllum að eigið framlag sé fyrir hendi til að flýta fyrir a.m.k. Nú er bara að bíða, sjá og vona. Og svo að lokum. Hve margir eru hér nú og hvað er hér um að vera annað en þegar hefur komið fram? Hér eru yfir 30 manns alls í vistun — allt að 23 á dag. Asamt sjúkraþjálfuninni er tvisvar farið í sund í Grensáslauginni. Fólk fær hér heitan mat í hádeginu. Hér er heilmikið föndrað og félagslegi þátturinn er ekki hvað síztur. Mikið er spilað og svo er dansað einu sinni í viku. Það er farið í ferðir—verzlunarferðir—á sýningar og söfn og svo er árlegt ferðalag út úr bænum. Og svo er ýmis þjónusta hér s.s. hársnyrting. 3/4 dvalargesta hér eru með MS, aðrir eru með Parkinson, MND og aðra taugasjúkdóma. Við verðum ekki varar við annað en hér líði öllum mætavel. Undir það er tekið heilshugar, enda augljóst hverjum sem hingað kemur. Aðeins skal vonað að kerfisganga þeirra stallsystra fari að taka enda og framkvœmdir taki við með farsœlli lausn fyrirþannfjölda sem njóta á. Góðarþakkir Gyða og Oddný. H.S. HLERAÐI HORNUM Þrjár gamlar konur á elliheimili báru saman bækur sínar. Sú fyrsta sagði: Ja, ég hef nú haldið tönnunum. Og næsta sagði: Og ég hef haldið hárinu. Þá sagði sú þriðja: Ég hef nú haldið meydómnum, stelpurmínar, en 7- 9-13, maður ernú einu sinni komin á elliheimili. * Lítil stúlka kom til fóstrunnar á dagheimilinu og sagði: „Kisa mín eignaðist kettlinga—sex kettlinga — sex sjálfstæðiskettlinga. „En gaman“, sagði fóstran. „Hann Davíð kemur bráðum og þá skaltu segja honum söguna.“ Svo kom Davíð og fóstran kallaði í þá litlu. „Hún kisa mín eignaðist sex kettlinga — allt framsóknarkettlinga.“ „Nei, svona var nú sagan ekki“, sagði fóstran. „Jú, þeir fengu sjónina í gær“. * Eins og stundum endranær hækkaði verð áfengis á dögunum. Göntuðust menn með þetta í sundinu og m.a. gekk einn á röðina og samhryggðist mönnum, sem tóku þessu vel eftir skýringar. En svo brá manninum við, þegar einn þakkaði mjög alvarlegur fyrir og sagði svo: „Nú, þekktir þú Sigríði?“ * Sonurinn lá í rúmi sínu og átti að fara að sofa. Þá er kallað: „Pabbi, gef mér vatn“. Svarið var: „Farðu að sofa“. Öðru sinni er kallað: „Pabbi gef mér vatn“. Svar föðurins: „Þú þarft ekkert vatn. Farðu bara að sofa“. Enn er kallað og þá by rstir faðirinn sig enn meir: „Ef þú ferð ekki að sofa kem ég og flengi þig“. Nokkur þögn en svo heyrist: „Pabbi, þegar þú kemur að flengja mig viltu þá færa mér vatn“. * A marga vegu hefur Faðirvorið verið lært. Lítill snáði sem var að fara með Faðirvorið byrjaði svo: „Það er vor uppi á himnum“. FRÉTTABRÉF ÖR YRKJABANDALA GSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.