Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Qupperneq 8

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Qupperneq 8
Séra Miyako Þórðarson: Hvemig varð Kirkja heyrnarlausra til? egar ég hugsa til næstu tíu ára, finnst mér það langur tími, en ef ég lít lil baka með heyrnarlausu fólki í Kirkju heyrnarlausra, finnstmér þau hafa liðið svo hratt. Þegar ég bjó í Japan, kom enginn heyrnarlaus inn í líf mitt, nema óbeint. Það var kona, sem sagði meðal annars: „Þegar einar dyr lokast, opnast aðrar, en oft horfum við svo lengi á lokuðu dymar, að við tökum ekki eftir þeim, sem hafa verið opnaðar fyrir okkur“. Já, það var Hellen Keller, sem sagði þetta. Eg kynntist heymarlausu fólki í fyrsta skipti á ævi minni hér á Islandi, einmitt í búð í miðbænum þar sem ég vann. Það voru krakkamir í Heymleys- ingjaskólanum sem komu í búðina. Það var svo merkilegt að ég þekkti mörg andlit, þó ég hefði aldrei séð þau áður. Það hlýtur að hafa verið út af því að sumir krakkanna voru einu sinni að sýna dans í barnatímanum í sjónvarp- inu og ég horfði á það með dóttur minni. Maður sér margt í sjónvarpinu, sumt man maður ekki og gleymir jafn- skjótt, en öðru gleymir maður seint. Þessi dansatriði krakkanna úr Heyrn- leysingjaskólanum hljóta að hafa gagntekið mig, þó að ég hafi ekki sér- staklega hugsað út í það, því ég mundi jafnvel eftir því hvemig sumir voru klæddir og hvernig þeir litu út. Þess vegna voru þetta sannkallaðir „endur- fundir“ fyrir mig, þegar þeir birtust í búðinni. Já, þeir komu svo oft, að mig lang- aði eðlilega að tala við þá. Sumir krakkarnir voru famir að kenna mér eitt og eitt orð á táknmáli. En mig langaði að tala en ekki kunna bara eitt og eitt tákn. Ég fór því á skrifstofu Fé- lags heymarlausra og kvaðst vilja læra táknmál. Skömmu síðar byrjaði ég á námskeiði, sem ætlað var aðstandend- um heymarlausra krakka og kennurum í Heymleysingjaskólanum sem stóð um 2 mánuði. Og Brandur heitinn gaf mér leyfi ti I að vera með. Brand þekkti ég örlítið vegna þess að ég fékk einkatíma í íslenskum framburði hjá honum rétt eftir að ég kom til Islands. Séra Miyako Þórðarson. Smátt og smátt fór ég að kynnast fleiri krökkum í Heymleysingja- skólnum. Þá fór ákveðin spurning að leita á hugann. Ég spurði sjálfa mig nefnilega aftur og aftur: „Hvemig geta þeir sem ekki heyra, hlýtt á guðs orð í kirkju?“ Þá var mér ekki kunnugt um það kirkjulega starf, sem Kristín Sverris- dóttir, kennari í Heymleysingjaskól- anum hafði gegnt í þágu heymarlausra á vegum Kristnisjóðs og ef til vill þess vegna hefur spumingin orðið enn áleitnari en ella. Og svo fór, að ég skrifaði bréf bæði til Noregs og Bandaríkjanna þar sem ég spurðist fyrir um hvernig kirkjan þjónaði heyrnarlausum börnum í þessum löndum. Á þessum tíma beindist hugurinn fyrst og fremst að starfi kirkjunnar meðal krakka. Ég fékk ekki svar frá Bandaríkjunum en frá Noregi fékk ég það svar að ég ætti að skrifa til Svíþjóðar, þar sem Svíar voru taldir fremstir í þessum málefnum Norður- landa. Ég skrifaði nú bréf til S víþjóðar en fékk ekki svar við bréfi mínu. Málið var þó ekki þar með úr sögunni. Einn góðan veðurdag fékk ég nefnilega upphringingu frá Félagi heymarlausra. Erindið var að athuga hvort það væri ég sem hefði áhuga á að gerast prestur fyrir heymarlausa. Félag heymarlausra hafði fengið sent bréf í tilefni af bréfi mínu þess efnis að einhver Miyako Þórðarson á íslandi hefði áhuga á kirkjulegu starfi fyrir heyrnarlausa. Mig minnir að ég hafi hvorki jánkað því eða neitað þar sem málið var aðeins á könnunarstigi hjá mér. Málin þróuðust þó þannig að Félag heyrnarlausra hvatti mig til að fara til Norðurlanda til þess að kynnast kirkjulegu starfi meðal heymarlausra. Félag heymarlausra hafði þegar hér var komið sögu, haft samband við heymleysingjaprest í Danmörku og spurt hann hvort þar væri nokkur aðstaða til að leiðbeina mér. Svo reyndist vera og hélt ég því utan og dvaldi þar undir handleiðslu tveggja heymleysingjapresta. Þetta sama sumar var svo haldið norrænt heyrnleysingjaprestamót í Geilo í Noregi. Þó að allt væri enn óljóst, hvort ég mundi starfa sem heymleysingjaprestur hér á landi, fékk ég samt tækifæri til að sækja þessa ráðstefnuásamtíslenskafulltrúanum, Kristínu Sverrisdóttur, heyrnleys- ingjakennara. Þetta var í fyrsta sinn sem ísland sendi fulltrúa á slíkt mót. Þegar ég kom heim, var enn allt í óvissu um það hvort af vígslu yrði, en þó stefndi allt í þá áttina. Loks var ákveðið að vígslan færi fram þetta sama ár, þar sem fram til þessa tíma hafði staðið á fjárveitingu til starfsins. Þegar ég hafði tekið vígslu, kom ég að máli við biskup, herra Pétur Sigurgeirsson og spurði hann hvenær hann teldi rétt að ég héldi fyrstu guðsþjónustuna. Hann brosti hlýlega til mín ogsagði: „Erekki bestaðbyrja á jólamessunni?" Og þar með var ákveðið að ég skyldi messa í fyrsta sinn á annan í jólum. Svo höfðu mál skipast, að annarheymleysingjaprest- anna dönsku, sem ég hafði verið í námi hjá, ætlaði að koma til Islands til að aðstoða mig við fyrstu messuna. Mér fannst ég ekki kunna neitt og fannst mikill styrkur að því að fá hann mér til hjálpar. En svo fékk ég þær fréttir fáeinum dögum fyrir messuna

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.