Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 9

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Síða 9
Svipmynd úr starfi. að presturinn gæti ekki komið. Tilfinningin sem ég fékk við þessa fregn var svipuð og mér hefði verið hent ósyntri út í sjó og sagt við mig: „Nú skaltu synda“. Nú er ég búin að synda í tíu ár og mér finnst ég ekki enn alveg synd. Miyako Þórðarson. Eftirmáli ritstjóra: Um ieið og séra Miyako erþakkað þetta skemmtilega og fróðlega innlegg um Kirkju heymarlausra er rétt að geta um hátíðarstund sem ritstjóri varð aðnjótandi. Hátíðarguðþjónusta var haldin í Hallgrímskirkju 15. des. sl. í tilefni 10 ára afmælis Kirkju heyrnar- lausra. Þetta var athöfn sem var afar virðuleg og hátíðleg í látleysi sínu og snart mann mjög. Það var biskupinn yfir Islandi, Ólafur Skúlason, sem prédikaði og flutti fágætlega athyglisverða ræðu, sem lýsti miklum og næmum skilningi hans á vandamálum heymarlausra og þekkingu um leið á því, sem þar er vel unnið. Séra Miyako þjónaði fyrir altari og túlkaði um leið ræðu biskups. Upphafsbæn fóru þær með Hervör Guðjónsdóttir og Kristín Sverrisdóttir. Guðspjall dagsins var lesið af þeim Hönnu Kristínu Jónsdóttur og Fríðu Bimu Kristinsdóttur. Táknmálskórinn og barnakórinn sungu undir stjóm Júlíu Guðnýjar Hreinsdóttur með organistanum Herði Askelssyni. Mjög margt fólk var við athöfnina og sögðu margir þetta vera einhverja eftirminnilegustu stund sína í kirkju. A eftir voru höfðinglegar veitingar í boði Kirkju heyrnarlausra og þar fóru fram hin ágætustu atriði, sem voru þeim til sóma er fluttu. Ritstjóri endurtekur þakklæti sitt fyrir gott boð og telur hiklaust að hér sé á ferð eitthvert hið merkasta starf, sem fyrir heyrnarlausa er unnið. H.S. Þrífótur á hækjur Af hugviti Axels Eiríkssonar Sem betur fer eru alltaf til ein- hverjir, sem huga að hinum ýmsu þörfum fatlaðra á hjálpartækjasviðinu og hvað megi þar helzt gera til að auðvelda fólki sem allra mest að búa við fötlun sína. Einn þeima sem þar að hyggja er Axel Eiríksson, sem hannað hefur út- búnað — handhægan mjög — til að láta hækjur uppréttar standa, þegar þær eru ekki í notkun. Að þessum útbúnaði er hinn mesti hægðarauki, enda hefur Trygginga- stofnun ríkisins m.a. styrkt Axel nokkuð til verksins og enn er hann að vinna að frekari þróun þessa. Viður- kenningin er þegar fengin og hingað á skrifstofuna kom Axel og kynnti okkur þessa smíði sína og um leið ýmis þau meðmæli og umsagnir er hann hefur fengið vegna þessa útbúnaðar síns. M.a. segir einn notandi frá því hversu mikil þægindi og öryggi fylgi því að hafa þennan þrífót til að renna niður, þegar ekki er verið að nota hækjuna. Annars er hún alltaf að detta um koll og viðkomandi notandi hefur jafnvel meitt sig eða lent í erfiðleikum við að taka upp hækjuna. Utbúnaður- inn er svo örléttur að ekki verður vart við. Björk Pálsdóttir, sem er forstöðu- maður hjálpartækjamiðstöðvar T.R. segir svo orðrétt um þrífótinn: Um er að ræða stuðningstæki á hækjur, svo þær standi sjálfar, stýrt með litlu handtaki í handarhæð. Hugmyndin er góð og gæti komið að góðum notum fyrir ákveðinn notendahóp þeirra er nota hækjur í lengri trma. Fleiri meðmæli lækna og sj úkraþjálfara mætti hér nefna þar sem mjög lofsamlega er vitnað um nota- gildi tækisins. Axel vill hins vegareðlilegakoma þessu á framfæri við þá, er kynnu að vilja notfæra sér þessa einföldu en gagnlegu uppfinningu hans. Þrífóturinn góði. Fréttabréfið telur sér skylt að vekja á þessu nokkra athygli og bendir þeim sem áhuga ky nnu að hafa á síma Axels — 671021 — á kvöldin. Þar má fá allar upplýsingar, ef menn sky ldu vilja prófa. H.S. FRÉTTABRÉF ÖR YRKJABANDALAGSINS rr

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.