Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Qupperneq 10
AF STJÓRNARVETTVANGI
Síðasti stjómarfundur ársins 1991
varhaldinn á venjulegum stað og
tímaþriðjudaginn 17. des. Formaður
bauð Dagfríði Halldórsdóttur vel-
komna sem varamann í stjóm frá
Félagi nýmasjúkra.
1) Málefni Glits h.f. vom rædd
ítarlega. Annars vegargaflngimundur
Magnússon rekstrarfræðingur grein-
argóða lýsingu á því sem gert hefði
verið og stöðu mála nú. Lagði hann
fram hugmyndir að leiðum til úrbóta
og framtíðarlausnar.
Hins vegar ræddi Jóhann Pétur
Sveinsson lögfr. gang nauðarsamn-
inga og lýsti þeirri skoðun að
greiðslustöðvun mundi fást í janúar
til viðbótar meðan staðan yrði frekar
skoðuð. Gjaldþrotaleiðin var mjög
rædd sem máske eina leiðin að lokum.
Formaður og Ingimundur greindu
frá viðræðum við borgarstjóra um
hlut Reykjavíkurborgar að þessum
málum nú og til langframa. Samþykkt
var að áfram héldu viðræður við
borgina um beztu fáanlega lausn
málsins. Upplýst var að félagsmála-
ráðuneytið þrýstir á um áframhaldandi
rekstur vegna öryrkjavinnunar.
2) Fjárlagafrumvarp 1992.
Helgi Seljan rakti helztu þætti
frumvarpsins eins og þeir liggja fyrir
eftir aðra umræðu og gat um hvoru
tveggja ákveðin ánægjuefni s.s. ný
viðfangsefni úti á svæðunum og nú
síðast 35 millj. kr. framlag til vistunar
geðfatlaðra.
Hann rakti viðbrögðin við tillög-
unum um flutning verkefna til sveit-
arfélaga, sem á döfinni voru og námu
yfir 350 millj. kr. Kynnti mót-
mælaályktun Öryrkjabandalagsins og
önnur viðbrögð þetta varðandi. Hann
benti að lokum á ákveðin áhyggjuefni
s.s. styrki til félagasamtaka, sem stæðu
óbreyttir og þó sér í lagi Starfsþjálfun
fatlaðra, sem hækkar aðeins urn 3%
milli ára.
3) Formaður greindi frá áhuga
Starfsþjálfunar fatlaðra á því að taka
upp fjórðu önnina, en það strandaði
bæði á fjármunum og húsnæði.
Trúlega yrði sótt í Framkvæmdasjóð
fatlaðra til öflunar húsnæðis.
4) Ásgerður Ingimarsdóttir flutti
þakkir til félaganna vegna góðra
undirtekta þeirra við að auglýsa með
Öryrkjabandalaginu samstöðu-
hátíðina við Langholtskirkju 13. des.
sl.
5) Vilhjálmur B. Vilhjálmsson
sagði frá hugmyndum um norrænt
„lottó“, en forsvarsmenn „lottóanna“
á Norðurlöndunum hafa undirritað
viljayfirlýsingu um könnun þessa.
6) Að Iokum vakti Magnús Þor-
grímsson máls á framhaldi auglýs-
ingaherferðar Ö.B.I.
Formaður óskaði fundarfólki
gleðilegra jóla og ámaðar á ári nýju.
Fyrsti fundur stjómar á árinu 1992
var haldinn á venjulegum fund-
arstað og tíma þriðjudaginn 25. feb.
Formaður ámaði fólki árs og friðar
og gat þess að auglýsing Öryrkja-
bandalagsins í Morgunblaðinu fyrir
áramót væri í hópi þeirra, sem
tilnefndar væru til viðurkenningarfyr-
ir óvenjulegar auglýsingar og sér-
stæðar, svo og sem athyglisverða
dagblaðsauglýsingu.
Fyrsta dagskrármálið varðaði
málefni Glits h.f. og hafði formaður
nokkur aðfararorð, en lagði að öðru
leyti til ákveðnar tillögur starfshóps
þess, sem hefur verið að vinna að
úrlausn mála. Hann kvað rekstur nú í
jafnvægi, nauðarsamninga nokkuð í
höfn og góðar líkur væru á að borgin
kæmi inn í myndina. Hann kvað
tillögumar m.a. fela í sér að fótum
væri komið undir Örtækni, þær hefðu
ekki í för með sér skerðingu á styrkj um
til félaganna og með tilliti til m.a. hins
bága atvinnuástands nú væri nauðsyn
að halda áfram með starfsemina.
Ingimundur Magnússon gerði
talnalega grein fyrir stöðu mála og
sömuleiðis rakti hann breytingar þær
sem gerðar hefðu verið bæði í stjómun
og rekstri. Lagði fram reikninga
fyrirtækisins fyrirárið 1991 og yfirlit
fyrstu mánuði ársins nú.
Miklar umræður urðu um málið
og ýmsar efasemdir um ágæti til-
lagnanna.
M.a. tók Haukur Þórðarson fram
að skilyrðið yrði að vera það að um
vemdaðan vinnustað væri að ræða.
Þórir Þorvarðarson lýsti efasemdum
um að afkomuspár rættust og hér væru
menn að taka miklar og dýrar skuld-
bindingar á sig. Hafdís Hannesdóttir
sagði að í raun stæðum við andspænis
afarkostum.
Umræður urðu allsnarpar og tóku
margir til máls og meðal þeirra sem
eindregið studdu tillögur starfshópsins
var Arinbjöm Kolbeinsson sem kvað
miklanauðsyntil þessberaað tryggja
svo mörgum fötluðum öruggt vinnu-
athvarf og tóku fleiri í þann sama
streng.
Að lokum voru tillögumar bornar
upp í leynilegri atkvæðagreiðslu og
sögðu 12 já, 3neiogtveirseðlarvoru