Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Page 14
Ragnar R. Magnússon form. Blindrafélagsins:
Sambýli fyrir blinda og sj ónskerta
Sambýli fyrir blinda og sjónskerta
að Stigahlíð 71 í Reykjavík, var
formlega opnað þann 6. desember 1991.
Allmargir gestir komu til þess að
fagna með íbúum sem voru að eignast
þar framtíðarheimili.
B ára S igurðardóttir forstöðumaður
sambýlisins bauð gesti velkomna og
stýrði dagskránni.
Ragnar R. Magnússon, formaður
stjórnar Blindrafélagsins, tók til máls
og bauð gesti velkomna til að sam-
gleðjast íbúum sem væru að eignast
fallegt og notalegt heimili. Hann óskaði
öllum til hamingju með þennan árangur
og bað þess að þeir sem eiga eftir að
búa á þessu heimili megi njóta þar
friðar og farsældar.
Þá hóf Halldór S. Rafnar, fram-
kvæmdastjóri Blindrafélagsins, mál sitt
á þ ví að þakka fulltrúum ríkis og borgar,
fulltrúum nefnda sem hlut eiga að máli,
fulltrúum líknarfélaga, Oddfellow-
systrum, Lionessum og öllum þeim
sem stuðlað hafa að því að þetta heimili
er orðinn raunveruleiki. Hann óskaði
stjórn Blindrafélagsins til hamingju og
bauð starfsfólk velkomið til starfa.
Síðan rakti Halldór söguna um
húsakaupin að Stigahlíð 71. Halldór
sagði að gera hefði þurft nokkrar
breytingar á húsinu og var gert ráð fyrir
að ganga þannig frá öllu að ekki þyrfti
að koma til mikið viðhald næstu árin.
Hann sagði að mikil heppni hefði verið
yfir okkur við ráðningu starfsfólksins.
Bára Sigurðardóttir var ráðin forstöðu-
maður og tók hún þátt í og stjómaði
öllum þeim breytingum sem þurfti að
gera af miklum dugnaði og útsjónar-
semi. Halldór sagði að þetta hefði orðið
heldur dýrara en gert var ráð fyrir, en
stór kostur væri að vera í þessu hverfi
þar sem blindu og sjónskertu fólki hefur
ávallt verið tekið af mikilli velvild og
það er göngufært að sækja vinnu eða
ýmiss konar félagslíf í félagsmiðstöð
Bindrafélagsins að Hamrahlíð 17.
Að lokum óskaði Halldór heimilinu
gæfu og gengis í framtíðinni.
Margrét Margeirdóttir, deildarstjóri
í félagsmálaráðuneytinu, flutti
síðan kveðjur og árnaðaróskir frá
félagsmálaráðherra, sem gat því miður
ekki komið vegna starfa á Alþingi.
Ragnar R. Magnússon.
Margrét sagði að það væri sér mikil
ánægja að gleðjast með okkur í dag og
fagna opnun þessa glæsilega heimilis.
Hún gat þess að þetta væri fyrsta
sambýlið sem einvörðungu væri
stofnsett fyrir blinda og sjónskerta og
innréttað eftir þörfum þeirra. Þá gerði
hún grein fyrir uppbyggingu sambýla
almennt,
Margrét taldi að þetta glæsilega
heimili væri ánægjulegur vitnisburður
um árangursríka samvinnu félaga-
samtaka og opinberra aðila. I þessu
sambandi ræddi hún um Blindrafélagið
sem hafði veg og vanda, frumkvæði og
umsjón með öllum framkvæmdum,
sem vel hefur verið staðið að. Þegar
þettaertalað hefurFramkvæmdasjóður
fatlaðra lagt fram 16,5 milljónir króna
í stofnframlag og vonaðist hún til þess
að unnt yrði að úthluta eftirstöðvunum
á næsta ári.
Að lokum flutti Margrét
Margeirsdóttir fbúum og starfsfólki
innilegar hamingjuóskir með þetta
fallega heimili. Hún þakkaði
Blindrafélaginu fyrir að koma þessu
máli í höfn og óskaði öllum til hamingju
með þennan áfanga í málefnum
fatlaðra.
Þá lýsti hún sambýlið að Stigahlíð
71 formlega opnað.
Þá flutti Ólöf Ríkarðsdóttir, vara-
formaður Öryrkjabandalags Islands
ámaðaróskir bandalagsins, í fjarveru
formanns þess.
Hafdís Hannesdóttir flutti kveðjur
og árnaðaróskir Stjórnarnefndar um
málefni fatlaðra. Hún sagðist hafa
fylgst nokkuð með framvindu þessa
máls og taldi að framganga Blindra-
félagsins hefði ráðið úrslitum um að
þetta heimili væri nú komið í notkun,
þar sem oft væri erfitt að fá rekstrar- og
stofnfé til að koma á fót nýjurn heim-
ilum. Hún óskaði síðan íbúum og
starfsfólki heilla í starfi.
Gísli Helgason, formaður Svæðis-
stjórnar Reykjavíkur, tók næstur til
máls. Taldi hann að allir sem hér ættu
hlut að máli gætu verið stoltir af þessu
fallega heimili. Gísli flutti árnaðaróskir
Svæðisstjórnar og hann vonaði að hér
mætti ríkja sá andi sem ríkir á hinum
bestu heimilum á landinu.
Að lokum kvaddi sérhljóðs Markús
Örn Antonsson, borgarstjóri. Hann
óskaði öllum hlutaðeigandi innilega
til hamingju með þennan merka áfanga
sem hér er náð með því að taka þetta
sambýli í notkun. Sérstaklega flutti
hann forystumönnum í samtökum
blindra þakkir og árnaðaróskir frá
Reykjavíkurborg fyrir frumkvæði og
forgöngu í málefnum sínum á undan-
fömum árum og áratugum, sem skilað
hefur jafn glæsilegum árangri og raun
ber vitni. Hann færði heimilinu nokkra
geisladiska frá Reykjavíkurborg.
Bára Sigurðardóttir færði Blindra-
vinafélagi Islands þakkir fyrir píanó
sem félagið hefði gefið sambýlinu og
nú færði félagið peningagjöf til
íbúanna.
Bára S igurðardóttir þakkaði hlý orð
og óskir í garð heimilisfólks og
starfsfólks. Hún bauð síðan gestum að
þiggja góðgjörðir.
Ragnar R. Magnússon.
Ritstjóri fœrir Ragnari hlýjar þakkir
fyrir þennan greinargóða pistil og mœttu
fleiri taka sér frumkvœði hans til
fyrirmyndar og segja frá markverðum
tíðindum, sem lesendur hefðu œrna
ánœgju af. Þar hlýtur að vera afœrnu að
taka affélagsvettvangi.
Samhýli þetta er hið glœsilegasta og
er Blindrafélaginu, heimilis- og starfsfólki
allra heilla árnað með áfanga góðan.
H.S.