Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Side 17

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1992, Side 17
Yfirlýsing Almannaheilla um velferðarkerfið Almannaheill ætlarað standa vörð um heilbrigðis- og menntakerfi landsmanna sem er hornsteinn vel- ferðarríkis okkar. í stefnuskrá ríkisstjórnarinnar er vikið að velferðarríkinu og þar segir meðal annars: „Heilbrigðisþjónustan hér á landi er með því besta sem gerist. Þessu forystuhlutverki verða íslendingar að halda“. Ennfremur segir þar: „Einnig verði hugað að langtímamarkmiðum og stuðlað að forvömum gegn sjúkdómum, vímu- efnum og slysum“. 1. Almannatryggingar lands- manna hafa stuðlað að jöfnuði og jafnframt tryggt öllum ákveðinn lágmarkslífeyri. I stefnuskrá ríkis- stjómarinnar segir svo meðal annars: „Löggjöf almannatrygginga verður endurskoðuð einkum með stuðning við þá er bágust hafa kjörin að markmiði". Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skerða grunnlífeyri elli- og örorkulífeyrisþega og réttlætt þá aðgerð með því að það fjármagn sem þar næðist inn yrði notað til að bæta kjör hinna verr settu. Þessi áform era ekki komin fram að öðru leyti en því að óskert tekjutrygging örorkulíf- eyrisþega hefur verið hækkuð um 625 kr. á mánuði. Aðeins óverulegur hluti af því fjármagni sem sparast er notað til tekjujöfnunar því ríkis- stjómin áætlar að spamaður vegna skerðingargrunnlífeyris verði um 260 millj. kr. á þessu ári. Almannaheill varar mjög eindregið við þessum aðgerðum ríkisstjómarinnar og krefst afdráttarlaust afnáms skerðingar- marka grunnlífeyris. Til skýringar skal m.a. bent á að í lögum um almannatryggingar frá 1946 var kveðið á um að allir íslenskir ríkisborgarar skuli hafa jafnan rétt til ellilífeyris við 67 ára aldur. Einnig skal bent á að grunnlífeyririnn er nokkur konar uppbót fyrir fatlaða og aldraða þar sem í flestum tilvikum er miklu dýrara fyrir þetta fólk að lifa. 2. Almannaheill leggur áherslu á að lyf, sem sjúkir, aldraðir og öryrkjar nota samkvæmt læknisráði verði niðurgreidd á ný með sama hætti og varfyrir 1. júlí 1991. 3. Almannaheill telur að nú- gildandi þak sé of hátt vegna lækn- isþjónustu á fjölskyldu. Eðlilegra sé að þakið sé 10.000 kr. fyrir einstakling og 20.000 fyrir hjón. Almannaheill krefst þess að læknisþjónusta fyrir börn, aldraða og öryrkja verði ókeypis. Almannaheill vill að kostnaður vegna læknisvitjana í heimahúsum verði tekinn inn í hámarksgreiðslur. 4. Almannaheill harmar fjár- hagssvelti sjúkrahúsa og með hvaða hætti niðurskurður þar er fram- kvæmdur. Gripið hefur verið til fjöldauppsagna í nafni spamaðar en ekkert hugað að afleiðingum hvorki fyrir starfsfólk né þá þjónustu er veitt hefur verið. Almannaheill bendir á nauðsyn þess að allir fái fullkomna þjónustu óháð efnahag. Því verður á engan hátt unað að bráðaþjónusta verði skert. 5. Almannaheill leggur áherslu á að tannlækningar fyrir öll börn verði ókeypis og að sama regla gildi um aldraða og öryrkja. Þá leggur Almannaheill til að aðrir fái end- urgreidd 10% af tannlæknaþjónustu. 6. Almannaheill krefst þess að hætt verði við öll áform urn aukna þátttöku sjúklinga, öryrkja og aldraðra í kostnaði hjálpartækja. Mörg hjálpartæki era nauðsynleg til þess að fólk geti átt eðlileg samskipti, stundað atvinnu og lifað. 7. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar er varða þá er erfa skulu landið virðast bera vott um það að hún sé þeim tjandsamleg. Sem dæmi má nefna: a) Framlög til greiðslu bamabóta hafa verið skert um 10%, eða sem nemur 500 milljónum króna. Samhliða skerðingunni hafa verið gerðar breytingar á kerfi barnabóta. Samkvæmt prentuðum upplýsingum frá efnahagsskrifstofu fjármála- ráðuneytisins dags. 11. desember 1991 eru almennar bamabætur, en þær era óháðar tekjum, lækkaðar verulega. Hins vegar er barna- bótaaukinn sem fylgir tekjum hækkaður. Hvað varðar einstæða foreldra sem hafa meðaltekjur eða þar fyrir neðan þá er hækkunin óveruleg og almennt séð nær hún ekki verðlagsbreytingum á milli ára. Verulegur hluti hjóna, nánar tiltekið 67 % verða fyrir skerðingu. Skattbyrði hjóna með meðaltekjur sem eiga 3 böm, þar af 2 yngri en 7 ára, eykst um 1,7%. Greiðslur barnabóta ti 1 þessara hjóna á ársgrundvelli lækka um tæpar 47.000 kr. Almannaheill álítur að með skerðingu barnabótanna hafi verið stigið óheillaspor sem stuðli á engan hátt að þjóðarsátt. b) Almannaheill leggur áherslu á að jafnrétti rfki til náms. Ríkisstjómin hefur nú þegar tekið afdrifaríkar ákvarðanir er ganga þvert á þessa hugsun. Skólagjöld eru ekki til þess fallin að skapa jafnrétti til náms né heldur þær breytingar sem fyrir- hugaðar eru á lánakjörum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Almannaheill skorar á stjórnvöld að tryggja framhaldsskólum og skólum á háskólastigi fjárhagslegan rekstr- argrundvöll, án þess að hækka skólagjöld. Hvað varðar málefni grunnskólans þá vill Almannaheill að skilað verði til hans 180 milljóna króna niðurskurði og að fjárframlög til hans taki fyrst og fremst mið af nýsamþykktum grunnskólalögum. c) Almannaheill leggur sérstaka áherslu á að hagur fatlaðra bama og fjölskyldna þeirra verði tryggður og að fjárframlög verði á engan hátt skert heldur miklu fremur aukin og þannig sé mætt tilfinnanlegum útgjöldum foreldra fatlaðra bama. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.